Fréttablaðið - 11.03.2017, Síða 28

Fréttablaðið - 11.03.2017, Síða 28
Kristbjörg Kjeld leik-kona tekur á móti mér inni á herbergi eitt í Þjóðleikhúsinu þar sem hún hefur undirbúið sig fyrir leiksviðið og átt sitt athvarf í önn langra daga í ein sextíu ár. Það er þó hvorki að sjá né heyra á Kristbjörgu að hún eigi svo langan feril að baki enda sérdeilis ungleg, röddin björt og andinn ungur. Það er kyrrð og ró í gamla leikhúsinu við Hverfis- götuna svona á þriðjudagsmorgni en þó gætir eilítillar spennu í loftinu enda frumsýningarvika hjá Krist- björgu og samverkafólki hennar. Ekki þannig maður Fyrir dyrum stendur frumsýning á Húsinu, áður ósýndu verki eftir Guðmund Steinsson, eiginmann Kristbjargar, sem féll frá fyrir rúmum tuttugu árum. En aðspurð um verkið segir Kristbjörg að sér þyki alltaf dálítið óþægilegt að tala um leikritin hans Guðmundar enda standi þau henni nærri. „Guð- mundur fjallaði mikið um yfir- borðsmennskuna í sínum verkum. Að við meinum ekki alltaf það sem við segjum. Hann er að benda okkur á mikilvægi nándar og einlægni gagnvart hvert öðru í okkar daglega lífi. Mikilvægi þess að staldra við og sinna því sem skiptir máli. En það sem ég hef lært af því að leika í verk- um Guðmundar er fyrst og fremst þessi mikla nákvæmni. Maður þarf að vera svo nákvæmur með hans texta að það má engu skeika. Þetta er svo nákvæmlega byggt og það er svo mikil tónlist í þessu. Þannig að ef einhver fer ekki rétt með eða bregður út af, þá verður tónninn falskur.“ Húsið segir frá vel stæðum hjón- um sem flytja inn í nýtt einbýlishús ásamt þremur sonum sínum. Þau njóta þess að sýna vinum nýja og glæsilega heimilið en brátt kemur í ljós að í húsinu ráða öfl sem þau mega sín lítils gegn. Fjarlægðin eykst milli fjölskyldumeðlima, óboðnir gestir gera vart við sig og heimilið virðist varnarlaust. Verkið er hlaðið áleitnum spurningum um samastað mannsins í nútímasam- félagi og þrátt fyrir að vera skrifað fyrir um fjörutíu árum á það erindi í dag. Kristbjörg segist muna ágæt- lega eftir þeim tíma þegar Guð- mundur var að skrifa þetta verk. „Þetta var á þeim tíma þegar unga fólkið var að gera uppreisn gegn ríkjandi gildismati. Sýningin okkar hér er því í þessari períódu sextíu og átta kynslóðarinnar en hversu mikið hefur í raun breyst er svo umhugsunarefni.“ Það er líka umhugsunarefni af hverju Húsið hefur aldrei áður verið sett á leiksvið en Kristbjörg segir skýringuna í raun frekar einfalda. „Guðmundur átti frekar erfitt upp- dráttar sem leikskáld. Hann skrifaði öðruvísi og það var meiri eftirspurn eftir natúralisma og það var ekki fyrir Guðmund. Hann var alltaf trúr sínum hugmyndum og sinni nálgun og elti aldrei það sem var í tísku hverju sinni. Það var einfaldlega ekki í hans eðli að elta eftirspurnina, hann hefði ekki getað það, því hann var ekki þannig maður.“ Saknar nándarinnar Það er mildur blær kærleika og söknuðar í rödd Kristbjargar þegar hún talar um Guðmund og tæpast hefur nokkur manneskja þekkt hann betur. Guðmundur og Krist- björg giftu sig þegar hún var 27 ára, þá þegar búin að þekkjast í nokkur ár. „Við giftum okkur 1962 en Guð- mundur féll frá 1996. Svona langur tími mótar lífið og mótar mann sem manneskju. Ég sakna Guðmundar á hverjum degi. Hef stundum sagt að mér finnist ég ekki hafa neinn að tala við eftir að hann fór. Maður saknar þessarar nándar við aðra manneskju og fyrir mig sem lista- konu var þetta líka mikilvægt. Hann kenndi mér svo ótrúlega margt og við ræddum alltaf mikið um listina inni á heimilinu. Það varð ekki hjá því komist.“ Kristbjörg segir að þau Guð- mundur hafi alla tíð ferðast mikið og að gaman og gleði hafi ríkt í hjónabandi þeirra. „Við vorum ánægð og hamingjusöm hjón. Guðmundur var góður maður. Honum er best lýst þannig. Hann var hlýr og yndislegur í alla staði. En á vissan hátt þá var hann líka frekar prívat persóna, þó svo hann hafi haft afskaplega gaman af því að koma innan um fólk og þá var hann skemmtilegur og fyndinn. Mér fannst reyndar þegar ég var í útlöndum með honum að þá hafi hann verið frjálsari. Hann var oft pínu meira þvingaður hérna heima í fámenninu, en í útlöndum blómstr- aði hann, talaði við hvern sem var og var heimsmaður.“ Fyrir þann sem er heimsmaður í eðli sínu og gengur aðeins á bratt- ann í sinni listsköpun getur efalítið verið dálítið þrúgandi að búa við fámenni. Kristbjörg tekur undir að þetta geti verið tilfellið enda geti lítil samfélög eins og til að mynda leikhússamfélagið á Íslandi átt það til að vera dómhart. „Já, það er það sem er óþægilegt. Þetta er svo smátt í sniðum og í svona fámennu sam- félagi er miklu erfiðara fyrir lista- mann að koma með eitthvað sem er ekki alveg viðtekið. Sá hópur sem tekur við er svo fámennur, en í stærri samfélögum færðu nægilega stóran hóp til þess að það dugar þér til þess að fá rödd. Þannig finnur Langar að verða frábær leikkona Kristbjörg Kjeld á sextíu ára leikafmæli um þessar mundir en hún á að baki einstaklega glæstan feril. Kristbjörg segir að hún finni enn fyrir þörfinni til að læra og að draumurinn um að skapa eitthvað fallegt haldi henni gangandi. Kristbjörg Kjeld í herbergi eitt í Þjóðleikhúsinu þar sem hún hefur átt sitt athvarf á sextíu ára leikferli og sett upp ófá andlit leikbókmenntanna. Fréttablaðið/EyÞór „Við vorum ánægð og hamingjusöm hjón. Guð- mundur var góður maður. Honum er best lýst þannig,“ segir Kristbjörg um hjóna- band sitt og leikskáldsins Guðmundar Steinssonar. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Ég sakna guðmundar á hverjum degi. hef stundum sagt að mÉr finnist Ég ekki hafa neinn að tala við eftir að hann fór. ↣ 1 1 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r28 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 1 1 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 C -C 6 9 0 1 C 6 C -C 5 5 4 1 C 6 C -C 4 1 8 1 C 6 C -C 2 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 2 0 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.