Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.03.2017, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 11.03.2017, Qupperneq 32
Gæði og verð fara saman Svefn og heilsa er gamalgróið fyrir­ tæki en eigendur þess byrjuðu að flytja inn rúm árið 1991 og eru nú rúmlega 25 árum síðar með stærstu markaðshlutdeildina á Íslandi í þessum geira. Elísabet segir gæði vörunnar skipta þau hjónin hvað mestu máli enda hugi flestir viðskipta­ vinir þeirra fremur að gæðum en verði. „Flestir vita að rúmið er það sem þeir nota langmest og lengst af öllum hlutum heimilisins. Þó er alltaf best þegar verð og gæði fara saman sem er raunin hjá okkur,“ segir hún glaðlega. Mörg gæðamerki Svefn og heilsa býður upp á fjöl­ mörg gæðamerki. „Við leggjum mesta áherslu á heilsudýnurnar frá Bodyprint og Fylds’, einnig stillan­ legu rúmin frá Reverie. Síðan erum við með heilsudýnur sem við látum sérframleiða fyrir okkur sem heita Valhöll, Saga, Freyja, Þór og Memory Deluxe,“ telur Sigurður upp. Elísabet bætir við að þau bjóði upp á ýmis góð merki í mjúkvörum. „Til dæmis HEFEL sem er það allra besta sem við höfum kynnst í sængurverum. Þá eru Vandyck góðir í flestum mjúkvörum en lökin frá þeim eru sérstaklega góð.“ Þau benda á að dýnunum fylgi 5 ára ábyrgð og þá sé boðið upp á eldvarnarbólstrun sem henti vel fyrir hótel. Góðar heilsudýnur „Allar okkar heilsudýnur eru svæðaskiptar. Það þýðir að axla­ svæðið er mjúkt, mjóbakssvæðið er stífara og miðjusvæðið er millistíft. Svæðaskiptar heilsudýnur gefa betri stuðning við axlir og mjóbak og styðja í heild miklu betur við líkamann,“ útskýrir Sigurður. Hann segir Valhöll vinsælustu heilsudýnuna fyrir hótelin. „Hún er sjösvæðaskipt og 30 cm þykk. Hægt er að snúa henni og er hún því mjög endingargóð. Valhöll er einnig með steypta kanta og stálkanta og hægt er að festa tvær dýnur saman með Velcro til að mynda hjónarúm,“ segir Sig­ urður og bendir á að botnarnir séu gríðarsterkir og henti því vel fyrir hótel. „Ég væri mjög ánægður með að lenda á slíkri dýnu á 5 stjörnu hóteli,“ segir hann og brosir. Nánari upplýsingar á www.svefn.is Eigendur Svefns og heilsu, Sigurður og Elísabet, ásamt Matthildi Fanneyju Jónsdóttur verslunarstjóra. Mynd/Eyþór Svefn og heilsa býður upp á fjölmörg gæðamerki í rúmum og dýnum. Framhald af forsíðu➛ ALLT Á EINUM STAð H Ó T E L R E K S T U R Síðumúli 1 | 108 Reykjavík | Sími 788-2070 & 787-2070 | hotelRekStuR@hotelRekStuR.iS SængurveraSett rúmábreiður borðdúkar Sápur Sloppar og inniSkórHótelvörur lök Hlífðardýnur Handklæði Hilmar segir að matur á íslenskum veitingahúsum hafi verið fábrotinn á fyrri hluta síðustu aldar. Nánast ómögulegt var að fá ferskt græn­ meti. „Það var lítið flutt inn af hráefni til landsins. Ef ég bauð upp á grænmeti fyrstu tíu árin mín sem kokkur kom það úr dós nema kannski kartöflur, rófur og gulrætur á haustin. Sömuleiðis var mjög erfitt að fá nautakjöt,“ segir hann. „Miklar breytingar urðu eftir 1980 þegar gjaldeyris­ höftum var aflétt. Fólk fór að ferðast meira og gat fengið ríflegri gjaldeyri en áður. Þeir sem fóru í ferðalög fyrir þennan tíma tóku gjarnan mat með sér til Spánar en notuðu peninginn sem fékkst í bankanum til að kaupa gjafir handa ættingjum. Þegar losnaði um þessi höft fóru Íslendingar að prófa veitingahús í útlöndum og smekkurinn breyttist. Það voru engin kreditkort á þeim tíma. Þar að auki var nám í matreiðslu eflt til muna og skólinn skilaði miklu betri matreiðslumönnum. Það skilaði sér inn á veitingahúsin,“ segir Hilmar. Þegar kennslan batnaði jókst að íslenskir matreiðslumenn leituðu sér framhaldsmennt­ unar í útlöndum. „Þeir réðu sig til vinnu erlendis og komu síðan með nýjungar með sér heim,“ segir Hilmar. „Þá fóru veitinga­ menn að bjóða meira en kjötsúpu eða lambalæri á veitingahúsum eða lax á sumrin. Vöruúrvalið jókst jafnt og þétt. Matseðillinn hafði verið ákaflega einfaldur og matreiðslan einhæf. Fyrsti veislu­ maturinn sem ég man eftir var hamborgarhryggur. Þegar Hótel Loftleiðir kom til sögunnar var boðið upp á kalt borð sem varð mjög vinsælt. Á þessum árum þegar ég var að byrja í kokkinum kom allt kjöt í heilum eða hálfum skrokkum. Við úrbeinuðum allt sjálfir og allur skrokkurinn var notaður. Í dag geta menn keypt það kjöt sem þeir vilja eftir núm­ erum í katalog,“ segir Hilmar. „Ég held að Gestgjafinn sem ég byrjaði að gefa út á þessum árum hafi líka haft áhrif.“ Hann rifjar upp að á sjöunda áratugnum voru nokkur hótel opnuð í Reykjavík; Hótel Saga árið 1962, Hótel Holt árið 1965 og Loftleiðir árið 1966. Það var mikil breyting. „Hins vegar verða ekki almennar breytingar á matseðlum veitingahúsa fyrr en á níunda áratugnum. Þá verður bylting. Eini fiskurinn sem var á boðstólum á íslenskum veitingahúsum var lax í þrjá mánuði og síðan lúða. Þorsk­ ur og ýsa sáust ekki á matseðli á þessum árum. Ég man eftir að einstaka sinnum buðum við upp á nýja rauðsprettu en vissum ekki að við vorum að bjóða skarkola sem er ekki sami fiskurinn. Fiskurinn var því seldur undir fölsku nafni. Ef hægt var að fá nautakjöt þá var logandi piparsteik mjög vinsæl en hún var flamberuð fyrir framan gestinn. Einnig var nauta­tornado vinsælt en það var bara mjög erfitt að fá góða nautasteik á þessum árum. Grillaður humar kom ekki á matseðil fyrr en Ib Wessman kom með hann á Naustinu. Humarinn hafði verið notaður í beitu,“ segir Hilmar og bendir á gríðarlega breytingu í matargerð á síðustu 20 árum. „Það hefur margt breyst og matur á veitingahúsum hér á landi er með því besta sem gerist í heiminum. Ásóknin í matreiðslu­ nám hefur þrefaldast á stuttum tíma en því miður er skólinn alltaf fjársveltur og getur ekki endurnýj­ að nauðsynleg tæki,“ segir Hilmar sem hefur nóg að gera við að dæma í matreiðslukeppnum víða um heim. „Ég er nýkominn heim frá Dubai þar sem ég smakkaði 208 fiskrétti á fjórum dögum. Svo er ég á leið til Víetnam á nokkurs konar Food and Fun hátíð,“ segir hann. þegar bylting varð á veitingahúsum Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistari þekkir vel til allra breytinga á hótelum og veitingastöðum í gegnum tíðina enda hefur hann verið lengi í bransanum. Hann segir að margt hafi breyst eftir 1980. Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistari man tímana tvenna í hótel- og veitingahúsarekstri á Íslandi. Mynd/Eyþór Elín Albertsdóttir elin@365.is Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.is Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 2 KynnInGArBLAÐ 1 1 . m a r S 2 0 1 7 L AU G A r dAG U r 1 1 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 6 C -9 F 1 0 1 C 6 C -9 D D 4 1 C 6 C -9 C 9 8 1 C 6 C -9 B 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 2 0 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.