Fréttablaðið - 11.03.2017, Page 38
Garri er einn fremsti birgir landsins þegar kemur að matvælum og umbúðum.
Á síðustu árum hefur Garri auk
þess bætt við hreinlætislausnum
og hreinlætisvörum og þannig
stórbætt þjónustu sína við íslensk
fyrirtæki að sögn Hreins Elías-
sonar, markaðsstjóra Garra. „Við
höfum meðal annars staðið fyrir
fræðandi námskeiðum um árabil
í samvinnu við þekkt vörumerki
eins og Cacao Barry, SOSA, Cap-
fruit, Ardo og Vandemoortele svo
einhver séu nefnd. Þannig höfum
við til dæmis haldið mjög vinsæl
súkkulaðinámskeið, fagkennslu í
sushigerð, námskeið í bakstri og
meðhöndlun á vörum sem gefa
viðskiptavinum okkar forskot á
markaði. Fleiri hundruð fagaðilar
sækja námskeið okkar ár hvert.“
Hann segir að fagfólk geti
alltaf leitað til Garra þar sem
sérfræðingar fyrirtækisins séu
ávallt reiðubúnir til að ráðleggja
við matseðlagerð, kynna nýjar og
spennandi aðferðir, hagkvæmar
lausnir til vinnusparnaðar og
annað sem nýtist viðskiptavinum
beint í starfsemi sinni. „Í starfsliði
okkar eru m.a. matreiðslumenn,
matreiðslumeistarar, bakarar og
sérfræðingar í hreinlætislausnum.
Þetta eru aðilar sem staðið hafa að
rekstri veitingahúsa og stóreld-
húsa með góðum árangri. Fyrir
vikið getum við veitt dýrmæta
þjónustu og það er okkur mikil
ánægja að geta haft jákvæð áhrif
á líf og starfsemi viðskiptavina
okkar.“
Umhverfisvitund mikilvæg
Hreinn bendir á að Garri leggi
áherslu á að bjóða vörur sem
geri fyrirtækjum og stofnunum
kleift að vera umhverfismeðvituð
og styðja við stefnu sína í þeim
málum. Þá sé einnig velkomið að
hafa samband og fá ráðgjöf um
sértækar lausnir. „Í röðum okkar
eru sérfræðingar sem eru tilbúnir
til að aðstoða með lausnir sem gera
fyrirtæki aðlaðandi og í takt við
tímann.”
Grænar lausnir
Undanfarin ár hafa starfsmenn
Garra markvisst tekið mið af
auknum ferðamannastraumi til
landsins og stefnt að því að vera
með nýjungar í vöru og þjónustu
sem uppfylla kröfur markaðarins.
„Aukin fjölbreytni kallar á nýjar
lausnir og við erum tilbúin til að
mæta þeim. Það hefur ekki farið
fram hjá neinum að aukin með-
vitund ferðamanna um umhverfis-
vernd kallar eftir grænni þjónustu.
Fólk vill í auknum mæli geta
valið vistvænar lausnir þegar það
ákveður kaup sem er mjög jákvæð
þróun og við viljum taka þátt í
henni.“
Hreinlæti er undirstaðan
Hreinlæti og snyrtileg ásýnd er
mikilvægt öllum fyrirtækjum í
rekstri hvort sem það er persónu-
legt hreinlæti eða þrif í iðnaði.
„Við erum komin með eina flott-
ustu hreinlætislínu á landinu,
bæði í hreinlætisefnum og
salernispappír fyrir allar tegundir
fyrirtækja. Vörumerki okkar eru
fremst í flokki á heimsvísu og
framleiðendurnir eiga það sam-
eiginlegt að vera umhverfismeð-
vitaðir með umhverfisvottaðar
vörur. Það er mjög jákvæð þróun
að eiga sér stað sem samræmist
gildum Garra hvað varðar sam-
félagsábyrgð og virðingu fyrir
náttúrunni. Við erum því afar stolt
af að geta boðið viðskiptavinum
okkar slíkar vörur og þjónustu.“
Góð upplifun
Það er þægileg tilfinning fyrir
rekstraraðila og veitir viðskipta-
vinum góða upplifun að geta
boðið upp á góða hreinlætisað-
stöðu. Það eykur líkur á að gestir
komi aftur og mæli með staðnum
segir Hreinn. „Það þarf ekki að
vera aukinn kostnaður við það
að veita góða upplifun þannig að
vel búin salernisaðstaða er skyn-
samleg fjárfesting sem nýtist bæði
viðskiptavinum og starfsfólki.
Garri og verslunin Besta bjóða
fyrirtækjum og sveitarfélögum
trausta og skilvirka þjónustu og
síðast en ekki síst frábærar vörur.
Besta er sérverslun sem Garri
rekur og sérhæfir sig í hreinlætis-
vörum. Verslunin er á Grensás-
vegi 18 í Reykjavík en þar er veitt
fagleg þjónusta þar sem starfsfólk
með mikla reynslu og sérþekk-
ingu veitir ráðgjöf um þrif og
hreinlæti.“
Traust, lausnamiðuð þjónusta
Fyrirtækið Garri var stofnað árið
1973 og hefur því veitt þjónustu í
yfir fjörutíu ár. Frá fyrstu tíð hefur
áherslan verið á hágæða matvæli
fyrir stóreldhús ásamt hag-
kvæmum og skilvirkum lausnum
á sviði hreinlætis. „Hjá okkur er
hægt að kaupa allt á einum stað
sem skilar sér í hagræðingu og
tímasparnaði,“ segir Hreinn. „Allir
aðilar innan hótel- og veitinga-
geirans og ferðaþjónustunnar geta
því nýtt sér vörur og lausnir fyrir
starfsemi sína. Ef um er að ræða
óskir um sérhæfðar lausnir þá eru
starfsmenn Garra ávallt reiðu-
búnir að starfa með viðkomandi í
leit að hentugum lausnum.“
Allar nánari upplýsingar má
finna á www.garri.is og í síma í
síma 5 700 300.
Garri hélt nýlega námskeiðið Ný sýn á frosið grænmeti, ávexti og kryddjurtir í samvinnu við Ardo.
Heildversl-
unin Garri er á
Lynghálsi 2 í
Reykjavík.
Garri býður grænar lausnir
Garri aðstoðar hótel og veitingahús um land allt við að ná árangri með
sérhæfðum lausnum. Fyrirtækið býður upp á matreiðslunámskeið,
grænar lausnir og eina flottustu hreinlætislínu á landinu.
Hreint land fagurt land
Aukin fjölbreytni
kallar á nýjar
lausnir og við erum
tilbúin til að mæta þeim.
Það hefur ekki farið fram
hjá neinum að aukin með
vitund ferða manna um
umhverf isvernd kallar
eftir grænni þjónustu.
Fólk vill í auknum mæli
geta valið vistvænar
lausnir þegar það
ákveður kaup sem er
mjög jákvæð
þróun og
við viljum
taka þátt í
henni.
Hreinn Elíasson,
markaðsstjóri Garra
8 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . m A r s 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
1
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
8
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
D
-1
0
A
0
1
C
6
D
-0
F
6
4
1
C
6
D
-0
E
2
8
1
C
6
D
-0
C
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K