Fréttablaðið - 11.03.2017, Side 96
verður haldinn fimmtudaginn 23. mars nk.
kl. 18:00.
Fundurinn er haldinn samtímis í
BORGARTÚNI 30 (6. HÆÐ), REYKJAVÍK
og SKIPAGÖTU 14, AKUREYRI.
AÐALFUNDUR
BYGGIÐNAR
– FÉLAGS BYGGINGAMANNA
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sjá nánar á heimasíðu
Byggiðnar, byggidn.is.
Stjórnin.
Málsvari byggingamanna
Þann 29. september árið 1928 birtist skringileg klausa í Morgunblaðinu: „Alltaf fjölgar þeim, sem þykjast hafa sjeð hina merkilegu flugvjel. Fyrra
föstudag var bifreið á leið hjeðan
suður eftir. Þegar hún kom í sunnan-
verða Öskjuhlíð tóku farþegar og bif-
reiðastjóri eftir einkennilegri sjón:
Sýndist þeim sem flugvjel væri á
suðurleið yfir Skerjafjörð og fór hratt.
Dró hún á eftir sjer reykhala ein-
kennilegan, og mátti sjá á honum að
vjelin fór ekki beint, því að reykurinn
var í ýmsum hlykkjum.“ – Skömmu
síðar hvarf flugvélin sjónum fólksins
og varð það hennar ekki aftur vart.
Mun atburðurinn hafa átt sér stað
um klukkan hálf sjö að kvöldi.
Þetta var ekki eina fréttin í Morg-
unblaðinu þessa haustdaga 1928
sem fjallaði um flugvélina dularfullu
eða „furðuflugvélina“ eins og blaðið
kallaði hana. Raunar var um fátt
meira talað í Reykjavík um þessar
mundir og lumuðu flestir á sinni
skýringu á þessu skringilega fyrir-
bæri. En hvað var svona dularfullt við
flugvél á sveimi yfir Skerjafjörð sem
kallaði á fréttir í dagblöðum og setti
bæjarlífið á annan endann? Jú, hafa
verður í huga hvenær þessir atburðir
áttu sér stað.
Vorið 1928 hófst önnur tilraun
til reksturs atvinnuflugs á Íslandi.
Tæpum áratug fyrr, í marsmánuði
1919, hafði Flugfélag Íslands (hið
fyrsta í röðinni) verið stofnað í höf-
uðstaðnum. Það festi kaup á tveggja
manna tvíþekju sem stóð fyrir flug-
sýningum og útsýnisflugi frá Vatns-
mýrinni í tvö sumur. Seinna árið var
flugmaður félagsins Vestur-Íslend-
ingurinn Frank Fredericksen, sem
kunnastur er úr íþróttasögunni sem
leiðtogi Fálkanna, vesturíslenska
íshokkíliðsins sem hlaut gullverð-
launin á Ólympíuleikunum sama ár.
Þessi fyrsta tilraun til flugs varð
skammvinn enda fremur til skemmt-
unar en í hagnýtum tilgangi. Meiri
vonir voru hins vegar bundnar
við annað Flugfélag Íslands, sem
stofnað var með tilstyrk hins opin-
bera og fjölda áhugamanna um flug-
samgöngur árið 1928. Alexander
Jóhannesson háskólaprófessor var
Draugaflugvélin
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson
skrifar um reykvíska
ráðgátu.
helsti hvatamaður að stofnun félags-
ins, sem hugsað var til flutninga með
farþega og póst auk þess að vonir voru
bundnar við að flugvélar hentuðu til
síldarleitar. Fengnar voru nokkrar
Junkers-vélar sem sinntu fjölda verk-
efna á árunum 1928-31, þar til félag-
ið lenti í fjárhagsvandræðum í heim-
skreppunni og lagði upp laupana.
Sumarið 1928 var aðeins ein vél
í ferðum á vegum Flugfélagsins og
hlaut hún nafnið Súlan. Eins og gefur
að skilja vakti hún mikla athygli
landsmanna og sennilega hefur hvert
einasta mannsbarn í Reykjavík veitt
henni athygli þarna um sumarið.
Nema hvað, í septemberbyrjun hafði
Súlan verið tekin í sundur og send
úr landi, enda ekki talið vænlegt að
halda úti flugsamgöngum yfir vetrar-
mánuðina.
Grunsamlegur gestur
En hver var þá flugvélin sem bíl-
farþegarnir á Öskjuhlíð sáu svífa
yfir Skerjafirðinum í lok septem-
ber? Enga aðra flugvél var að finna í
landinu og þótt erlendir flugkappar
hefðu slæðst hingað, sá fyrsti frá
Orkneyjum árið 1924, þá var slíkt
sárasjaldgæft. Hvers vegna ætti líka
nokkur maður að fljúga til landsins
á laun?
Eins og fram kom í fréttinni var
þetta ekki fyrsta skiptið sem sást til
flugvélarinnar dularfullu. Nokkrum
dögum fyrr hafði Morgunblaðið
sagt frá því að tvær stúlkur á gangi
nálægt Þormóðsstöðum við Skerja-
fjörð hafi veitt athygli ljósum er bar
rétt yfir Skildinganeshólana. Hafi
þær talið um bíl að ræða, þegar ljósin
hafi skyndilega tekist á loft og svifið
í norður til bæjarins en síðan snúið
við og horfið út á Flóann. Mátti skilja
af frásögninni að þessi vitnisburður
væri aðeins sá nýjasti af fjölmörgum,
sem allar bæru að sama brunni: að
furðuflugvél væri á sveimi umhverfis
Reykjavík.
Flýgur fiskisagan og fljótlega
komust Reykjavíkurblöðin á snoðir
um að flugvélarinnar dularfullu
hefði orðið vart uppi í Hvalfirði þá
um sumarið. Maður nokkur var þar
við heyskap og hafðist við í tjaldi
skammt frá sjó. Nótt eina vaknaði
hann við umgang og veitti athygli
aðkomumanni skammt frá tjaldinu.
Hann elti gestinn, en sá tók þá til
fótanna og hljóp að flugvél á floti í
sjávarmálinu og hvarf á henni upp í
loftin blá!
Blaðamaður vikublaðsins Varðar
velti fyrir sér ráðgátunni í blaðinu
þann 6. október. Sagði hann vélina
sjást á öllum tímum sólarhringsins.
Sannorðir menn og greinargóðir
hefðu borið vitni um þessa sjón og
oft „hefir það komið fyrir, að ungir
elskendur, sem notið hafa kyrrðar-
innar á síðkveldum, hafa hrokkið
saman við að tvær ógnarglyrnur
hafa starað niður til þeirra, utan úr
helmyrkvum fjarskanum“.
Velti blaðamaðurinn upp nokkr-
um helstu tilgátum um hvernig á
þessu öllu gæti staðið. Einhverjir
teldu að um væri að ræða leiðangur
erlendra vísindamanna eða fulltrúa
erlendra hervelda sem hér væru við
njósnir. Aðrir giskuðu á að smyglarar
væru á ferðinni og þá líklega með
ólöglegt áfengi, enda áfengisbann í
gildi í landinu. Enn aðrir hölluðust
að yfirnáttúrulegum skýringum, ein-
hvers konar finngálkni eða nútíma
Fróðárundrum.
Þýskur flugstjóri Flugfélags Íslands,
Walter að nafni, var spurður út í
furðuflugvélina og taldi hann að um
ofsjónir hlyti að vera að ræða. Taldi
hann útilokað að erlendir flugmenn
legðu leið sína alla leið til Íslands
á þessum árstíma, að frásagnirnar
væru allar með miklum ólíkindum
og að alltof kostnaðarsamt væri að
notast við flugvélar til áfengissmygls.
Horfin sporlaust
Þegar líða tók á október hættu að
berast nýjar fregnir af flugvélinni
dularfullu og aldrei fékkst svar við
því hvað bjó í raun og veru að baki
öllum vitnisburðunum. Freistandi er
þó að giska á að þar hafi farið saman
blanda af auðugu ímyndunarafli og
hefðbundnum hrekkjabrögðum,
enda löngum verið vinsælt að
skrökva að blaðamönnum.
Athyglisvert er að Morgunblaðið
virðist hafa tekið flugvélarfregnirnar
alvarlegar en hin Reykjavíkurblöðin,
sem voru mun varfærnari í umfjöllun
sinni og skrifuðu helst um málið í
hálfkæringi. Frásagnir sjónarvotta
áttu hins vegar greiða leið á síður
Moggans. Síðar örlaði á því að
gantast væri með trúgirni Morgun-
blaðsmanna í þessu efni, til dæmis
í skopritinu Speglinum sem kall-
aði furðuflugvélina eftirlætisdraug
Morgunblaðsins, sem „lætur sjer
mjög ant um hann, og gerir veður út
af í hvert skifti sem hann sjest“.
Morgunblaðið lét slíka kerskni
sem vind um eyru þjóta og næstu
mánuðina birti það fáeinar fregnir
af dularfullum flugvélum sem sést
hefðu víðs vegar um Evrópu. En í
ársbyrjun 1929 þóttist það loksins
hafa ráðið gátuna. Upplýsti blaðið
að franskir vísindamenn hefðu rann-
sakað í þaula dularfull ljósmerki sem
almenningur víða um lönd hefði séð
á lofti, en slíkur ljósagangur hefði
einmitt fylgt dularfullu flugvélinni í
Reykjavík. Verður ekki annað sagt en
að niðurstaðan hafi komið á óvart:
„Tilgátur vísindamannanna eru
því þær, að ljós þessi sjeu sendingar
frá Marsbúum til jarðarinnar, ljós-
merki sem þeir senda hingað til þess
að gera vart við sig. – Það kom fyrir
í fyrra, að ljós þessi urðu svo sterk,
að albjart varð á dálitlu svæði um
dimma nótt. En í ár hafa menn sjeð
ljóskúlur þessar falla til jarðar, og
fundið af þeim brotin.
Álíta þeir menn sem gefið hafa
þessu gaum, að Mars-búar muni
vera úrkula vonar um að fá nokkurt
svar við ljósbylgjuskeytunum, og hafi
þeir því nú upp á síðkastið byrjað á
því að skjóta kúlum til okkar hjer á
jörðinni.“
Það skyldi þó aldrei vera svo að
Marsbúar hafi gert ítrekaðar og
misheppnaðar tilraunir til að fanga
athygli Reykvíkinga á haustmán-
uðum 1928?
franSkir víSindamenn
hefðu rannSakað í
þaula dularfull
ljóSmerki.
1 1 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r36 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
1
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
C
-D
F
4
0
1
C
6
C
-D
E
0
4
1
C
6
C
-D
C
C
8
1
C
6
C
-D
B
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K