Fréttablaðið - 11.03.2017, Síða 96

Fréttablaðið - 11.03.2017, Síða 96
verður haldinn fimmtudaginn 23. mars nk. kl. 18:00. Fundurinn er haldinn samtímis í BORGARTÚNI 30 (6. HÆÐ), REYKJAVÍK og SKIPAGÖTU 14, AKUREYRI. AÐALFUNDUR BYGGIÐNAR – FÉLAGS BYGGINGAMANNA Venjuleg aðalfundarstörf. Sjá nánar á heimasíðu Byggiðnar, byggidn.is. Stjórnin. Málsvari byggingamanna Þann 29. september árið 1928 birtist skringileg klausa í Morgunblaðinu: „Alltaf fjölgar þeim, sem þykjast hafa sjeð hina merkilegu flugvjel. Fyrra föstudag var bifreið á leið hjeðan suður eftir. Þegar hún kom í sunnan- verða Öskjuhlíð tóku farþegar og bif- reiðastjóri eftir einkennilegri sjón: Sýndist þeim sem flugvjel væri á suðurleið yfir Skerjafjörð og fór hratt. Dró hún á eftir sjer reykhala ein- kennilegan, og mátti sjá á honum að vjelin fór ekki beint, því að reykurinn var í ýmsum hlykkjum.“ – Skömmu síðar hvarf flugvélin sjónum fólksins og varð það hennar ekki aftur vart. Mun atburðurinn hafa átt sér stað um klukkan hálf sjö að kvöldi. Þetta var ekki eina fréttin í Morg- unblaðinu þessa haustdaga 1928 sem fjallaði um flugvélina dularfullu eða „furðuflugvélina“ eins og blaðið kallaði hana. Raunar var um fátt meira talað í Reykjavík um þessar mundir og lumuðu flestir á sinni skýringu á þessu skringilega fyrir- bæri. En hvað var svona dularfullt við flugvél á sveimi yfir Skerjafjörð sem kallaði á fréttir í dagblöðum og setti bæjarlífið á annan endann? Jú, hafa verður í huga hvenær þessir atburðir áttu sér stað. Vorið 1928 hófst önnur tilraun til reksturs atvinnuflugs á Íslandi. Tæpum áratug fyrr, í marsmánuði 1919, hafði Flugfélag Íslands (hið fyrsta í röðinni) verið stofnað í höf- uðstaðnum. Það festi kaup á tveggja manna tvíþekju sem stóð fyrir flug- sýningum og útsýnisflugi frá Vatns- mýrinni í tvö sumur. Seinna árið var flugmaður félagsins Vestur-Íslend- ingurinn Frank Fredericksen, sem kunnastur er úr íþróttasögunni sem leiðtogi Fálkanna, vesturíslenska íshokkíliðsins sem hlaut gullverð- launin á Ólympíuleikunum sama ár. Þessi fyrsta tilraun til flugs varð skammvinn enda fremur til skemmt- unar en í hagnýtum tilgangi. Meiri vonir voru hins vegar bundnar við annað Flugfélag Íslands, sem stofnað var með tilstyrk hins opin- bera og fjölda áhugamanna um flug- samgöngur árið 1928. Alexander Jóhannesson háskólaprófessor var Draugaflugvélin Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um reykvíska ráðgátu. helsti hvatamaður að stofnun félags- ins, sem hugsað var til flutninga með farþega og póst auk þess að vonir voru bundnar við að flugvélar hentuðu til síldarleitar. Fengnar voru nokkrar Junkers-vélar sem sinntu fjölda verk- efna á árunum 1928-31, þar til félag- ið lenti í fjárhagsvandræðum í heim- skreppunni og lagði upp laupana. Sumarið 1928 var aðeins ein vél í ferðum á vegum Flugfélagsins og hlaut hún nafnið Súlan. Eins og gefur að skilja vakti hún mikla athygli landsmanna og sennilega hefur hvert einasta mannsbarn í Reykjavík veitt henni athygli þarna um sumarið. Nema hvað, í septemberbyrjun hafði Súlan verið tekin í sundur og send úr landi, enda ekki talið vænlegt að halda úti flugsamgöngum yfir vetrar- mánuðina. Grunsamlegur gestur En hver var þá flugvélin sem bíl- farþegarnir á Öskjuhlíð sáu svífa yfir Skerjafirðinum í lok septem- ber? Enga aðra flugvél var að finna í landinu og þótt erlendir flugkappar hefðu slæðst hingað, sá fyrsti frá Orkneyjum árið 1924, þá var slíkt sárasjaldgæft. Hvers vegna ætti líka nokkur maður að fljúga til landsins á laun? Eins og fram kom í fréttinni var þetta ekki fyrsta skiptið sem sást til flugvélarinnar dularfullu. Nokkrum dögum fyrr hafði Morgunblaðið sagt frá því að tvær stúlkur á gangi nálægt Þormóðsstöðum við Skerja- fjörð hafi veitt athygli ljósum er bar rétt yfir Skildinganeshólana. Hafi þær talið um bíl að ræða, þegar ljósin hafi skyndilega tekist á loft og svifið í norður til bæjarins en síðan snúið við og horfið út á Flóann. Mátti skilja af frásögninni að þessi vitnisburður væri aðeins sá nýjasti af fjölmörgum, sem allar bæru að sama brunni: að furðuflugvél væri á sveimi umhverfis Reykjavík. Flýgur fiskisagan og fljótlega komust Reykjavíkurblöðin á snoðir um að flugvélarinnar dularfullu hefði orðið vart uppi í Hvalfirði þá um sumarið. Maður nokkur var þar við heyskap og hafðist við í tjaldi skammt frá sjó. Nótt eina vaknaði hann við umgang og veitti athygli aðkomumanni skammt frá tjaldinu. Hann elti gestinn, en sá tók þá til fótanna og hljóp að flugvél á floti í sjávarmálinu og hvarf á henni upp í loftin blá! Blaðamaður vikublaðsins Varðar velti fyrir sér ráðgátunni í blaðinu þann 6. október. Sagði hann vélina sjást á öllum tímum sólarhringsins. Sannorðir menn og greinargóðir hefðu borið vitni um þessa sjón og oft „hefir það komið fyrir, að ungir elskendur, sem notið hafa kyrrðar- innar á síðkveldum, hafa hrokkið saman við að tvær ógnarglyrnur hafa starað niður til þeirra, utan úr helmyrkvum fjarskanum“. Velti blaðamaðurinn upp nokkr- um helstu tilgátum um hvernig á þessu öllu gæti staðið. Einhverjir teldu að um væri að ræða leiðangur erlendra vísindamanna eða fulltrúa erlendra hervelda sem hér væru við njósnir. Aðrir giskuðu á að smyglarar væru á ferðinni og þá líklega með ólöglegt áfengi, enda áfengisbann í gildi í landinu. Enn aðrir hölluðust að yfirnáttúrulegum skýringum, ein- hvers konar finngálkni eða nútíma Fróðárundrum. Þýskur flugstjóri Flugfélags Íslands, Walter að nafni, var spurður út í furðuflugvélina og taldi hann að um ofsjónir hlyti að vera að ræða. Taldi hann útilokað að erlendir flugmenn legðu leið sína alla leið til Íslands á þessum árstíma, að frásagnirnar væru allar með miklum ólíkindum og að alltof kostnaðarsamt væri að notast við flugvélar til áfengissmygls. Horfin sporlaust Þegar líða tók á október hættu að berast nýjar fregnir af flugvélinni dularfullu og aldrei fékkst svar við því hvað bjó í raun og veru að baki öllum vitnisburðunum. Freistandi er þó að giska á að þar hafi farið saman blanda af auðugu ímyndunarafli og hefðbundnum hrekkjabrögðum, enda löngum verið vinsælt að skrökva að blaðamönnum. Athyglisvert er að Morgunblaðið virðist hafa tekið flugvélarfregnirnar alvarlegar en hin Reykjavíkurblöðin, sem voru mun varfærnari í umfjöllun sinni og skrifuðu helst um málið í hálfkæringi. Frásagnir sjónarvotta áttu hins vegar greiða leið á síður Moggans. Síðar örlaði á því að gantast væri með trúgirni Morgun- blaðsmanna í þessu efni, til dæmis í skopritinu Speglinum sem kall- aði furðuflugvélina eftirlætisdraug Morgunblaðsins, sem „lætur sjer mjög ant um hann, og gerir veður út af í hvert skifti sem hann sjest“. Morgunblaðið lét slíka kerskni sem vind um eyru þjóta og næstu mánuðina birti það fáeinar fregnir af dularfullum flugvélum sem sést hefðu víðs vegar um Evrópu. En í ársbyrjun 1929 þóttist það loksins hafa ráðið gátuna. Upplýsti blaðið að franskir vísindamenn hefðu rann- sakað í þaula dularfull ljósmerki sem almenningur víða um lönd hefði séð á lofti, en slíkur ljósagangur hefði einmitt fylgt dularfullu flugvélinni í Reykjavík. Verður ekki annað sagt en að niðurstaðan hafi komið á óvart: „Tilgátur vísindamannanna eru því þær, að ljós þessi sjeu sendingar frá Marsbúum til jarðarinnar, ljós- merki sem þeir senda hingað til þess að gera vart við sig. – Það kom fyrir í fyrra, að ljós þessi urðu svo sterk, að albjart varð á dálitlu svæði um dimma nótt. En í ár hafa menn sjeð ljóskúlur þessar falla til jarðar, og fundið af þeim brotin. Álíta þeir menn sem gefið hafa þessu gaum, að Mars-búar muni vera úrkula vonar um að fá nokkurt svar við ljósbylgjuskeytunum, og hafi þeir því nú upp á síðkastið byrjað á því að skjóta kúlum til okkar hjer á jörðinni.“ Það skyldi þó aldrei vera svo að Marsbúar hafi gert ítrekaðar og misheppnaðar tilraunir til að fanga athygli Reykvíkinga á haustmán- uðum 1928? franSkir víSindamenn hefðu rannSakað í þaula dularfull ljóSmerki. 1 1 . m a r s 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r36 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 1 1 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 1 2 0 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 6 C -D F 4 0 1 C 6 C -D E 0 4 1 C 6 C -D C C 8 1 C 6 C -D B 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 2 0 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.