Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2016, Blaðsíða 44
Helgarblað 22.–25. janúar 20166 Betra líf - Kynningarblað
Bakað fyrir björgunarsveitir
L
andsbrauð er samstarfs
verkefni Ölgerðarinnar,
Slysavarnafélagsins Lands
bjargar og íslenskra bakara.
Landsbrauðið er til sölu í bak
aríum um allt land og fær Slysavarna
félagið Landsbjörg 30 krónur af
hverju seldu brauði í sinn hlut. Að
sögn stjórnenda Slysavarnafélags
ins Landsbjargar þá hefur verk efnið
reynst þeim afar vel þar sem hver
króna skiptir máli en Landsbrauðið
var sett á markað í september síðast
liðnum.
Um er að ræða gómsætt trefjaríkt
brauð með höfrum, byggi og rúgi og
hefur því verið tekið vel af almenn
ingi. Vonast er til að Landsbrauðið
verði varanlegur hluti af innkaupa
kerru landsmanna sem bæði kunna
að meta gott brauð og vita hversu
miklu máli björgunarsveitirnar
skipta fyrir öryggi fólks hér á norður
slóðum.
Mikilvægur liður í slysavörnum
Landsbrauðið er einnig liður í
slysavörnum því á umbúðir brauð
anna eru prentaðar öryggisupplýs
ingar sem allir ættu að þekkja og
kunna. „Það er gott að fá tækifæri á
að setja árstíðabundnar forvarnar
merkingar á brauðin, eins og til
dæmis að minna fólk á að nota hjálm
þegar það fer út að hjóla á sumrin,“
sagði Smári Sigurðsson, formaður
Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Smári segir verkefnið skipta
björgunarsveitirnar miklu máli:
„Bæði léttir það rekstur félagsins
eftir annasöm misseri undanfarið en
ekki síður þá eflir það forvarnastarf
og upplýsingagjöf með skilaboðum á
umbúðum. Slysavarnafélagið Lands
björg og Ölgerðin hafa áður átt í far
sælu samstarfi og við fögnum þessu
framhaldi á því. Við erum mjög
ánægð með þetta samstarf og hlýhug
í okkar garð,“ sagði Smári og bætti
við að þetta væri verkefni sem væri í
hag allra, fólk geti snætt gómsætt og
hollt brauð og styrkt lífsnauðsynlegt
málefni á sama tíma.
Forréttindi að vinna
með fagmönnum
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Öl
gerðarinnar, sagðist mjög ánægður
með verkefnið. ,,Við hjá Ölgerðinni
leggjum mikla áherslu á vöruþróun
og að fá að vinna slíka vinnu með fag
mönnum eins og íslenskum bökurum
eru forréttindi. Ölgerðin hefur unnið
með Landsbjörg í öðrum verkefnum
sem hafa gengið vel og við erum stolt
af því að koma að þessu samstarfi,“
sagði Andri. Fyrir nokkrum árum
stóð Ölgerðin fyrir átaki til hjálpar
Slysavarnafélaginu Landsbjörg þar
sem ákveðin upphæð af hverri seldri
dós af malti rann beint til björgunar
sveitanna.
„Þetta samstarf er frábær viðbót
við hollustuvakningu hjá bökurum.
Strax upp úr 2009 fóru bakarar að
vekja athygli á heilkornavörum með
heilkornalógói sem jafngildir skráar
gati næringarlega. Við höfum fylgst
með sölu á heilkornarúg og heil
kornahveiti rjúka upp síðan þá.
Landsbrauðið ber merkið trefjaríkt því
það er 6,6% trefjar. Það er gaman að
vinna svona verkefni sem bæði stuðl
ar að hollari matarvenjum og styrkir
björgunarsveitirnar okkar í leiðinni,“
segir Andri.
Björgunarsveitarfólk þarf að vera
vel nestað þegar farið er í lengri útköll
og má gera ráð fyrir að Landsbrauðið
verði í mörgum bakpokum þeirra það
sem af líður vetri og í framtíðinni. n