Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1972, Qupperneq 10
hvers skólaárs skal vei'a 5 vikna bóklegt nám-
skeið með 130—140 kennslustundum. Námsefni,
sem þá er eftir, skal dreifa á 7—8 mánuði.
Kenndar skulu eftirfarandi námsgreinar:
Almenn hjúkrunarfræði:
Bókleg kennsla og sýnikennsla 28 stundir
Verklegar h j úkrunaræf ingar 42 —
Líffæra- og lífeðlisfræði..... 26 —
Heilsufræði og heilsuvernd .... 30 —
Frumatriði í skyndihjálp...... 8 —
Hjúkrun gamalmenna............... 8 —
Siðfræði ....................... 10 —
Sjúkdómafræði .................. 12 —
Sálarfræði ..................... 12 —
Næringarefnafræði, sérfæði . . 8 —
Starfsstellingar ................ 4 —
Námsleiðbeiningar, fyrirlestrar,
fræðslukvikmyndir, námsferða-
lög o. fl....................... 20 —
Alls 208 stundir
7. gr.
Próf skulu vera í þremur námsgreinum:
Hjúkrunarfræði, líffæra- og lífeðlisfræði og
heilsufræði og heilsuvernd.
Skrifleg próf skulu vera í líffæra- og lífeðlis-
fræði og heilsufræði og heilsuvernd, er kennslu
í þeim námsgreinum er lokið.
Skrifleg og verkleg próf í hjúkrun skulu fara
fram í lok skólaársins.
Einkunnir skulu gefnar í heiluni og hálfum
tölum frá 0 og upp í 10.
Til að standast próf þarf einkunnina 5 í öllum
greinum.
8. gr.
Heilbrigðisráðuneytið skipar prófdómara eða
samþykkir tillögur forstöðukonu um prófdóm-
ara.
9. gr.
Nemendur eru í verknámi á hinum ýmsu
deildum sjúkrahússins. Að lokinni námsdvöl á
sérhverri deild fær nemandinn einkunn, er
deildarhj úkrunarkona gefur.
10. gr.
Nemendur skulu fá greidd laun, sem svarar
til 60% af byrjunarlaunum sjúkraliða.
Veikindaleyfi skal vex-a 2 vikur og sumar-
leyfi í samræmi við lög um orlof.
11. gr.
Nemandi sem stenzt próf, hlýtur prófskírteini
og starfsheitið sjúkraliði með þeim réttindum
og skyldum, er því fylgir lögum samkvæmt.
Sjúkraliði hefur rétt til að vinna hjúkrunar-
störf í samræmi við ákvæði námsskrár um
námsefni, en ekki önnur störf. Honum er óheim-
ilt að stunda sjálfstæð hjúkrunarstörf.
Ráðherra getur og veitt sjúkraliðum með er-
lent sjúkraliðanám ríkisviðurkenningu og leyfi
til starfa.
IV. KAFLI
Um rekstur skólans.
12. gr.
Ríkissjóður greiðir laun fyrir kennslu og
próf. Sjúkrahúsið greiðir námslaun, kennslu-
efni og kennsluaðstöðu.
V. KAFLI
Starfssvið sjúkraliöa.
13. gr.
Sjúkraliðar skulu starfa undir stjórn hjúkr-
unarkonu.
Störf sjúkraliða í sjúkrahúsum.
Umbúnaður. Búið upp autt rúm. Búið um lín
á rúmuni þeirra sjúklinga, sem minna eru veik-
ir. Aðstoð við umbúnað og skiptingu á mikið
veikum sjúklingum.
Sjúklingum þvegið um-andlit og hendur. Hár-
hirðing, munnhirðing, neðanþvottur, fótahirð-
ing. Sjúklingar baðaðir í baðkeri og í rúmi. Að-
stoð við að baða mikið veika sjúklinga í rúmi.
Hitamæling. Púlstalning. Blóðþrýstingsmæl-
ing.
Varnir gegn legusárum.
Fylgzt með líðan sjúklinga.
Sjúklingum hjálpað á fætur og hagrætt í stól.
Kalli sjúklinga svarað og flutt skilaboð.
Gefin og tekin bekja. Tekin og merkt sýnis-
horn af þvagi og saur. Gefin stólpípa.
Aðstoð við frami'eiðslu matar. Sjúklingum
hagrætt fyrir og eftir máltíð. Sjúklingar mat-
aðir, sem ekki geta borðað sjálfir.
Aðstoð við umbúnað líks.
Umbúðir gerðar.
Tekið við blómum og öðru til sjúklinga og
gestum þeirra leiðbeint.
Notkun ýmissa hjálpargagna og hirðing á
þeim.
Hirðing á sjúkrastofum, skolherbergjum,
baðherbergjum og líni. Hreinsun ýmissa hjúkr-
unargagna. Hirðing á blómum sjúklinga, blóma-
vögnum og blómaskolum.
Sjúkraliöar mega ekki taka til eða gefa lyf
i sjúkrahúsum.
VI. KAFLI
14. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heim-
ild í 8. gr. hjúkrunarlaga, nr. 42 12. maí 1965,
öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi
reglugerð nr. 325 frá 12. nóvember 1965.
I heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyfinu, 29.
desember 1971.
Magnús Kjartansson. Pá!l Sigurðsson.
44 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS