Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1972, Blaðsíða 44
HÓLFIÐ
Hjúkrunarkonur! Fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja
hréfunum til okkar, þó að skammstöfun eða dulnefni sé notað
sem undirskrift. Bréfin skuluð þið senda í pósthólf 5022, R.v.k.
— Með kærri kveðju. Ritstjórnin.
Til Pósthólfsins.
Mig langar til að koma á framfæri
ágætri hugmynd, sem örva mætti
hjúkrunarkonur til að halda við fag-
legri þekkingu sinni.
Algengt er, að þau tengsl, sem
skapast meðal nemenda innan veggja
Hsí, haldist, eftir að skólinn er
kvaddur. Haldin eru „hollkvöld", far-
ið saman í leikhús, á árshátíðir, et-
inn þorramatur, saumað, talað sam-
an o. s. frv.
Eitt „holl“ veit ég um, sem s.l. ár
hefur haft mánaðarlega fræðslu-
kvöld, þar sem tekin hefur verið fyr-
ir líffæra- og lífeðlisfræði (anatomi
og fysiologi) og þessi fög rifjuð upp.
Hefur þá verkaskipting orðið slík,
að ein úr hópnum hefur skýrt náms-
efnið, sem hún hefur kynnt sér áður.
Hefur þessi tilhögun gefizt vel og
umræður verið líflegar og árangur
góður.
Með kveðju,
Ein að norðan.
MlKID liefur verið rætt og ritað uin geð-
heilbrigðismál þjóðarinnar, og ber öll-
um saman um, að málefni geðsjúkra bafi
alltaf setið á bakanum og sé ómælt það
tjón, sem þegar er orðið í þessum mál-
efnum.
1 marzmáuuði s. 1. var í einu dag-
ldaði borgarinnar birt stutt og ágæt
grein um núverandi ástand í þessum
málum. Var m. a. sagt, að eina meiri-
báttar framförin á siðustu 20 árum
væri stofnun geðdeildar Borgarspitalans
og Barnaspítala Hringsins.
Nú langar mig að bregða upp ann-
arri mynd af framförum, sem orðið liafa
í geðheilbrigðismálum, þar sem ineðal
annarra liópur hjúkrunarkvenna á þakk-
ir skyldar fyrir stórt átak.
I tilefni af 10 ára afmæli frá braut-
skráningu í Hjúkrunarskóla íslands not-
uðum við tækifærið, nokkrar hjúkrunar-
konur, og óskuðum eftir við forstöðu-
konu Kleppsspítalans að fá að skoða
spítalann, og var sú ósk fúslega upp-
fyllt.
Við urðuin ekki fyrir vonbrigðum.
Hvar sem litið var blöstu við breyt-
ingar. Kleppsspítalinn var að breytast í
„— Svo ég sugði við hann: Þú færð ekki að fara fram úr til
að æfa yoga meðan þú dvelur hér.“
stórt heimili, samfélag, þar sem allir,
starfslið og sjúklingar, leggja áherzlu á
að vera jafningjar og virðast aðdáan-
lega samtaka um að reyna að ná eins
góðum heimilisanda og mögulegt er.
Sýnilegt er, að innan veggja Klepps-
spítalans er verið að byggja upp með-
ferð, sem kölluð er í dag hið „sállækn-
andi samfélag“, en ágæt grein um þetta
efni þirtist í 4. tbl. 1970, skrifuð af
Þóru Arnfinnsdóttur, geðbjúkrunarkonu.
Hinar veraldlegu breytingar, sem
alls staðar sáust, svo sem ný húsgögn,
endurbættar dagstofur, baðherbergi
o. s. frv., sem þakka þer auknum fjár-
veitingum ríkisvaldsins, hefðu skammt
dugað til vellíðunar sjúklinga og starfs-
liðs, ef ekki liefði komið til sú með-
ferð, sein að ofan er getið um.
Marga vistmenn þekktum við, frá því
við vorum nemendur, en margir höfðu
útskrifazt, m. a. til dvalarheimila, svo
sem til Guðríðar Jónsdóttur, fyrrum for-
stöðukonu Kleppsspítalans, sein starf-
rækt hefur dvalarheimili fyrir fyrrver-
andi vistmenn Kleppsspítalans s. 1. 3—
4 ár.
Með þessuin orðuin vildi ég aðeins
minna á, að þegar talað er um fram-
farir í geðlieilbrigðismálum, má ekki
aðeins draga fram, liver aukning á
sjúkrarúmum liefur orðið, en gleyma
þessum mikilvæga þætti, en það er með-
ferð geðsjúkra í dag, því að í fáum
greinum imian þjónustunnar við liina
sjúku liafa orðið verulegri framfarir
nú seinni ár.
Að síðustu viljum við 10 ára lijúkr-
unarkonur þakka fyrir okkur, um leið
og við berum fram þakkir til allra
þeirra, sem svo vel lilúa að gönilu
vinunum, sem við eignuðumst, þegar
við vorum nemendur í Kleppsspítalanum
fyrir 11 árum.
Alda Halldórsdóttir.
— Ég er búinn að útbúa lista
yfir barnasjúkdóma, og ef allt
gengur eftir áætlun, verð ég
ekki friskur fyrr en á jólum.
74 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS