Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1972, Blaðsíða 41

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1972, Blaðsíða 41
Hún sagði, að hjúkrunarkona sú, er starfaði með henni, hefði sagt sér, að l'íku skipulagi hefði verið haldið meðan hún var fjarverandi og venjulega. Hún kvað þær venjulega að- eins hafa getað fengið frí aðra hvora helgi. Hún sagði, að hún hefði venjulega unnið frá 7.30— 3.30 síðdegis í dagvinnu, en það hafi komið fyrir, þegar hjúkr- unarkonan, sem vann á móti henni, var í fríi, að hún hafi orðið að vinna tvískipt vegna lyfjagjafa kl 18.00 en hjúkrun- arkonum beri skylda til að sinna þeim. Þegar unnið er tvískipt sé vinnutími frá 7.30—12.30 síð- degis og aftur frá 15.30—19.00. Þetta hafi verið einu sinni eða tvisvar í viku. Það hafi getað komið fyrir, þegar vel var mannað, að þær hafi getað feng- ið aðstoð frá öðrum deildum, þannig að þetta hafi aðeins þurft að vera einu sinni í viku. Vinnutilhögun sú, sem lýst sé hér að ofan, hafi líka gilt um helgar og þaðan komi álagstím- arnir, sem um er stefnt. Hún sagði, að það væri hámark að taka frí aðra hvora helgi og sú, er leysti hana af, hafi sagt, að hún hafi gert það í flestum tilvikum. Hún kvað ekki mögu- legt að skipuleggja þessa vinnu öðruvísi. Lagt hefur verið fram vott- orð forstöðukonu Kleppsspítala, Guðrúnar Guðnadóttur, og segir þar: „Það vottast hér með, að frú Kristín Þorsteinsdóttir, hjúkr- unarkona, fékk barnsburðarfrí fi'á Kleppsspítalanum samkv. i’éttindum ríkisstarfsmanna frá 9- des. 1968 til 9. marz 1969.“ Þann 2. marz s. 1., þá er taka útti málið fyrir, var ekki sótt Þing af hálfu varnaraðila og engin forföll boðuð, hafði þing- Haldið þó verið boðað í þing- haldi þann 25. febrúar s. I. Af hálfu sóknaraðila voru lögð fi'am nokkur skjöl, en síðan mnti dómarinn hann eftir því, hvort hann teldi sig þurfa frest til þess að leggja fram sókn í málinu, sbr. 2. mgr. 118. gr. 1. nr. 85/1936. Lögmaðurinn kvað sig ekki þurfa á fresti að halda í þessu skyni, en kvaðst vilja gefa varnaraðil'a kost á að mæta síðar og að málið yrði þá flutt munnlega. Dómarinn sá enga ástæðu til þess að tefja málið af þessum sökum, þar sem varnaraðili hefði þegar átt þess kost að koma að gögnum í málinu og sinnti ekki löglegum boðunum til þinghalda. Málið var síðan dómtekið með vísun til 2. mgr. 118 gr. 1. nr. 85/1936 og verð- ur það því dæmt eftir fram- lögðum skjölum og skilríkjum sækjanda og með tilliti til þess, sem komið hefur fram af hálfu varnaraðila. Samkvæmt 17. gr. 1. nr. 38/ 1954, sbr. 2. mgr. 5. gr. laga nr. 55/1962, skal ákveða með reglu- gerð, hvernig fari um launa- greiðslur til kvenna í fjarvist- um vegna barnsburðar, og gild- ir um það efni reglugerð nr. 87/1954. I 11. gr. þeirrar reglu- gerðar segir: „Vegna baras- burðar skal kona eiga rétt á að vera fjarverandi með fullum launum í samtals 90 daga. Séu lengri frátafir nauðsynlegar að dómi lækna, skal meta þær eftir ákvæðum um veikindadaga, sbr. 6. gr.“ Rétt þykir að leggja þann skilning í þetta ákvæði, að það taki auk almennra fastra launa til vökuvinnuálags, þegar um þá skipan starfa er að ræða. Það þykir nægjanlega fram komið af framburði sóknaraðila og vottorði forstöðukonu Kleppsspítala, að í því tilviki, sem hér um ræðir, hafi á þess- um tíma ekki önnur starfsskip- an verið möguleg. Þykir því ekki hér þurfa að huga nánar að þeirri málsástæðu varnar- aðila, sem að samningu varð- skrár lýtur. Framlögð skjöl og skilríki þykja í samræmi við kröfur sóknaraðila. Kröfur sóknaraðila eru teknar til greina. Málskostnaður ákveðst kr. 5.000,00. Dómari máls þessa var Hrafn Bragason. D ó m s o r ð : Stefnandi, fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs, greiði stefnanda, Kristínu Þorsteinsdóttur, kr. 5.171,50 með l°/o ársvöxtum frá 9. marz 1969 til greiðsludags og kr. 5.000,00 í málskostnað — allt innan 15 daga frá lögbirt- ingu dóms þessa að telja, að viðlagðri aðför að lögum. Það skal að lokum tekið fram, að dómnum var ekki áfrýjað, er þetta því endanlegur dómur. □ Xokkur orA um lijúkruu sjúklinga, simii oriHA liafa fyrir heilaskmmidum. Frh. af bls. /5 faldar athuganir og fljótgerð- ar, en mjög mikilvægar. 6) Þá þarf að fylgjast með hitastigi. Heilaskemmdir geta valdið háum hita, sem erfitt er að ráða við, sé ekki spornað við í tíma. 7) Mæla þarf þvagútskilnað og eðlisþyngd á 2ja tíma fresti og skrá nákvæmlega, þar sem vökvajafnvægið er oft skert. 8) Ef sjúklingurinn fær krampakast, skal skrá, hvar kramparnir hófust, hvernig þeir breiddust út og hve lengi krampakastið stóð. 9) Þó að þessir sjúklingar verði órólegir, ber að forðast eftir megni að gefa þeim róandi lyf, og „ópíum-lyf“ eru forboð- in, þar sem mjög erfitt er að fylgjast með breytingum hjá sjúklingum eftir slíkar lyfja- gjafir. Hér hefur verið reynt að setja fram einfaldar reglur um hjúkr- un sjúklinga, sem orðið hafa fyrir heilaskaða. Getur ráðið lífi og heilsu þessara sjúklinga, að þeim sé fylgt. □ TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.