Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1972, Blaðsíða 18

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1972, Blaðsíða 18
MINNING Gróa Herdís Bjarnadóttir hjúkrunarkona Fædd 10. október 1947 Dáin 2. febrúar 1972 Fyrir tæpum 7 árum, eða í nóvember 1965, hófst nýr forskóli í Hjúkrun- arskóla íslands og- voru mættar 22 stúlkur til að hefja þar hjúkrunar- nám. Þetta var ósköp venjulegur hópur og ekki frábrugðinn öðrum, sem þarna höfðu verið við nám. í þessum hópi byrjaði Gróa Herdís nám sitt í skólanum, nýorðin 18 ára og full af áhuga og eftirvæntingu eins og við allar hinar. Ekki vorum við búnar að vera lengi saman, þegar við uppgötvuðum Dísu. Fyrir utan að vera bráðgreind hafði hún einstak- iega skemmtilega framkomu, sem einkenndist af því að vera í senn barnaleg og fullorðinsleg. Hún liafði líka mikla kímnigáfu. Það voru ekki fá skiptin, sem hún kom bekknum til að hlæja með því að segja sína meiningu og jafnvel hugsanir, án þess að það kæmi beint efninu við, sem um var verið að ræða í það og það skiptið. Alltaf gat hún út- skýrt torskilda hluti fyrir okkur þannig, að allir skildu, var það henni leikur einn. Hinn 6. marz 1969 útskrifaðist Dísa með prýðiseinkunn, og hélt hún ræðu fyrir okkar hönd og þakkaði öllum, sem stóðu að menntun okkar. Við bekkjarsystumar trúum því varla enn, að Dísa sé horfin okkur að öllu. Eftir námið starfaði hún á Barnaspítala Hringsins, en hélt síðan til Kaupmannahafnar og vann á Rigshospitalet til dauðadags. Framtíðardraumur hennar var að verða hjúkrunarkennari, og þar hefði Hjúkrunarskólinn sannarlega fengið góðan starfskraft. Það er því ekki aðeins höggvið stórt skarð í okkar hóp, heldur hefur öll hjúkrunar- stéttin misst mikið. Foreldrum hennar, bróður og ömmu sendum við okkar innilegustu hluttekningu. Þessi hinzta kveðja okkar er fátækleg, en minningin um góða vinkonu og bekkjarsystur mun aldrei gleymast. Bekkjarsystur. £ Gróa Herdís Bjarnadóttir var fædd 10. október 1947 í Reykjavík, dóttir Elínar Þorgerðar Magnúsdóttur og Bjarna Guðmundssonar. Hún ólst upp hjá móður sinni og ömmu, Margréti Björnsdóttur. Eg þekkti Dísu frá því að hún fæddist í þennan heim og horfði á hana vaxa upp og verða að manneskju. Hún var ákaflega tápmikið og dug- legt barn, vissi strax hvað hún vildi, og stefndi að ákveðnu marki. Lífs- B
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.