Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1972, Qupperneq 20

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1972, Qupperneq 20
á, sýndi hún mestan styrk, og þó fokið sýndist í öll skjól lagði hún sig fram engu að síður. Hún gaf engan upp á bátinn, hún gafst aldrei upp. Hún var glaðleg í viðmóti, hafði ætíð gamanyrði á vörum en aldrei varð græska fundin í kímninni. Hún vann langan dag. Alla morgna var hún komin til sjúklinga sinna á sjöunda tímanum, helga daga sem virka. Vinnudagur hennar náði yfir tvær vaktir hj úkrunarkvenna, eins og þær eru í dag, og stundum meira, ef einhver sjúklinga hennar var þungt haldinn. Og ætíð var hún glöð, jafnt seint á kvöldi og að morgni dags, en sæi vökult auga hennar mis- fellur í starfi einhvers, eða eitthvað, sem að hennar dómi var vanræksla eða jaðraði við það, þá gat hvesst, hver sem í hlut átti. En aldrei erfði hún það við nokkurn mann. Hjúkrun var köllun hennar, og þó köllunin ein nægi engum til þess að leysa starf vel af hendi, þá eru þeir líklegri til afreka, sem eru kallaðir, en hinir, sem vinna verk sitt til þess eins að hafa af því daglega fæðslu eða afla sér auðs. Hún var ekki ein þeirra, sem „alheimta daglaun að kveldi". Það, sem hún bar úr býtum á veraldarvísu, voru ígangsklæði, rúm til þess að sofa í, oft skammar nætur, og viðurværi skammtað af hófsemi og sneytt öllum íburði. Umbun hennar var sú að hafa látið gott af sér leiða, að hafa verið þeim stoð og hjálp, sem þurftu þess. Síðustu árin fékkst hún ekki við hjúkrun. Ekki settist hún samt í helgan stein, heldur lagði hönd að því, sem spítalanum var til þurftar og kraftar hennar leyfðu. Hún var dæmigerð reglusystir, sem varði lífi sínu fyrir aðra, ekki með hangandii hendi og eftirtölum, heldur fann hún í því fyllingu lífs síns. Hún átti sinn þátt ómældan í því, að Jósefs- systur hafa getað rekið Landakotsspítala fram á þennan dag, þó aldrei hafi það verið séð við þær af yfirvöldum og þeim ætíð verið skammtað mun minna til rekstursins en öðrum spítölum sambærilegum af fé skatt- borgarans. María Ahling fæddist í Quakenbriick hjá Osnabrúck 21. september 1882. Kornung missti hún báða foreldra sína. Hún gekk í systrareglu Heilags Jósefs 22ja ára að aldri og vann klausturheit sitt endanlegt 19. marz 1915. Hún kom hingað 1917 og var hjúkrunarkona í Landakots- spítala þar til 1957, að hún hætti þeim störfum, þá hálfáttræð. — Hún andaðist í hópi systra sinna snemma morguns 21. marz 1972. Henni hlotnaðist það hnoss að losna við erfitt dauðastríð. Hún var við fulla rænu til hinztu stundar, lagðist út af og var örend. Þetta er stutt ævisaga og sýnist ekki viðburðarík, mælt á kvarða þeirra, sem sækjast eftir prjáli heimsins. En líf hennar var ríkt. Hún kynntist fleiri flötum mannlegs lífs en margur, sem meira hefur umleikis. Hún liafði staðið við margan sjúkrabeð, þar sem fólk í broddi lífsins háði baráttu við dauðann, grimman og miskunnarlausan, sigraði stundum, en varð stundum að lúta í lægra haldi, líka við beð öldungsins, þar sem dauðinn kom eins og vinur og endurlausnai’i. Á þessum stundum, sem erfiðastar eru, stóð enginn einn, sem hafði þessa hlýju, traustu, æðru- lausu konu við rúmstokkinn. Mér finnst þessi kona, komin út hingað af Saxlandi, hafa verið fs- lendingum þarfari í hljóðlátri önn en margur sá, sem gengur á torg og ber bumbur fyrir sjálfum sér. Ég þakka áratuga kynni, sem aldrei féll á skuggi. Requiescat in pace. Bjarni Jónsson.

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.