Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Page 13

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Page 13
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993 samskiptum (Aldís Jónsdóttir, Guðný B. Guð- jónsdóttir, Katrín Sigurðardóttir, Rannveig Sigurðardóttir og Sigrún G. Finnbogadóttir, 1989; Moore, 1989; Salyer og Stuart, 1985). Skortur á áreitum eða skyndoði (sensory deprivation) er þekkt hjá mikið veikum einstakl- ingum. Má þar nefna takmörkun á lyktar-, bragð-, sjón- og snertiskyni. Margir telja að kær- leiksrík snerting starfsfólks, sem annast mikið veika sjúklinga, sé of sjaldgæf (Schoenhofer, 1989; Anna R. Sverrisdóttir o.fl., 1990) þrátt fyrir að mikilvægi snertingar fyrir eðlilegan þroska og vellíðan manna og dýra sé viðurkennd. Sjúkl- ingur var nuddaður varlega og snertur á 2-4 klst. fresti (s.s. hendur, handleggir) allan sólarhring- inn og var tilgangur þess og mikilvægi skýrt fyrir ættingjum. Enn fremur eru áhrif hugarástands á lífeðlis- fræðilega þætti, s.s. streituviðbrögð og virkni ónæmiskerfisins, þekkt (Glaser o.fl., 1990; Rossi, 1986). í samfélagi manna hefur tónlist alla tíð verið notuð til þess að hafa áhrif á hugarástand og geð. Þannig er hún samofin lífi mannsins og líðan. Athuganir hafa leitt í ljós jákvæð áhrif sér- staklega valinnar tónlistar á sjúklinga og þá einkum á streituviðbrögð, upplifun sársauka og á andlega þætti svo sem depurð og ótta (Up- dike, 1990; Jónína Þ. Erlendsdóttir, KristínJ. Þorbergsdóttir, Oddný J. Jónsdóttir og Ragn- hildur Þorgeirsdóttir, 1992). Sérstaklega valin róandi tónlist var leikin fyrir sjúkling nokkrum sinnum á sólarhring fyrstu dagana. Horfið var frá notkun hennar þar sem hún virtist hafa örv- andi áhrif (blóðþrýstingur og púls hækkuðu) og var skýring þess óþekkt. Síðar, þegar sjúklingur var vakinn upp og hann þjálfaður til að anda sjálfur, var tónlist notuð á nýjan leik til þess að ná fram slökun og hvíld og til þess að uppörva sjúkling og hvetja. Líðan aðstandenda Þörfum ættingja mikið veikra einstaklinga hefur verið lýst. Að finna að enn er von, að finna að starfsmönnum er annt um sjúkling, að geta treyst því að fá réttar og heiðarlegar upplýsingar um ástand og horfur, að samræmi sé í upplýsing- um milli starfsmanna, að fá að dvelja hjá sjúklingi að vild, að taka þátt í umönnun sjúklings, að 4. Blóðræktanir eru teknar úr bláæðog slagæð, svo og ræktanirfrá stungustöðum æðaleggja, frá brjóstholskera, kviðskilunarlegg, úr þvagi og hráka og frá húðfleiðrum daglega 5. Daglega er þvegið með klórhexidíni umhverfisalla kera og stungustaði. Fúsidíngrisjur eru vafðar umhverfis kera. Húðfleiöur eru þvegin á 4-8 klst. fresti með klórhexidíni 6. Blöðruleifar (kalsár) á fótum eru klipptar og sár þvegin úr klórhexidíni og fúsidíngrisjur lagðar yfir daglega 7. Gæta þess að hlffa fótum við öllu hnjaski (hælar, tær). Ekkert nudd 8. Munnhreinsun með Hibitane dental á 4 klst. fresti 9. Gæta þess að barkaslanga særi ekki varir eða tungu, skipta um plástra daglega. Augu eru skoluð með saltvatni eftir þörfum og sett í þau gervitár á 4 klst. fresti. 10. Hreinsun á öndunarvélum og slöngum er samkvæmt reglum gjörgæsludeildar Landspítala, svo og skipti á vökvasettum, krönum og framlengingarsnúrum III Framkvamd og vlðhald kallngar og meðvltundarlaysis. Hatta 6 fylglkvillum langvarandl kallngar og tilbúlns meðvltundarleysls s.s skertri blóðrás til húðar og truflana á hjartsláttartakti, svo og skaða á taugakerfi. 1. Strangt mat á meðvitundarstigi og dýpt svæfingar (Ijósop, glæruviðbragð, tár, gæsahúð, skjálfti, breyting á bþ og púls við áreiti, kyngingar- og hóstareflex) 2. Stöðug mæling líkamshita 3. Mat á blóðflæði til húðar (háræðafyllitími, litarháttur, húðhiti) IV Hatta á skaða; hugsanlegur dauðisjúklings ef kerar færast úr stað, ef blóðsegamyndun verður í kerfinu, ef loft kemst I kerfið (loftembolia), ef gat kemur á slöngur vegna slits og ef bilun verður í kerfinu (t.d. ef dælan hættir að snúast). 1. Eftirlit með þrýstingi í kerfinu 2. Eftirlit með þani/fyllingu á slöngum 3. Eftirlit með hitastigi í kerfinu 4. Eftirlit með snúningshraða pumpunnar 5. Skola í gegnum kerfið á klst. fresti til að minnka líkur á blóðstorkumyndun 6. Nauðsynleg áhöld eru tiltæk ef slanga rifnar (æðatengur, dauðhreinsuð skæri og millistykki) 7. Neyðarviðbrögðeru æfð; klemmafyrirfrárennsliblóðsfrásjúklingi.skrúfasnúningshraðadælunnarniður.slökkvaádælunni, svæfa sjúkling dýpra með Penthotali og lækka llkamshita enn frekar 8. Nauðsynleg lyf til endurlífgunar eru ávallt tilbúin við rúm sjúklings 9. Slönguskipti eru æfð á aukadælu 10. Ávallteru2hjúkrunarfræðingarviðrúmsjúklingsallansólarhringinn,sérfræðingurísvæfingumog tæknimaður í næsta nágrenni.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.