Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Page 14
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993
finna að maður sé velkominn og ekki fyrir, og
að hafa ákveðinn hjúkrunarfræðing til að snúa
sér til eru atriði sem koma aftur og aftur fram
í athugunum sem gerðar hafa verið á undan-
förnum árum (Hickey, 1990; Leske, 1986; Norris
og Grove,1986). Nánustu ættingjar dvöldu hjá
sjúklingi eins oft og lengi og þeir óskuðu. í fyrstu
var erfitt fyrir þá að nálgast sjúkling í því ástandi
sem hann var. Líkaminn var kaldur viðkomu,
húðin með marmaralit, engin viðbrögð sjáanleg,
slöngur í útlimum og búk, auk ókunnuglegra
hljóða frá tækjum og mælum. Þeir voru hvattir
til þess að ræða tilfinningar sínar varðandi
meðferðina og að taka þátt í umönnun eins og
mögulegt var og þeir treystu sér til. Meðal annars
gerðu þeir liðferlisæfingar, nudduðu húðina
með olíu, greiddu hárið og töluðu til sjúklings-
ins.
Næturnar voru oft langar og erfiðar og þá var
útbúið svefnpláss á næstu stofu. Þess var gætt
að þeir fengju hvfld og næringu. Sömu hjúkr-
unarfræðingar og læknar önnuðust sjúkling
meðan á dvölinni á deildinni stóð. Leitast var
við að samræma upplýsingar og framtíðarspár
starfsmanna og lögð áhersla á að lifa einn dag
í einu. Enn fremur tók sjúkrahúsprestur virkan
þátt í stuðningi við fjölskylduna.
Lokaorö
Líðan og samskipti starfsfólks á gjörgæsludeild-
um hafa áhrif á gæði þeirrar þjónustu sem þar
er veitt (Knaus, Draper, Wagner og Zimmerman,
1986). Hátæknimeðferð sem þessi vakti upp
mismunandi viðbrögð og áleitnar spurningar hjá
starfsfólki sem nauðsynlegt var að viðurkenna
og ræða. Hversu langt er hægt að ganga í við-
haldi lífs? Hvað er líf? í umdeildri meðferð sem
þessari er mikilvægt að starfsmenn virði mis-
munandi skoðanir og tilfinningar hver annars
og hjálpist að við að fara sömu leið að sameigin-
legu markmiði þrátt fyrir mismunandi viðhorf
til lífs og dauða. Sem dæmi má nefna, að til þess
að viðhalda baráttuvilja starfsfólks og trú á sigur
lífsins var mynd af sjúklingi hengd upp við
rúmið og jafnframt var starfsfólk hvatt til að
skoða myndbandsupptöku sem sýndi glaðan og
brosmildan ungling á góðri stund.
Hér að framan hefur verið lýst aðdraganda og
framkvæmd TECLA eða fullrar lungnaaðstoðar
utan líkama, svo og fjallað um þau hjúkrunar-
viðfangsefni sem sértæk voru fyrir meðferð
þessa einstaklings. Hér var þó aðeins sögð saga
fyrstu fimm vikna af tveggja ára strangri andlegri
og líkamlegri endurhæfingu sem bar þann
árangur að viðkomandi komst út í lífið aftur og
settist á skólabekk með jafnöldrum sínum.
Sérstakar þakkir f»r Oddur Fjalldal, sórf ræðlngur fyrlr
ródgjöf og ábendlngar. Edda Alexadersdóttlr, hjúkr-
unarfræðlngur fær enn fremur þakklr.
Helmlldlr
Anna Rut Sverrisdóttir, Guðbjörg Pálsdóttir, íris Þórðardóttir,
Jóhanna Elfsdóttir, Margrét Björk Sigurjónsdóttir, Rósa
Jónsdóttir og Þóra Jenný Gunnarsdóttir (1990). Könnun
á snertingu til mikið veikra sjúklinga á gjörgœsludeild
Landspítalans. Óbirt lokaritgerð til B.S. prófs íhjúkrunar-
fræði við Háskóla íslands.
Aldís Jónsdóttir, Guðný Björk Guðjónsdóttir, Katrín Sigurðar-
dóttir, Rannveig Sigurðardóttir og Sigrún Gerður Finnbog-
dóttir (1989). Hávaðamceling á gjörgcesludeild Landspítal-
ans. Óbirt lokaritgerð til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við
Háskóla íslands.
Border.J.R., Hassett.J., LaDuca, J., Seibel, R., Steinberg, S., Mills,
B. , Losi, P., ogBorder, D. (1987). Thegut orgin septicstates
in blunt multiple trauma (ISS = 40) in the ICU. Annals of
Surgery, 206, 427-48.
Estrada, E.A. (1992). ECMO for neonatal and pediatric patients:
State-of-the-art and future trends. Pediatric Nursing, 18,
67-70.
Fjalldal, O., Torfason, B., Önundarson, P.T., Thorsteinsson, A.,
Vigfússon, G., Stefánsson, T., ogMagnússon, V. (1993). Pro-
longed total extracorporeal lung assistance without syste-
mic heparinization. Acta Anaesthesiologica Scandinavica,
37, 115-120.
Glaser, R., Kennedy, S., Lafuse, W.P., Bonneau, R.H., Speicher,
C. , Hillhouse, J., og Kiecholt-Glaser, J.K. (1990). Psycho-
logical stress-induced modulation of Interleukin 2 receptor
gene expression and Interleukin 2 production in peripheral
blood leucocytes. Archives General Psychiatry, 47,
707-712.
Hickey, M. (1990). What are the needs of families of critically ill
patients? A review of the literature since 1976. Heart &
Lung, 19, 401-415.
Hurst, J.M., Branson, R.D., og DeHaven, C.B. (1987). The role
of High-Frequency Ventilation in post-traumatic respiratory
insufficiency. The Journal of Trauma, 27, 236-242.
JónínaÞ. Erlendsdóttir, KristínJ. Þorbergsdóttir, OddnýJ.Jóns-
dóttir og Ragnhildur Þorgeirsdóttir (1992). Áhrif tón-
listarmeöferðar á líðan hjartaskurðsjúklinga. Óbirt loka-
ritgerð til B.S. prófsí hjúkrunarfræði við Háskóla íslands.
Knaus, W.A., Draper, E.A., Wagner, D.P., og Zimmerman, J.E.
(1986). An Evaluation of outcome from Intensive Care in