Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Qupperneq 24
Túnarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993
Matthildur Valfells, Hanna María Gunnarsdóttir og Sigurlaug E. Jóhannesdóttir
Lyfjanotkun aldraöra í
heimahúsum
Tilgangur pessarar könnunar var að fá vísbendingu um hver
og hve mikilvæg helstu vandamál varðandi lyfjanotkun
aldraðra eru.
Könnuð var lyfjanotkun 67 einstaklinga sem voru að koma
í fyrsta skipti á móttökudeild öldrunarlœkningadeildar Land-
spítalans árið 1992 og sem ekki höfðu verið tengsl við áður.
Tveir hjúkrunarfrœðingar fóru í vitjun heim til hvers
einstaklings. Annar hjúkrunarfrœðingurinn taldi lyfin á
meðan hinn rœddi við pátttakandann.
Samkvœmt niðurstöðum könnunarinnar tóku 82% pátttak-
enda lyf sín rangt. Helstu vandamál, sem fólk átti við að
glíma við lyfjatöku, voru erfiðleikar við að opna lyfjaglös,
ruglingur með lyfjategundir og skammta. Orsakir reyndust
vera margvíslegar, t.d.minnisleysi, sjóndepra, skert handa-
stjórn, uppsöfnuð lyf og pekkingarleysi.
Höfundar telja pví að meðan á innlögn stendur purfi að
meta á markvissan hátt hæfni sjúklinga til að sjá um lyfin sín
sjálfir. Sé peirri hæfni ábótavant purfi að fræða og pjálfa
sjúklinga í að sjá um lyfin sín áður en peir eru útskrifaðir
heim af sjúkrahúsum.
Matthildur Valfells
lauk námi frá Hjúkrunar-
skóla fslands áriö 1957 og
framhaldsnámi í öldrunar-
hjúkrun frá Nýja hjúkr-
unarskólanum árið 1983.
Hún hefur starfað á öldr-
unarlœkningadeild Land-
spítalans í 15 ár og er nú
deildarstjóri móttöku-
deildar þar.
Hanna María Gunnars-
dóttir lauk námi frá Hjúkr-
unarskóla íslands árið
1974 og námi i geðhjúkrun
frá Nýja hjúkrunarskól-
anum árið 1977. Starfaði á
móttökudeild öldrunar-
lœkningadeildar Land-
spítalans í átta ár, þar til
1. júli 1993• Nú starfar
hún á lyflœkningadeild
Landakotsspítala.
Sigurlaug E. Jóhannesdóttir
lauk námifrá Hjúkrunar-
skóla fslands í mars 1955.
Sigurlaug hefur starfað á
móttökudeild öldrunar-
lcekningadeildar Land-
spítalans síðan (janúar
1987.
Til öldrunarlækningadeildar Landspítalans ber-
ast beiðnir um þjónustu frá læknum, hjúkrunar-
fræðingum, ættingjum og jafnvel einstaklingum
sjálfum. Þegar beiðnirnar berast er gefinn upp
tími á móttökudeild fyrir læknisskoðun og þar
er heilsufar einstaklingsins metið. Flestum sem
koma á móttökudeild er skipaður tengill sem
ýmist er hjúkrunarfræðingur eða félagsráðgjafi.
Mikilvægur þáttur í starfi okkar hjúkrunar-
fræðinganna eru vitjanir heim til skjólstæðinga.
Þá sést hvernig fólk tekst á við hlutina í sínu eigin
umhverfi og þannig er betra að meta ástandið.
f þessum vitjunum höfum við tekið eftir ýmsum
vandamálum í sambandi við lyf. Til dæmis hafa
oft komið upp efasemdir um að lyf séu tekin
samkvæmt fyrirmælum læknis. Við höfum tekið
eftir miklu af uppsöfnuðum lyfjum í fórum
skjólstæðinga okkar. Lyfjum sem þeir eru hættir
að nota en taka af og til. Eins er töluvert um að
fólk eigi útrunnin lyfsem það er ísumum tilfell-
um enn að nota. Þessi atriði vöktu áhuga okkar
á að gera þessa könnun.