Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Síða 28
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl, 1. árg. 1993
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 18 24 27 36 44,
Fjöldi lyfjalegunda
MYND 2. Fjöldi lyfja sem sjúklingur á.
sem eru verkjalyf, notuðu 34 einstaklingar
(51 %). Lyf úr flokki C03, þvagræsilyf, notuðu
27 einstaklingar (40%), betablokkera úr flokki
C07, notuðu 25 einstaklingar og hjartasjúk-
dómalyfúr flokki COl notuðu 23 einstaklingar.
Fjöldi þeirra sem notuðu lyf úr öðrum lyfja-
flokkum var á bilinu 1-21 (mynd 3).
Skilningur á lyfjum meðal þeirra 55 einstakl-
inga, sem hægt var að meta hann hjá, var góður
hjá 12 einstaklingum (22%), sæmilegur hjá 22
(40%) og lélegur hjá 19.
Til að meta hvort lyf væri rétt tekið reikn-
uðum við út hve mikið ætti að vera í hverju glasi
miðað við upphaflegt magn í því, dagsetningu
kaupanna og fyrirskrifaða dagsnotkun.
Af þessum 524 lyfjum var ekki hægt að meta
hvort þau lyf höfðu verið rétt tekin, sem ein-
staklingar voru hættir að nota, og ekki heldur
þau lyf sem voru í röngum umbúðum eða
engum. Öll lyf seld án lyfseðils voru skráð en
ekki metið hvort þau væru rétt tekin enda ekki
unnt því þær umbúðir bera ekki með sér hvenær
MYND 3. Hlutfall sjúklinga sem notar tiltekinn lyfjaflokk.