Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Side 47
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993
Sigríður Guðmundsdóttir hjá Rauða krossi íslands
Hjúkrun í Litháen
Dagana 6.-10. september sl. fór undirrituð ásamt formanni
HFÍ, Vilborgu Ingólfsdóttur, í kynnisferð til Liháen. Þar var
hjúkrunarfélagið heimsótt og heilbrigðisstofnanir skoðaðar.
Einnig sátum við ráðstefnu SSN (Samvinnu hjúkrunar-
frœðinga á Norðurlöndum) í Riga í Lettlandi.
Aðdragandi ferðarinnar var ákvörðun stjórnar SSN um að
halda hina árlegu ráðstefnu SSN í einu af Eystrasalts-
ríkjunum í þeim tilgangi að gefa hjúkrunarfrœðingum þar
tœkifœri til að kynnast nútímahjúkrun. Hjúkrunarfélögin á
Norðurlöndum hafa stutt við bakið á systurfélögum í Eystra-
saltsríkjunum í nokkur ár og var ákveðið að hjúkrunar-
frœðingar frá Norðurlöndum sœktu sitt stuðningsfélag heim.
Islensku hjúkrunarfrœðingarnir heimsóttu Litháa, ásamt
Dönum.
Litháen
f Litháen búa u.þ.b. 3,7 milljónir manna. Helstu
atvinnuvegir eru landbúnaður og iðnaður s.s.
textíl-, matvæla- og rafeindaiðnaður.
Litháar öðluðust sjálfstæði í mars 1990 eftir
rúmlega 40 ára undirokun Ráðstjórnarríkjanna.
Áhrifa sovétvaldsins gætir enn í landinu, bæði
innan heilbrigðiskerfisins sem og annars staðar í
þjóðlífinu. Það kom okkur verulega á óvart í
landi sem nýlega hefur hlotið sjálfstæði og
lýðræðislegt stjórnarfar að sjá alla þá depurð
sem blasti hvarvetna við. Það var sama hvert
við fórum, götur voru nær mannlausar, jafnvel í
miðbænum var fátt um fólk. Fáir bílar voru á
ferli, hús og byggingar gráar og hvergi lfflega
liti að sjá. Fólk virtist gleðisnautt og við fengum
á tilfinninguna að það væri einnig áhugalaust
og úrræðalítið. Þetta er án efa arfleifð sovét-
valdsins gamla. Heil þjóð breytist ekki á einni
nóttu heldur þarf áralanga endurhæfingu og
endurmenntun til að kalla fram breytingar í
landi þar sem efnahagur og allt innra kerfi er
í rúst. Fólk þarf að hafa tvö til þrjú störf til að
ná endum saman og mjög mikið er um ,,svarta
vinnu. ‘ ‘ Meðalmánaðarlaun hjúkrunarfræðings
fyrir fuila vinnu eru 1500 íslenskar krónur.
Rafmagn er af skornum skammti og heitt vatn
er skammtað í 3 daga í mánuði. Húsnæði er
óupphitað og svo má lengi telja. í allri þessari
depurð finnast samt einstaklingar fullir bjartsýni
og eldmóði og þeim kynntumst við hjá ný-
stofnuðu hjúkrunarfélagi Litháa.
Heimsókn tll Vllnlus
Heimsóknin til Vilníus, höfuðborgar Litháens,
var afar áhugaverð. Þar heimsóttum við heilsu-
gæslustöð, bráðasjúkrahús, elliheimili og hjúkr-
unarskóla. í Vilníus hittum við einnig framáfólk
innan hjúkrunar og heilbrigðisþjónust-
unnar.