Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Page 49

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Page 49
til í málinu og eru hjúkrunarfræðingar kallaðir ,,aðstoðarlæknar“. Læknar stjórna og reka hjúkrunarskólana (medical school) en þar starfa engir hjúkrunarmenntaðir kennarar. Við hittum rektor skólans sem er læknir, íturvaxin gæða- kona (babuska). Hún sagði okkur að skólinn hefði verið starfræktur síðan 1939 og þar séu 1000 nemendur, þar af 38 karlmenn. Nem- endurnir fá inngöngu í skólann eftir framhalds- skóla eða samtals 12 ára skólagöngu. „Hjúkr- unarnámið“ tekur 3 ár, þar af eru tveir þriðju hlutar starfsmenntun. Hún sagði að stærsta vandamál skólans væri skortur á kennsluefni og það sem til er þarf að endurnýja. Við gengum síðan um skólann og skólastofurnar en þar var lítið sem minnti okkur á að við værum í hjúkrunarskóla. í þessum 1000 nemenda skóla var aðeins ein lítil stofa þar sem voru 3 rúm, náttborð og vökvastatíf en það var allt og sumt sem minnti á hjúkrunarskóla. Er hægt að búast við framþróun í hjúkrun þar sem hugsunin er aðeins sú að hjúkrunar- fræðingar eigi að aðstoða lækna og gefa lyf, þar sem orðið ,,hjúkrun“, í okkar skilningi, er ekki til í málinu? Það er augljóst að það þarf að endurmennta hjúkrunarfræðinga í Litháen og að það þarf að byrja á byrjuninni. Það þarf að kynna hjúkrunarfræðingum grundvallarþætti hjúkrunar. Danska hjúkrunarfélagið hefur varið umtals- verðum fjármunum til að styrkja hjúkrunar- félagið í Litháen og hjúkrunarskóla þar. Þeirra skilningur er sá sami og okkar, að byrja þarf frá grunni. Þær hafa fært hjúkrunarskólanum kennslubækur og á allra næstu mánuðum munu um 20 litháískir hjúkrunarfræðingar fara til náms í Danmörku í sérstaklega skipulagt nám. Eftir það munu þær fá störf við hjúkrunar- kennslu. Danska hjúkrunarfélagið leggur einnig mjög mikla áherslu á að hjúkrunarfélagið í Litháen beiti sér fyrir því að hjúkrunarfræðingar kynni sér grundvallarþætti starfsins. f

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.