Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Síða 50
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993
Nýtt hjúkrunarfélag
Það vildi svo skemmtilega til að á meðan á
heimsókninni stóð var hjúkrunarfélagið í
Litháen að opna sína fyrstu skrifstofu og var
vígsluathöfnin mjög hátíðleg. Hjúkrunarfélagið
er mjög ungt og á erfitt með að fá hjúkrunar-
fræðinga til að skrá sig sem félagsmenn. Þær
telja að það sé afleiðing kommúnismans þar
sem allir voru skuldbundir að vera í félögum
sem fólk hafði almennt ótrú á. Þær berjast þó
ötullega og trúa því að með samkenndinni geti
þær haft áhrif á breytingar og framþróun í
hjúkrun. Þær gera sér jafnframt grein fyrir því
að til að ná árangri þurfa þær að fara í gegnum
visst endurhæfingarskeið og breyta hugsunar-
hætti fólks áður en þær ná jafnlangt og Norður-
landaþjóðirnar.
Ráðstefna f Rlga
Yfirskrift ráðstefnu SSN í Riga var „Hjúkrun í
nútímaþjóðfélagi.“ þetta var fyrsta sameigin-
lega ráðstefna hjúkrunarfræðinga á Norður-
löndum og frá Eystrasaltsríkjunum. Um 40 þátt-
takendur voru á ráðstefnunni. Flutt voru erindi
frá öllum löndunum um stöðu hjúkrunar nú.
Stórt bil var á milli hjúkrunarfræðinga frá
Norðurlöndunum sem töluðu fjálglega m.a. um
rannsóknir, gæðastjórnun, heilsuhagfræði og
doktorsgráður í hjúkrun og svo hjúkrunarfræð-
inganna frá Eystrasaltsrikjunum sem töluðu um
mikilvægi aukinnar grunnmenntunnar og
endurmenntunar. í Eistlandi er hjúkrunarnám
t.d. aðeins 2 ár og hefja nemendur hjúkrunar-
nám 14-15 ára. Þetta bil vilja hjúkrunarfræð-
ingar brúa og aðildarfélög SSN ætla að halda
áfram að styðja við bakið á hjúkrunarfélög-
unum í Eystrasaltsríkjunum og færa nær nú-
tímahjúkrun. Lögð verður áhersla á að bæta
menntun hjúkrunarfræðinga og aðstoða þá við
að byggja upp virkt fag- og stéttarfélag.
í lok fundarins var samþykkt einróma
ályktun þess efnis að samvinna hjúkrunarfélaga
í Eystrasaltsríkjunum sé mjög mikilvæg fyrir öll
félögin og muni leiða til nauðsynlegrar þróunar
í hjúkrunarþjónustu og hjúkrunar sem fags.
Einnig var samþykkt að tvíhliða stuðnings-
verkefni hjúkrunarfélaganna muni halda áfram
og aukast á næstu árum. Sameiginlegt markmið
með samstarfi þessara félaga væri að stuðla að
aukinni þróun í menntun hjúkrunarfræðinga og
hafa til hliðsjónar lágmarksstuðul Evrópu-
bandalagsins. Að lokum var samþykkt að sam-
vinna hjúkrunarfélaga í Eystrasaltsríkjunum og
SSN skyldu halda áfram samvinnu og vinna að
því að halda aðra ráðstefnu eftir tvö ár.
Lokaorð
Þessari heimsókn mun ég seint gleyma og þótt
ég hafi ferðast víða og séð margt, verð ég að
viðurkenna að Litháen kom mér á óvart. Ég var
ekki viðbúin að sjá afleiðingar þeirrar kúgunnar
sem þessi þjóð hefur orðið að þola í áratugi.
Það þarf að fara hægt í breytingar, en endur-
menntun og hugarfarsbreytingu þarf til að þessi
þjóð geti staðið á eigin fótum. Eftir að hafa
fylgst með störfum hjúkrunarfélagsins í Litháen
sá ég enn skýrar hvað samtakamátturinn er
mikilvægur og ég sannfærðist enn betur um
nauðsyn þess að hjúkrunarfræðingar á íslandi
sameinist í einu félagi.
HJÚKRUNARVÖRUR
Mikið úrval af almennum og sérhæfðum hjúkrunar- og læknavörum frá þekktum og viðurkenndum framleið-
endum.
Fyrir svæfinga- og görgæsludeildir: Barkatúpur, barkastomitúpur, filterar, mænudeyfingar, thorax-dren
o.fl. frá PORTEX.
Fyrir skurðstofur: Sog, dren, slöngur, skurðstofuplast, Lofric-þvagleggir o.fl. frá ASTRA TECH.
Blóðþrýstingsmælar frá SPEIDEL-FKELLER.
Bleiur, undirlegg o.fl. frá MÖLNLYCKE.
Við leggjum sérstaka áherslu á hjálpargögn við þvagleka ásamt faglegri
ráðgjöf og fræðsluefni þar að lútandi.
Frekari upplýsingar veitir hjúkrunarfræðingur Rekstrarvara.
Þekking - Úrval - Þjónusta
REKSTRARVÖRUR
Rðltarhal6l2 • IIOR.vik • Simar31956-685554
w
Rjjj