Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1994, Blaðsíða 5

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1994, Blaðsíða 5
Tímarit hjúkrunarfræðinga 2. tbl. 70. árg. 1994 um. Þaö vissi ég fyrir fram enda var það ekki trúboð sem fyrir mér vakti. Eg var hins vegar viss um að presturinn væri fær sálusorgari og að hans væri þörf. Ég gafst því ekki upp og spurði hvort allir væru sáttir við meðhöndlun mannsins. Auðvitað voru allir að bögglast með þetta á samvisk- unni. Presturinn kom því á endan- um og stýrði umræðum um þetta. Sumir töluðu um að þeim hefði þótt meðferð mannsins tilfinninga- laus og ópersónuleg af starfsfólks- ins hálfu. Einn hjúkrunarfræðing- urinn sagði að hún kærði sig ekki um að bera tilfinningar sínar á torg. Hún vildi sýna fagmennsku og styrk. Presturinn benti þá á að það bæri ekki endilega vott um styrk að leyna tilfinningum. Styrk- ur gæti einnig falist í því að þora að sýna tilfinningar. Eftir á finnst mér að þetta hafi haft mikil og góð áhrif. Við tölum meira saman ef eitthvað bjátar á. Við erum óhræddar við að spyrja hver aðra um mál sem áður lágu í þagnargildi og sem sköpuðu spennu meðal starfsfólks. Núna tökum við á þeim áður en spenna skapast. Ég held að sjúkrahúsprestar séu vel til þess fallnir að hjálpa starfsfólki að vinna úr erfiðleikum eins og að ofan greinir. Ég held að þekking þeirra geti nýst í slíkum tilfellum, burtséð frá því hvort starfsfólkið er trúað eða ekki. Einnig eru nú sums staðar á sjúkrahúsum starfandi hópar fólks úr ýmsum starfsgreinum sem bjóða fram áfallahjálp. Mér finnst að þeir mættu vera meira áber- andi og mér finnst að það eigi að vera sjálfsagt mál að leita til þeirra ef starfsfólki líður illa yfir erfiðri reynslu sem það verður fyrir í vinnunni. Ein reynslunni ríkari Svar Studnings er þörf Um dæmid hér á undan mætti margt segja en í stuttu svari verdur adeins komid inn á nokkra þætti. Fyrst er ástæda til ad leggja áherslu á ad langvinnt álag á deildum slítur okkur öllum. Þetta gerir það að verkum að ástæða er til að hvetja til aukinnar meðvitundar um líðan sam- starfsfólks á deildunum og mikilvægi þess að taka frá tíma eftir erfiðar vaktir til að fara yfir bæði vinnuna og það álag sem henni hefur fylgt. Álag í vinnu á að fá úrvinnslu á vinnustað. Þess er ekki þörf að við förum með álagið á herðunum heim til okkar þar sem maki og börn vilja njóta tímans með okkur óskiptum. r Alag og áföll starfsfólks Síðan í ágúst 1993 hefur verið starfandi hópur á Ríkisspítölum sem hefur að markmiði stuðning við starfsfólk vegna álags og áfalla. Bjarni Ingvarsson, starfsmannastjóri, og Margrét Blöndal, hjúkrunarfræðingur, auk undirritaðs mynda þennan hóp. Hópurinn óskaði eftir fulltrúum deilda, tenglum sem gætu unnið að málefninu, og hittist sá hópur hálfs- mánaðarlega í allan vetur. Hlutverk tenglanna var að kynna fræðsluefni á deildum sínum, auka umræður um áhrif álags á störf heilbrigðisstétta og að kynna möguleg úrræði. Auk þess voru tvö námskeið haldin. I þessu vinnuferli varð okkur Ijóst að stuðningsúrræðum fyrir starfsfólk þarf að skipta í grundvallaratriðum í tvennt: 1) Þau úrræði sem hver deild verður að búa yfir fyrir starfsfólk sitt. 2) Áfallahjálparúrræði sem grípa þarf til þegar deildin ræður ekki lengur við innri stuðning sinn. Við höfum ekki efni á að láta sem langvarandi álagsvandi deildanna sé ekki til. Starfsfólk, sem ekki fær nauðsynlegan stuðning, getur auð- veldlega brunnið út og gefist upp, hætt störfum á deildinni og þar með glatast reynsla af deildinni sem getur tekið langan tíma að byggja upp að nýju. Mikilvægt er að deildarstjóri og yfirlæknir eigi samstarf sem bein- ist að því aö vinna úr árekstrum, álagi, áföllum og öðru því sem skemmt getur starfsandann og gæði þjónustunnar á viðkomandi deild. Sjúkrahúsprestar Við sjúkrahúsprestarnir komum oft að persónulegum vanda starfs- fólks. Sjálfur hef ég lagt á það áherslu að minn „fasti söfnuður" sé starfsfólkið, en sjúklingarnir, vistmenn og aðstandendur þeirra hinn „síbreytilegi söfnuður" minn. Þess vegna leitast ég við að gefa starfsfólki allan þann forgang sem mögulegt er. Stuðningsvinna sjúkrahúsprests við starfsfólk getur beinst að eftirfarandi þáttum: 1) Sálgæsluvinnu sem beinist að því að styðja einstaklinga. Þar gildir alger trúnaður og er ekki gerð sú krafa að vandi viðkom- andi sé algerlega tengdur vinn- unni. 2) Stuðningshópum sem hafa það að markmiði að vinna úr til- tekinni reynslu. Þetta getur t.d. verið úrvinnsla eftir dauðsfall á deildinni, dauði samstarfsmanns eða -konu, úrvinnsla á vanda tengdum sjúklingi eða fjölskyldu með fjölþætt vandamál o.s.frv. 3) Trúarlegur vandi þar sem þörf er á fræðslu um guðfræðileg efni, siðfræði, bænalíf o.s.frv. 4) Sorgarúrvinnsla sem tengist hvers kyns missi í lífinu. 5) Áfallahjálp sem felur ekki í sér meðferð „sjúklinga" heldur að veita þeirri líðan framrás sem fyrir hendi er. Frh. næstu síðu

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.