Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1994, Blaðsíða 11

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1994, Blaðsíða 11
Tímarit hjúkrunarfræðinga 2. tbl. 70. árg. 1994 Niðurstöður A tímabilinu, sem um ræðir, þ.e. október 1992 til desember 1993, voru alls átta hópar eða samtals 50 manns þar sem fimm til átta voru í hverjum hópi. Meðalaldur var 39 ár og aldursbilið 16 til 65 ár. Þessir 50 einstaklingar misstu samtals 313 kg og u.þ.b. 250 cm í ummáli mittis. Meðalþyngd við komu var 108,5 kg en við brottför 102,3 kg. Það jafngildir því að hver einstaklingur hafi að meðaltali misst 6,2 kg á fjögurra vikna dvalartíma. Niðurstöður þyngdarbreytinga er að finna í töflu 1 (Anna Elísabet Ólafsdóttir, Svala Karlsdóttir, Gunnhildur Vilhjálmsdóttir, Helga Haraldsdóttir og Guðrún Helgadóttir, 1993). Tafla 1 Niðurstöður þyngdarmælinga við upphaf og lok 4 vikna dvalar, sýndar sem meðaltal í hverjum hópi. Fjöldi þáttt. Meðal- aldur (ár) Upphafs- þyngd (kg) Loka- þyngd (kg) Þyngdar- tap (kg) H-1 6 47 102,0 95,5 6,5 H-2 5 33 104,2 99,6 4,6 H-3 8 49 115,5 109,9 5,6 H-4 6 33 113,0 104,4 8,6 H-5 7 35 109,5 102,3 7,2 H-6 5 38 109,2 102,7 6,5 H-7 8 39 101,7 96,2 5,5 H-8 5 37 112,9 107,6 5,3 Meðaltal 39 108,5 102,3 6,2 Niðurstöður ummálsmælinga er að finna í töflu 2. Tafla 2 Niðurstöður ummálsmælinga. Taflan sýnir hvað þátttakendur í hverjum hópi grenntust að meðaltali um marga sentimetra á þremur mismunandi stöðum líkamans. Mitti (cm) Mjaðmir (cm) Læri (cm) H-1 8,0 6,5 3,0 H-2 5,8 5,8 3,8 H-3 7,1 4,3 2,5 H-4 7,5 5,3 2,9 H-5 5,0 5,4 3,2 H-6 6,4 2,4 3,4 H-7 4,5 5,5 3,0 H-8 3,6 3,4 2,2 Meðaltal 6,0 4,8 3,0 Hlutfallið milli mittis og mjaðma (mitti/ mjaðmir) var í öllum hópunum undir 1,0 eða frá 0,83 til 0,95 í byrjun dvalar. Niðurstöður fitumælinga er að finna á mynd 1 (Anna Elísabet Ólafsdóttir og fl., 1993). Hópur Mynd 1. Niðurstöður fitumælinga. Hlutfall fitu og LBW (lean body weight) af heildarþyngdartapi þátttakenda t' hverjum hópi. Sé innbyrðis hlutfall fitu og LBW (fitulauss massa) skoðað sérstaklega sést að LBW er á bilinu 29% til 41% af heildarþyngdartapi, sbr. mynd 2 (Anna Elísabet Ólafsdóttir og fl., 1993). Hópur Mynd 2. Meðaltalstölur af innbyrðis hlutfalli fitu og LBW af heildarþyngdartapi hvers hóps. Endurmat og stuðningur I september var hópunum boðið að koma í hálfs- dags heimsókn í Heilsustofnunina. Alls skráðu sig 10 manns. Dagskráin hófst með vigtun, ummáls- mælingu og fitumælingu þátttakendanna. Þá var haldið í morgunverð ásamt hjúkrunarfræðingi og næringarfræðingi sem sáu um heimsóknina. Að morgunverði loknum var sameiginlegur fundur þar sem farið var yfir stöðuna og framhaldið. Þá tók við líkamsrækt; sund, ganga eða æfingar í tækjum, allt eftir óskum hvers og eins. Iþróttafræðingur var á staðnum og veitti þá aðstoð sem þurfti. Að loknum sameiginlegum hádegisverði var dagskránni slitið með stuttum kveðjufundi. I desembermánuði 1993 var haft símasamband við alla þátttakendur úr hópum 1 til 7 og kannað hvernig hefði gengið frá því þeir luku námskeiði. Alls náðist til 37 af þeim 45 sem voru í hópum 1 til 7. Flestir sem talað var við töldu sig enn búa að 11

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.