Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1994, Blaðsíða 33
Tímarit hjúkrunarfræðinga 2. tbl. 70. árg. 1994
Heilbrigðisstarfifólk hefur alltaf lagt sig fram við að hjálpa sjúklingum, en það sem við œttum að gera er að
hjálpa fólki að hjálpa sjálfu sér, og það er miklu erfiðara.
þjónustu, heilsugæslu og hjúkrun (social-nursing-
health model). Þörfin fyrir spítala er ekki eins brýn
og fyrir heilsugæslustöðvar (health care centres) þar
sem áhersla er lögð á kennslu, aðstoð, handleiðslu,
endurhæfingu og stundum alhliða hjúkrun (total
nursing care).
Heilbrigðis- og félagsleg
þjónusta fyrir gamalt fólk
Þó að gamalt fólk fái aðallega þjónustu utan stofn-
ana skipa sjúkrahús með öldrunar- og endur-
hæfingardeildum og móttökudeildum öldrunar-
lækningadeilda einnig veigamikið hlutverk.
Heilsugæsla (primary health care) hefur verið
efst á dagskrá Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
frá 1978 (WHO, 1978). Samt virðast úrræði sam-
félagsins ekki hafa aukist í samræmi við þarfir skjól-
stæðinganna. Margar rannsóknir benda til þess að
aðstoð sé enn aðallega veitt inni á stofnunum, m.a.
á bráðasjúkrahúsum. Rannsókn, sem gerð var árið
1992 í Danmörku og beindist að bráðainnlögnum
og endurkomum á sjúkrahúsum, benti til að 15 -
20% af sjúkrahúsinnlögnum hefðu verið óþarfar ef
þjónustan úti í þjóðfélaginu hefði verið fullkomnari
með hvíldarplássum á hjúkrunarheimilum og sól-
arhringsþjónustu heimahjúkrunar. Af sjúklingum,
sem voru 70 ára og eldri, var óþarfi að leggja 59%
þeirra inn á sjúkrahús (Borch-Johnsen, 1992). Við
skipulagningu hjúkrunarþjónustu fyrir aldraða er
mikilvægt að líta á samfélagið og sjúkrahúsin sem
heild.
Rökin fyrir heimaþjónustu eru þríþætt; val,
kostnaður og gæði (McGilloway, 1979):
1. Gamalt fólk kýs að fá aðstoð heima. Jafnvel
háaldrað lasburða fólk vill frekar vera heima hjá
sér en á stofnun.
2. Þjónusta, sem veitt er utan stofnana, er ódýrari
upp að vissu marki. Algengt er að fólk nái 80-
90 ára aldri nú á tímum. Svo gamalt fólk er
oftast líkamlega eða andlega vanhæft og þarf
aðstoð allan sólarhringinn. Nýleg rannsókn frá
Hollandi bendir til að slíka umönnun sé dýrara
að veita utan stofnana en innan.
3. Þjónusta, sem veitt er utan stofnana, veitir fólki
meira svigrúm fyrir einkalíf, sjálfstjórn, sjálfræði
33