Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1994, Blaðsíða 16
Tímarit hjúkrunarfræðinga 2. tbl. 70. drg. 1994
Fyrir greinahöfunda
Stefna
Stefnt er að útgáfu Tímarits hjúkr-
unarfræðinga fjórum sinnum á ári, að
vori, sumri, hausti og vetri. Það er
fyrst og fremst vettvangur fræðilegrar
umræðu um hjúkrun. Jafnframt er
því ætlað að endurspegla fjölbreyttan
starfsvettvang hjúkrunarfræðinga. I
tímaritinu eru birtar greinar um
hjúkrunarstörf, nýjar rannsóknir í
hjúkrun, viðtöl við fólk um hjúkrun
og aðrar faglegar upplýsingar sem eiga
erindi til hjúkrunarfræðinga.
Tímarit hjúkrunarfræðinga er eldu
vettvangur fyrir félags- og sérhags-
munamál hjúkrunarfræðinga.
Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa
og rekstur blaðsins sé í samræmi við
ritstjórnarstefnu þess.
Ritnefnd ber ábyrgð á faglegu efni
blaðsins, að það sé í samræmi við rit-
stjórnarstefnu þess.
Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur metn-
að í að tímaritið sé vandað að því er
varðar málfar, útlit og efni. Ahersla er
lögð á að faglegar greinar standist vís-
indalegar kröfur. Þess vegna setur rit-
nefnd reglur um það hvernig höf-
undum ber að skila efni til blaðsins.
Ritnefnd áskilur sér rétt til að birta
greinar eða hafna þeim og til að setja
greinar upp og aðlaga að útliti blaðs-
ins. Avallt er leitað umsagnar utanað-
komandi aðila um rannsókna- og
fræðigreinar.
Leiðbeiningar
Greinahöfundar eru vinsamlegast
beðnir um að skila greinum til Tíma-
rits hjúkrunarfræðinga, Suðurlands-
braut 22, 108 Reykjavík. Ef um
rannsóknagreinar er að ræða þá tekur
vinnsla þeirra lágmark tvo mánuði
eftir að þær berast til blaðsins. Yfir-
leitt tekur skemmri tíma að ganga frá
öðru efni í blaðið.
Greinum skal skilað í þríriti hverju
sinni. Endanlegri gerð skal skila á
tölvudisklingi. Hafið 4 sentimetra
spássíu á alla vegu. Þannig verður
línulengdin 13 sentimetrar á A4 en
14 sentimetrar á „US letter“ síðu-
stærð. Jafnið vinstra megin en ekki
hægra megin, notið tvöfalt línubil og
12 punkta Times letur. Heimildalisti
takmarkast af tilvísunum í viðkom-
andi grein.
Vandið málfar og íslenskið erlend orð
ef unnt er. Sé um sjaldgæfa þýðingu
orða að ræða skal setja erlenda orðið
aftan við það íslenska í sviga. Skamm-
stafanir skulu útskýrðar í fyrsta skipti
sem þær koma fram. Myndir og
teikningar skulu vera nægilega skýrar
til að hægt sé að prenta eftir þeim.
Rannsóknagreinar
Um rannsóknagreinar gildir eftirfar-
andi sérstaklega:
Uppsetning greinanna skal vera
samkvæmt reglum ameríska sálfræð-
ingafélagsins. Upplýsingar um þær er
að finna í bókinni Publication
Manual of the American Psycho-
logical Association og í íslenskri þýð-
ingu í bókinni Gagnfræðakver handa
háskólanemum eftir Friðrik H. Jóns-
son og Sigurð J. Grétarsson.
Titilsíða: Þar skal koma fram nafn
greinar og höfunda(r), starfsheiti og
upplýsingar um náms- og starfsferil.
Útdráttur: Útdráttur á að vera stuttur
(hámark 150 orð) og ensk þýðing á
honum skal fylgja. í útdrættinum á
að koma fram: Tilgangur rannsóknar-
innar, aðferð í grundvallaratriðum,
helstu athuganir, niðurstöður og
ályktanir.
Fræðilegur bakgrunnur: I inngangi
þessa kafla á tilgangur rannsóknarinn-
ar að koma skýrt fram. í fræðilegri
umfjöllun skal vísa á nauðsynlegar
heimildir en ekki gera víðtæka fræði-
lega úttekt á viðfangsefninu. Athugið
vel að heimildalistar og tilvísanir séu
rétt og samræmd.
Aðferð: Lýsið úrtaki, rannsóknarað-
ferð (tilraun, könnun, magnbundin,
gæðabundin o.s.frv.), mælitæki/spurn-
ingalista og tölfræðiathugunum nægi-
lega vel til að aðrir geti endurtekið
rannsóknina. Vísið í heimildir að
þeim aðferðum sem beitt er ef þær
eru til. Getið þess ef leyfi rannsókna-
eða siðanefnda var fengið til að gera
rannsóknina.
Niðurstöður: Niðurstöður skulu sett-
ar skipulega fram með töflum og
myndum sem skal vísað skýrt í í
texta. Endurtakið ekki nákvæmlega í
textanum það sem töflurnar sýna
heldur dragið saman aðalatriði. Stund-
um nægir að setja einstaka niðurstöð-
ur fram með fáum orðum í texta.
Umræða: Hér skal leggja áherslu á
þau atriði í rannsókninni sem eru ný
og ályktanir sem draga má af þeim.
Dragið ekki saman niðurstöður úr
næsta kafla á undan. Látið koma
fram hvaða máli niðurstöður rann-
sóknarinnar skipta, takmarkanir þeirra
og tengsl við aðrar rannsóknir. Skoð-
ið niðurstöðurnar út frá tilgangi
rannsóknarinnar en varist alhæfingar
sem ekki eru studdar af niðurstöðum.
Gefið hugmyndir að nýjum rann-
sóknum og tilgátum.
Þakkir: Berið einungis fram þakkir til
fólks sem hefur veitt mikla aðstoð við
verkefnið og að fengnu leyfi viðkom-
andi.
Heimildir: Fylgið reglum APA eins
og að ofan greinir og þá sérstaklega
íslensku þýðingunni í Gagnfræðakver-
inu. Fylgið þessum reglum nákvæm-
lega og frá byrjun, það sparar mikla
vinnu áður en yfir lýkur. Ljósrit af
reglum þessum er hægt að fá hjá
Tímariti hjúkrunarfræðinga.
16