Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1994, Blaðsíða 28
Tímarit hjúkrunarfræðinga 2. tbl. 70. drg. 1994
Þorgerður Ragnarsdóttir
Leitum úrræða en ekki
vandamála
Viðtal við Margarethe Lorensen, prófessor við
Háskólann í Ósló
Á ráðstefnu Öldrunarfrteðafélags íslands á Hótel Loftleiðum í
september 1993 var dr. Margarethe Lorensen, prófessor við hjúkr-
unardeild Háskólans í Ósló, einn af aðalfyrirlesurunum. Við pað
tækifæri var eftirfarandi viðtal tekið við hana fyrir Tímarit
hjúkrunarfræðinga.
Dr. Margarethe Lorensen er stríðsárabarn, fædd í Tonders á Suður-Jótlandi árið
1942. Eftir gagnfræðapróf langaði hana að læra eitthvað sem tengdist landbúnaði en
föður hennar, sem var landbúnaðarverktaki, leist ekki á það. Hann vildi að hún yrði
kennari, skrifstofudama eða hjúkrunarfræðingur.
Það er erfitt að skilja að þessi stóra og gjörvilega kona hafi einhvern tímann
þurft að láta undan síga. En kannski ber hýrt og hlýlegt yfirbragðið einmitt vott
um persónu sem er seinþreytt til vandræða og vill frekar semja en láta sverfa til
stáls. Hvað sem því líður og hvað sem fór á milli þeirra feðgina þarna í byrjun
sjöunda áratugarins varð niðurstaðan sú að Margarethe Lorensen varð hjúkrunar-
fræðingur en ekki búfræðingur.
Að loknu grunnnámi í hjúkrun árið 1964 stefndi hugurinn hærra. Eftir að hafa
aflað sér svolítillar starfsreynslu hóf hún nám í Danmarks sygeplejerskehojskole í
Arósum og lauk þaðan prófi árið 1969. Þar er boðið upp á framhaldsnám í hjúkr-
unarstjórnun og kennslufræði á háskólastigi, sem m.a. margir íslenskir hjúkrunar-
fræðingar hafa lokið. En Margarethe Lorensen var enn ekki búin að fá nóg eftir
dvölina þar. Til að afla sér betri undirstöðu í enskri tungu og aukinnar menntunar í
hjúkrun hélt hún síðan til Bandaríkjanna þar sem hún gerði það ekki endasleppt.
Hún lauk meistaragráðu í handleiðslu og ráðgjöf (guidance and counselling) frá
Arizonaháskóla árið 1972. Annarri meistaragráðu í fæðingarhjúkrun lauk hún síðan
frá háskólanum í Denver í Colorado ári síðar. Verkefni hennar þar vakti áhuga
hennar á rannsóknum svo að hún ákvað að halda áfram námi. Doktorsprófi lauk
hún loks frá ríkisháskólanum í Arizona árið 1976.
Einhvern tímann á þessum árum giftist hún í Bandaríkjunum og eignaðist tvö
börn. Hjónabandið entist þó ekki og árið 1976 hélt hún ein heim til Danmerkur
með börnin tvö.
I Danmörku var þá ekki algengt að hjúkrunarfræðingar hefðu lokið doktors-
prófi. Þó hafði fyrsti danski hjúkrunarfræðingurinn, Christiane Reimann, lokið
doktorsprófi frá kennaradeild Columbiaháskóla árið 1925. Hálfri öld seinna kom
Margarethe Lorensen og var þá eini starfandi danski hjúkrunarfræðingurinn með
doktorspróf að því er hún best veit sjálf.
28