Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1994, Blaðsíða 6
Tímarit hjúkrunarfræðinga 2. tbl. 70. árg. 1994
Hverjir þurfa
studning?
Vert er ad geta þess ad oft eru
það þeir sem teija sig engan
stuðning þurfa, sem hafa mesta
þörf í raun og veru. En hver á þá
að leita eftir aðstoð? Hver ber
ábyrgðina? Það er greinilega ekki
alltaf hægt að ætlast til þess að
sá aðili, sem á um sárt að binda,
eigi frumkvæðið. Því beinist at-
hyglin að samstarfsfólki og stjórn-
endum. Eigum við alltaf að bíða
þangað til ástandið er orðið mjög
alvarlegt? Hversu alvarlegt er
nógu alvarlegt? Áfallahjálp þarf
að koma til á fyrstu þremur sólar-
hringunum eftir áfallið, annars er
hætt við að hún komi ekki að
gagni.
Ég tel æskilegast að við sláum af
okkar misskilda hetjuskap sem fel-
ur í sér að setja upp steinandlit
og viðurkenna enga vanlíðan,
blása á þann möguleika að við
getum gert mistök, segja sam-
starfsfólki okkar að skipta sér ekki
af því sem því komi ekki við, bíta
á jaxlinn og bölva í hljóði og leita
ekki læknis fyrr en allt er um
seinan. Slíkar „hetjur" deyja ung-
ar og til hvers?
Við þurfum öll á stuðningi að
halda. Vandinn er hins vegar sá
að allt of margir halda að það sé
lítillækkun í því fólgin að viður-
kenna þörf sína fyrir stuðning. En
það er enginn styrkur í því
fólginn að horfast ekki í augu við
staðreyndir.
Það er enginn styrkur í því fólg-
inn að segja: „Það er ekkert að
hjá okkur," því við vinnum á vett-
vangi þar sem heilbrigði er mark-
mið en oft fjarri veruleikanum. Og
það er slæm heilbrigðisstefna að
ætla að lækna og byggja upp
heilsu allra nema heilbrigðisstarfs-
fólks. Því heilbrigðara sem heil-
brigðisstarfsfólkiö er, því meiri og
betri verður þjónusta þess.
Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur
Ríkisspítala
HJdLPdRTÆKJdBdMKIfM —TLTL
----------------------------LTLT
Legusáravarnir
Sárameðferð
Stomahjúkrun
Ofnæmi
Þvagleki
Saurleki
Þetta eru algeng viðfangsefni hjúkrunarfræðingsins.
Höfum margar lausnir til að auðvelda meðferð.
Einnig fjölbreytt úrval af tæknilegum hjálpartækjum.
Ráðgjöf hjúkrunarfræðings og iðjuþjálfa á staðnum.
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 10 - 17.
HJÁLPARTÆKJABANKINN
HÁTÚNI 12, 105 REYKJAVÍK
SÍMI 62 33 33, GRÆNT NÚMER 99 62 33
HJÚKRUNARVÖRUR
Mikið úrval af almennum og sérhæfðum
hjúkrunar- og læknavörum frá þekktum
og viðurkenndum framleiðendum.
Fyrir svœfinga- og gjörgtesludeildir:
Barkatúbur, barkastomitúbur, filterar,
mænudeyfingar, thorax-dren o.fl. frá PORTEX.
Fyrir skurðstofur:
Sog, dren, slöngur, skurðstofuplast,
Lofric-þvagleggir o.fl. frá ASTRA TECH.
Blóðþrýstingsmælar frá SPEIDEL + KELLER.
Bleiur, undirlegg o.fl. frá MÖLNLYCKE.
Við leggjum sérstaka áherslu á hjálpargögn
við þvagleka ásamt faglegri ráðgjöf
og fræðsluefni þar að lútandi.
Frekari upplýsingar veitir
hjúkrunarfræðingur REKSTRARVARA.
Þekking - Úrval - Þjónusta
REKSTRARVÖRUR
Réttarhálsi 2 - 110 Rvík - Símar 31955 - 685554
6