Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1994, Blaðsíða 32

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1994, Blaðsíða 32
Tímarit hjúkrunarfræðinga 2. tbl. 70. árg. 1994 Dr. Margarethe Lorensen Endurhæfing aldraðra Útdráttur úr erindi sem flutt var á ráðstefnu Öldrunarfræðafélags íslands í september 1993. (Þýðing úr ensku) Margarethe Lorensen: Hjúkrunarpróf í Danmörku árið 1964, framhaldsnám við Danmarks sygeplejerskehoj- skole árið 1969, M.A. í handleiðslu og ráðgjöf 1972, M.S. í fæðingarhjúkrun 1973, doktorspróf frá ríkisháskólan- um í Arizona 1976. Starfandi prófessor í hjúkrun við Háskólann í Ósló. Aldraðir íbúar Norðurlanda Mikilvægt er að þeir sem móta stefnu í heil- brigðismálum séu meðvitaðir um það að samfara lækkandi fæðingar- og dánartíðni fer hlutfall aldr- aðra íbúa ört vaxandi (Macfayden, 1990). Af þeim sem eru 65 ára og eldri fjölgar þeim sem eru 80 ára og eldri hlutfallslega hraðast. A Norðurlöndum var hlutfall þeirra íbúa, sem eru 65 ára og eldri árið 1989, lægst á Islandi, 10,5%, en hæst í Svíþjóð, 17,8% (NOMESKO 1991). A árunum 1966-1991 voru lífslíkur nýfæddrar konu mestar í Svíþjóð, 80,1 ár, en minnstar í Dan- mörku, 77,7 ár. Lífslíkur karla voru hins vegar mestar á Islandi, 75,2 ár, en minnstar í Danmörku og Finnlandi, 70,7 ár (NOMESKO, 1991). Lífslíkur kvenna við fæðingu á Norðurlöndum eru ekld einungis meiri en karla heldur er dánar- tíðni þeirra einnig lægri í öllum aldurshópum í öll- um löndunum fimm. Þar af leiðandi hækkar hlut- fall kvenna í öllum aldurshópum með tímanum. Meirihluti kvenna 75 ára og eldri eru einhleyp- ar, ekkjur eða fráskildar, með lágar tekjur (Torrey o.fl., 1989; Davies, 1989). Petersen og Hollnagel (1984) fundu að læknisvitjunum fjölgar með aldri og að konur fara oftar til læknis en karlar. Innlagnir á sjúkrahús verða jafnvel enn tíðari með aldri og þar eru konur einnig fjölmennari en karlar. Því má segja að fjárhagserfiðleikar og heilsubrestur séu að miklu leyti vandamál eldri kvenna. Þetta gæti þó breyst í framtíðinni þar sem dánartíðni útivinnandi kvenna af völdum hjartasjúkdóma og lungna- krabbameins er sú sama og karla. Þetta skýrir kannski einnig hvers vegna lífslíkur danskra kvenna eru minni en kvenna á hinum Norðurlöndunum því að þar er algengast að konur stundi vinnu utan heimilis í öllum löndunum fimm. Heilsufar aldraðra Þó að erfitt sé að henda reiður á hve algengt er að gamalt fólk þurfi utanaðkomandi aðstoð og hjúkrun benda ýmsar rannsóknir til þess að ein- ungis 6 - 8% af fólki, sem er eldra en 65 ára, hafi fasta búsetu á elli- og hjúkrunarheimilum. Um það bil 12 - 17% þeirra sem búa á eigin heimilum þurfa á einhverri hjálp að halda frá aðstandendum eða hinu opinbera. Þegar á heildina er litið búa því flestir sem eru 65 ára og eldri við góða heilsu og bjarga sér án utanaðkomandi hjálpar. Algengustu dánarorsakir þeirra sem eru 65 - 74 ára er illkynja krabbamein, hjartasjúkdómar, blóð- rásarsjúkdómar í heila, öndunarfærasjúkdómar og utanaðkomandi orsakir (WHO, 1989). Síðustu 20 árin virðist dánartíðni af völdum ofangreindra sjúkdóma fara lækkatidi að krabba- meini undanskildu. Breyttir og bættir lifnaðarhættir hafa mikil áhrif á lífslíkur. Þó að dánartíðni (mortality) af völdum sjúkdóma, s.s. sykursýki, heilablóðfalls og hjartaslags, hafi læklcað benda bandarískar tölur til þess að tíðni sjúkdómanna (morbidity) fari hækkandi (Verbrugge, 1984). Önnur heilsufarsvandamál, sem gera gamalt fólk háð utanaðkomandi aðstoð, eru skert heyrn og sjón, dettni, úrkölkun, þvagleki, verkir, óþægindi frá stoðkerfi líkamans og andleg hrörnun. Gamalt fólk lifir lengur með langvinna sjúk- dóma en áður og þarfnast umönnunar fremur en lækningar. Þess vegna er ekki fyrst og fremst þörf fyrir þjónustu sem byggir á hugmyndafræði læknisfræðinnar (medical model) heldur félagslega 32

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.