Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1994, Blaðsíða 21

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1994, Blaðsíða 21
Tímarit hj úkrunarfræðinga 2. tbl. 70. drg. 1994 Hjúkrunarrannsakendur! Kæri hjúkrunarfræðingur. Akveðið hefur verið að gera Gagnabanka fyrir Rannsóknir Islenskra Hjúkrunarfræðinga (Gagn.HIR). Að verkefninu standa Háskóli íslands (námsbraut í hjúkrunarfræði), Háskólinn á Akureyri (heilbrigðisdeild) og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hver samstarfsaðili hefur skipað einn hjúkrunarfræðing í nefnd sem ábyrgist faglegt mat á þeim staðreyndum sem gagnabankinn mun geyma. í nefndinni sitja Kristín Björnsdóttir, Magna F. Birnir og Sigríður Halldórsdóttir. Við val á efni gangabankans verður leiðbeiningum ICN varðandi hjúkrunarrannsóknir fylgt, en einnig stuðst við Sigma Teta Tau upplýsingastaðla um hjúkrunarrannsóknir. Framkvæmdaraðili og hönnuður gagnabankans er Ragnheiður Kjærnested, bókasafnsfræðingur, en verkefnið er hluti af MSc námi hennar í Bretlandi. Nánari upplýsingar fást hjá Ragnheiði Kjærnested í síma: 96-30828 og á skrifstofu FÍH í síma 91-687575. Það er hagur allra hjúkrunarfræðinga, að upplýsingar um rannsóknir í hjúkrun séu aðgengilegar. Það styrkir þessa fræðigrein að geta á auðveldan hátt fundið rannsóknaraðila innan sama sviðs og geta séð hvað hefur verið gert áður innan ákveðins sviðs. Það verður stétt okkar mikils virði á komandi árum að geta fylgst með þróun íslenskra hjúkrunarrannsókna. Þess vegna leitum við til þín. Hefur þú unnið að rannsókn í hjúkrun, eða ert þú að vinna að rannsókn einmitt núna? Til þess að gagnabankinn geti verið tæmandi verða allar rannsóknir að vera með. Kæri hjúkrunarrannsakandi, legðu grunn að aðgengilegum upplýsingum um íslenskar hjúkrunarrannsóknir. Það gerirðu með því að fylla út bakhlið þessa blaðs og senda það á eftirfarandi heimilisfang. Ath. ljósritið bakhliðina ef um fleiri rannsóknir er að ræða og sendið aðeins upplýsingar um eina rannsókn á hverju blaði. Ragnheiður Kjærnested, bókasafnsfræðingur Bókasafn FSA, Pósthólf 380 602Akureyri Virðingarfyllst, fyrir hönd samstarfsaðila um Gagn.HÍR Kristín Björnsdóttir, HI Magna F. Birnir, FÍH Sigríður Halldórsdóttir, HA 21

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.