Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Page 5

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Page 5
Formannspistill Áfram vegínn Herdís Sveinsdóttir Samningar hjúkrunarfræðinga við ríkis- valdið hafa farið hægt af stað. Þegar þessi pistill er skrifaður hafa 6 fundir verið haldnir með samninganefnd ríkisins (SNR). Hjúkrunarfræðingar hafa lagt fram sínar kröfur, SNR sínar og segja má að lítið meira hafi gerst. Ég á ekki von á því að dregið hafi til frekari tíðinda þegar þennan pistil ber fyrir ykkar augu. Reyndar hefur það komið mér mjög á óvart hversu lítill samn- ingsvilji ríkir við samningaborðið nú þegar þrír mánuðir eru liðnir frá því samningar hjúkrunarfræðinga voru lausir. Það er hálf-kátlegt til þess að hugsa að ég flýtti fríi hjá mér um eina viku sl. haust til þess að vera á staðnum þegar samningafundir hæfust í október! Svo einföld var ég að búast við því að umræður hæfust áður en samningurinn væri laus og að nýr samningur væri undirskrifaður um áramót, síðasta lagi undir lok janúar. Hjúkrunarfræðingar eru farnir að ókyrrast. Þeir hafa í auknum mæli sam- band við skrifstofu félagsins og fuiltrúa í samninganefnd og spyrja hverju sæti að ekki sé farið að draga til tíðinda í samningamálum. Hjúkrunarfræðingar nefna við okkur að þeir séu óhressir með ýmsar hækkanir á verðlagi undan- farið. Hækkun á ostum og mjólkurvör- um í janúarmánuði námu t.d. um 4-6%, símakostnaður hækkaði um 6,5%, fjölmiðlar hækkuðu um 4,9% og ýmis fyrirtæki hækkuðu verð á matvörum í síðastliðnum mánuði. Hjúkrunarfræð- ingar vilja að sjálfsögðu fá nýjan samning og kjarabætur nú þegar þeir verða varir við að minna er eftir í buddunni. Helstu áherslur í kröfugerð félagsins lúta að launahækkunum, styttingu vinnuvikunnar og hækkun á vaktaálagi. Að auki er lögð áhersla á ýmis atriði tengd vinnutíma, endurmenntun o.fl. Tillögur eru líka að nýjum skilgreiningum á launarömmum. Við teljum mikilvægt að deildarstjórar flokkist í C-ramma, en eins og fram kom í síðasta tímariti þá raðast einungis 7,42% okkar félags- manna í C-ramma en í flestum félögum BHM raðast yfir 20% félagsmanna í C- ramma. Hvað varðar stofnanasamninga þá er lögð áhersla á að ákveðinn rammi verði gerður um þann hluta samningsins. Enn fremur er lagt fram ákveðið lágmarksmat á persónubundnum þáttum í stofnana- samningum. Svar SNR við þvf hefur einfaldlega verið á þá leið að tilraun með stofnanasamninga hafi mistekist hjá hjúkrunarfræðingum og best sé að fara aftur í miðstýrt launakerfi. Hjúkrunarfræðingar séu eina félagið þar sem tilraunin, eins og SNR segir, hafi mistekist. Hjúkrunarfræðingar eru vissulega eina félagið sem byggði upp metnaðarfullt og faglegt kerfi til að meta störf hjúkrunarfræðinga í kjölfar stofnanasamninga. Framgangskerfi hjúkrunarfræðinga er tæki sem hefur nýst hjúkrunarfræðingum við að skil- greina störf sín og sýna fram á vinnu sína. Það hefur líka leitt til launahækk- ana því það er afkastahvetjandi og hjúkrunarfræðingar hafa svo sannarlega sýnt fram á afköst sín. Svo virðist sem viðsemjendur okkar hafi ekki búist við svo faglegum vinnubrögðum af hálfu hjúkrunarfræðinga og vilja þeir nú draga í land. Okkur í samninganefnd finnst málflutningur SNR hálfmótsagna- kenndur. í sömu setningu og sagt er að tilraunin hafi mistekist hjá hjúkrunar- fræðingum er sagt að ekki sé hægt að leggja mat á árangur nýja launakerfisins m.t.t. kynjanna vegna þess að ekki sé komin næg reynsla á kerfið. Eins og ykkur rekur trúlega minni til var því lofað í síðasta samningi að fram færi úttekt á áhrifum nýs launakerfis á launamun karla og kvenna á samningstímabilinu. Það hefur ekki verið efnt. Samninga- nefnd félagsins er opin og hlustar á allar góðar hugmyndir viðsemjenda sinna. Hins vegar er Ijóst að hugmyndir þeirra verða að vera mjög góðar varðandi afturhvarf til miðstýrðs launakerfis til að þær verði ræddar af alvöru. Á meðan samningaviðræður eru í gangi verða birtir reglulega fréttapistlar af gangi viðræðna á heimasíðu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Um leið og fer að draga til tíðinda verður að sjálf- sögðu boðað til funda með hjúkrunar- fræðingum. Fram að þeim tíma hvet ég hjúkrunarfræðinga til að hafa samband við okkur í samninganefndinni, hringja eða senda tölvupóst um málefni sem brenna á ykkur. Gerber Því lengi býr að fyrstu gerð Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 77. árg. 2001 5

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.