Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Qupperneq 25
Ásta St. Thoroddsen
lektor við hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands og sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala - háskólasjúkrahúsi
Hvað er upplýsingatækni?
Námskeið um upplýsinga-
tækni
Sl. vor var haldið námskeið á
meistarastigi um upplýsinga-
tækni í hjúkrun í námsbraut í
hjúkrunarfræði, en það var heiti
hjúkrunarfræðideildar á þeim
tíma. Námskeiðið var sambland
af net- og fjarkennslu og tóku
60 stúdentar frá 4 löndum,
Svíþjóð, Noregi, lowafylki í Bandaríkjunum og íslandi, þátt í
því. Þrjátíu stúdentar voru á Norðurlöndunum (þar af 15 á
Islandi) og 30 í Ameríku. Á námskeiðinu voru nemendur
m.a. þjálfaðir í aðferðum við að vinna úr gögnum og afla
upplýsinga. M.a. var fjallað um rafræna sjúkraskrá, flokk-
unarkerfi í hjúkrun, lágmarksvistunargögn sem nauðsynleg
eru til úrvinnslu, fjarheilsugæslu, rannsóknir og menntun
og stuðning við ákvarðanatöku með aðstoð tölvu.
Áhugi á námskeiðinu var mikill og unnu stúdentar að
mörgum hagnýtum verkefnum á sviði upplýsingatækni.
Verkefnin, sem voru ólík innbyrðis og fjölluðu um ýmis svið
upplýsinatækninnar, voru kynnt á ráðstefnu um upplýs-
ingatækni í hjúkrun sem haldin var á Grand hóteli í
september sl. Þá ráðstefnu sóttu yfir 200 hjúkrunarfræð-
ingar. Hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands mun halda
áfram samstarfi á sviði upplýsingatækni við þessa fjóra
háskóla og verður námskeiðið endurtekið á vorönn 2001.
Ljóst er að nám hjúkrunarfræðinga þarf að taka sífellt
meira mið af meðhöndlun upplýsinga og tækninýjungum
en þeim fylgja jafnframt oft áleitnar spurningar. Gert er ráð
fyrir að rafrænar sjúkraskrár verði teknar upp alls staðar í
heilbrigðiskerfinu innan skamms. Efni námskeiðsins um
upplýsingatækni miðaði einmitt að því að undirbúa hjúkr-
unarfræðinga undir umræðu, spurningar og ákvarðana-
töku sem tengjast notkun gagna, upplýsinga og þekkingar
sem nauðsynleg er fyrir heilbrigðisþjónustuna.
Tölvutækni og upplýsingatækni
Þó tölvur séu nauðsynlegar upplýsingatækninni fjallar hún
þó ekki um tölvur. Upplýsingatækni í hjúkrun fjallar í stuttu
máli um meðhöndlun gagna í hjúkrun sem nýst getur
hjúkrunarfræðingum beint við að veita betri hjúkrun eða
óbeint með því að styðja við rannsóknir, kennslu og
stjórnun. Upplýsingatækni í hjúkrun er orðin ein af sér-
greinum hjúkrunar. Hún sameinar hjúkrunarfræði, tölvunar-
fræði og upplýsingafræði með því að koma auga á, safna
saman, meðhöndla og stýra gögnum og upplýsingum
sem styðja við hjúkrunarstarfið, stjórnun, kennslu, rann-
sóknir og eflingu þekkingar í hjúkrun. Upplýsingatæknin
styður þannig við allar sérgreinar í hjúkrun, á öllum sviðum,
alls staðar, hvort sem um er að ræða á grunnsviðum eða
sérhæfðari sviðum hjúkrunar. Kröfur um aukin gæði, skil-
virkni, einstaklingshæfðari hjúkrun og rafrænar sjúkraskrár
eru meðal þeirra þátta sem ýtt hafa undir þróun þessa
nýja sviðs.
Skráning hjúkrunar á tölvutæku formi
Forsendan fyrir því að upplýsingatækni í hjúkrun nýtist
hjúkrunarfræðingum og skjólstæðingum hjúkrunarfræð-
inga er að skráning hjúkrunar sé samræmd alls staðar á
landinu og að upplýsingar sem skráðar eru í tölvu séu
kóðaðar. Hér á landi hafa hjúkrunarfræðingar verið fljótir að
tileinka sér notkun flokkunarkerfa í hjúkrun, s.s. NANDA
og NIC til að skrá hjúkrunargreiningar og meðferð.
Flokkunarkerfið NANDA hefur verið notað í kennslu í mörg
ár og NlC-flokkunarkerfið hefur einnig verið notað á
síðustu árum. Þessi flokkunarkerfi eru til staðar í
sjúkraskrárkerfinu SÖGU sem flestir hjúkrunarfræðingar á
heilsugæslustöðvum nota við hjúkrunarskráningu í dag.
SAGA hefur einnig verið notuð á slysadeild Landspítala í
Fossvogi í fjögur ár og heldur skemur á nokkrum öðrum
deildum Landspítala.
Gögn, upplýsingar, þekking
Vert er að velta lítillega fyrir sér hvað orðið upplýsingar
merkir í samhengi við upplýsingatækni. Sem hugtak hafa
upplýsingar þrjár merkingar: Gögn, upplýsingar og
þekkingu. Gögn (data) eru aðgreinanlegar einingar,
staðreyndir án túlkunar. Gögn, sem hafa verið túlkuð og
sett fram á skipulegan hátt, eru upplýsingar. Upplýsingar,
sem hafa hins vegar verið settar í samband við annað, t.d.
þar sem tengsl á milli hluta, atvika og atriða eru skýrð, eru
þekking. Þekkingu má síðan nota til að taka ákvarðanir
sem og til að búa til nýja þekkingu.
Upplýsingar úr hjúkrun og um hjúkrun eru afar
mikilvægar fyrir hjúkrunarstarfið og þróun hjúkrunar. Þær
eru forsendan fyrir þróun nýrrar þekkingar í hjúkrun og þar
með hjúkrunar sem fræðigreinar. í Ijósi þess þurfa allir
hjúkrunarfræðingar að hafa ákveðna færni til að bera til að
meðhöndla upplýsingar og koma þeim á framfæri. í dag-
25
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 77. árg. 2001