Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Page 68

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Page 68
Vsndasjóður Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr B-hluta vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsóknarfrestur er til 15. anríl 2001. \ /innuveitendur greiða sem nemur V 1,5% af föstum dagvinnulaunum hjúkrunarfræðinga í vísindasjóð Fé- Umsóknum sé skilað á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 22. lags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hrein eign sjóðsins um áramót er hverju sinni til úthlutunar. Sjóðurinn er í vörslu félagsins og skiptist í A- og B-hluta. A-hluti 1 A-hluta koma 90% af tekjum sjóðs- ins og skal þeim varið til að greiða hverjum sjóðfélaga árlega framlag fyrir útlögðum kostnaði vegna endur- menntunar, rannsóknar- eða þróun- arstarfa. Félagið sér um að greiða úr A-hluta sjóðsins til félagsmanna á fyrsta ársfjórðungi hvert ár. Ekki þarf að sækja sérstaklega um framlagið, upphæðin er lögð inn á bankareikn- ing félagsmanna, sem hafa gefið upp reiknings- og bankanúmer sitt hjá félaginu, eða send með ávísun heim. Félagsmaður, sem hefur verið í fullu starfi tímabiiið 1. janúar til 30. nóvember árið fyrir úthlutun, á rétt á fullri úthlutun. Félagsmaður, sem hefur unnið hlutastarf á sama tímabili, á rétt á úthlutun í hlutfalli við vinnuframlag. Ekki er úthlutað til félagsmanna sem hófu störf eftir 1. september árið fyrir úthlutun. B-hluti Úr B-hluta vísindasjóðs er þeim 10%, sem eftir eru af tekjum sjóðsins, varið til að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með Vísindasjóður A-hluti Greiðslur úr A-hluta vísindasjóðs félagsins verða lagðar beint inn á bankareikning félagsmanna í lok mars nk. því að styrkja rannsókna- og þróunarverkefni. Úr þeim hluta er úthlutað einu sinni á ári. Úr starfsreglum fyrir B-hluta vísindasjóðs Hjúkrunarfræðingar, sem eiga aðild að sjóðnum, geta sótt um styrki úr honum til að sinna fræðimennsku. Umsóknir skulu metnar af stjórn vísindasjóðs og sérfróðum aðilum á hverju sérsviði hjúkrunar. í þverfag- legum verkefnum, sem fleiri en einn aðili sækir um og ekki eru allir aðilar að sjóðnum, getur upphæð styrks aldrei orðið hærri en sem nemur hlut styrkhæfra sjóðfélaga í verkefninu. Sé ekki úthlutað að fullu úr B- hluta á yfirstandandi sjóðsári leggst afgangur við sjóðinn næsta ár á eftir. Lokaverkefni nemenda í B.S. námi eru ekki styrkhæf. Lokaverkefni til M.S. eða doktorsgráðu geta verið styrkhæf að uppfylltum almennum skilyrðum enda sé viðkomandi hjúkrunarfræðingur aðili að sjóðnum árið sem réttur til úthlutunar úr A- hluta sjóðsins ávinnst. Styrkupphæðir verða greiddar út í áföngum í samræmi við framgang verksins enda skili styrkþegi inn áfangaskýrslu. Lokaskýrslu skal skilað til stjórnar vísindasjóðs ásamt niðurstöðum, t.d. tímaritsgrein. Vísindasjóður hefur á hverjum tíma yfirlit yfir allar styrkumsóknir og styrkveitingar frá stofnun sjóðsins í janúar 1994. Verði ekkert úr verkefni eða því ekki lokið af einhverjum ástæðum skal styrkþegi gera stjórn sjóðsins grein fyrir ástæðum þess og endurgreiða þann hluta styrksins sem ekki hefur verið notaður til verkefnisins. í umsókn um styrk þurfa að koma fram eftirfarandi upplýsingar: Nafn umsækjanda, menntun, starfs- reynsla og reynsla af rannsóknar- eða þróunarvinnu. Greinaskrif: • Heiti rannsóknar- verkefnis/þróunarverkefnis. • Markmið með vinnu verkefnis. • Upplýsingar um fræðilegt gildi fyrir hjúkrun/heilbrigðisvísindi. • Rannsóknaráætlun/verkáætlun. • Aðferðafræði. • Heimildaskrá. • Mælitæki. • Tímaáætlun. • Kostnaðaráætlun. Við mat á styrkhæfni skulu þessi atriði metin skv. eftirfarandi viðmiðum: Leiðir verkefnið til nýrrar þekkingar eða þróunar? Hvert er mikilvægið? Er framsetning markmiða skýr? Er framkvæmdaáætlun raunhæf og í samræmi við markmið? Er nauðsynleg aðstaða fyrir hendi? Er fagleg þekking umsækjanda fullnægjandi? Er kostnaðar- og tímaáætlun trúverðug? Er hægt að fella niður eða lækka einhverja kostnaðarliði, hvernig? Almennar athugasemdir um umsókn og verkefni. Hver ofangreindra þátta verði metinn samkvæmt ákveðnum kvarða, t.d. 0-5, til að auðvelda mat og ákvarðanatöku við styrkveitingar. Styrkir úr vísindasjóði geta nýst til að Ijúka verkefnum til kynningar á ráðstefnum. 68 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 77. árg. 2001

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.