Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Side 68
Vsndasjóður Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr B-hluta vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsóknarfrestur er til 15. anríl 2001.
\ /innuveitendur greiða sem nemur V 1,5% af föstum dagvinnulaunum hjúkrunarfræðinga í vísindasjóð Fé- Umsóknum sé skilað á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 22.
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Hrein eign sjóðsins um áramót er
hverju sinni til úthlutunar. Sjóðurinn
er í vörslu félagsins og skiptist í A-
og B-hluta.
A-hluti
1 A-hluta koma 90% af tekjum sjóðs-
ins og skal þeim varið til að greiða
hverjum sjóðfélaga árlega framlag
fyrir útlögðum kostnaði vegna endur-
menntunar, rannsóknar- eða þróun-
arstarfa. Félagið sér um að greiða úr
A-hluta sjóðsins til félagsmanna á
fyrsta ársfjórðungi hvert ár. Ekki þarf
að sækja sérstaklega um framlagið,
upphæðin er lögð inn á bankareikn-
ing félagsmanna, sem hafa gefið upp
reiknings- og bankanúmer sitt hjá
félaginu, eða send með ávísun heim.
Félagsmaður, sem hefur verið í
fullu starfi tímabiiið 1. janúar til 30.
nóvember árið fyrir úthlutun, á rétt á
fullri úthlutun. Félagsmaður, sem
hefur unnið hlutastarf á sama
tímabili, á rétt á úthlutun í hlutfalli við
vinnuframlag. Ekki er úthlutað til
félagsmanna sem hófu störf eftir 1.
september árið fyrir úthlutun.
B-hluti
Úr B-hluta vísindasjóðs er þeim
10%, sem eftir eru af tekjum
sjóðsins, varið til að stuðla að
aukinni fræðimennsku í hjúkrun með
Vísindasjóður A-hluti
Greiðslur úr A-hluta
vísindasjóðs félagsins
verða lagðar beint inn
á bankareikning
félagsmanna í lok
mars nk.
því að styrkja rannsókna- og
þróunarverkefni. Úr þeim hluta er
úthlutað einu sinni á ári.
Úr starfsreglum fyrir B-hluta
vísindasjóðs
Hjúkrunarfræðingar, sem eiga aðild
að sjóðnum, geta sótt um styrki úr
honum til að sinna fræðimennsku.
Umsóknir skulu metnar af stjórn
vísindasjóðs og sérfróðum aðilum á
hverju sérsviði hjúkrunar. í þverfag-
legum verkefnum, sem fleiri en einn
aðili sækir um og ekki eru allir aðilar
að sjóðnum, getur upphæð styrks
aldrei orðið hærri en sem nemur hlut
styrkhæfra sjóðfélaga í verkefninu.
Sé ekki úthlutað að fullu úr B-
hluta á yfirstandandi sjóðsári leggst
afgangur við sjóðinn næsta ár á eftir.
Lokaverkefni nemenda í B.S. námi
eru ekki styrkhæf. Lokaverkefni til
M.S. eða doktorsgráðu geta verið
styrkhæf að uppfylltum almennum
skilyrðum enda sé viðkomandi
hjúkrunarfræðingur aðili að sjóðnum
árið sem réttur til úthlutunar úr A-
hluta sjóðsins ávinnst.
Styrkupphæðir verða greiddar út í
áföngum í samræmi við framgang
verksins enda skili styrkþegi inn
áfangaskýrslu. Lokaskýrslu skal
skilað til stjórnar vísindasjóðs ásamt
niðurstöðum, t.d. tímaritsgrein.
Vísindasjóður hefur á hverjum
tíma yfirlit yfir allar styrkumsóknir og
styrkveitingar frá stofnun sjóðsins í
janúar 1994. Verði ekkert úr verkefni
eða því ekki lokið af einhverjum
ástæðum skal styrkþegi gera stjórn
sjóðsins grein fyrir ástæðum þess og
endurgreiða þann hluta styrksins
sem ekki hefur verið notaður til
verkefnisins.
í umsókn um styrk þurfa að koma
fram eftirfarandi upplýsingar:
Nafn umsækjanda, menntun, starfs-
reynsla og reynsla af rannsóknar-
eða þróunarvinnu.
Greinaskrif:
• Heiti rannsóknar-
verkefnis/þróunarverkefnis.
• Markmið með vinnu verkefnis.
• Upplýsingar um fræðilegt gildi
fyrir hjúkrun/heilbrigðisvísindi.
• Rannsóknaráætlun/verkáætlun.
• Aðferðafræði.
• Heimildaskrá.
• Mælitæki.
• Tímaáætlun.
• Kostnaðaráætlun.
Við mat á styrkhæfni skulu þessi
atriði metin skv. eftirfarandi viðmiðum:
Leiðir verkefnið til nýrrar þekkingar
eða þróunar? Hvert er mikilvægið?
Er framsetning markmiða skýr?
Er framkvæmdaáætlun raunhæf
og í samræmi við markmið? Er
nauðsynleg aðstaða fyrir hendi? Er
fagleg þekking umsækjanda
fullnægjandi? Er kostnaðar- og
tímaáætlun trúverðug?
Er hægt að fella niður eða lækka
einhverja kostnaðarliði, hvernig?
Almennar athugasemdir um
umsókn og verkefni.
Hver ofangreindra þátta verði
metinn samkvæmt ákveðnum
kvarða, t.d. 0-5, til að auðvelda mat
og ákvarðanatöku við styrkveitingar.
Styrkir úr vísindasjóði
geta nýst til að
Ijúka verkefnum til
kynningar á
ráðstefnum.
68
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 77. árg. 2001