Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Side 26
legu starfi hjúkrunarfræðinga skiptir innihald upplýsinga
mestu máli. Á sviði upplýsingatækni hjúkrunar skiptir form,
uppbygging og framsetning upplýsinga miklu máli og
hvernig þessir þættir hafa áhrif á ákvarðanatöku hjúkrunar-
fræðinga.
Grunnur upplýsingatækni í hjúkrun eru því öll gögn,
upplýsingar og þekking sem fela í sér hjúkrun og að gagni
mega koma í hjúkrun, fyrir skjólstæðinga og fyrir hjúkr-
unarfræðinga.
Upplýsingatækni felur einnig í sér mat á búnaði, starfs-
háttum og fyrirkomulagi, sem koma hjúkrunarfræðingum
að gagni við hjúkrun eða styðja við störf hjúkrunarfræðinga
með aðstoð gagnastjórnunar. Hún felur m.a. í sér að
aðlaga eða sníða núverandi tækni að þörfum hjúkrunar-
fræðinga. Hún fjallar einnig um samstarf við aðrar heil-
brigðisgreinar og tölvunarfræðinga til að aðlaga tölvu-
búnað fyrir hjúkrun.
Upplýsingatækni í heilbrigðisvísindagreinum
Upplýsingatækni er í eðli sínu þverfagleg grein þar sem
saman tvinnast þekking úr heilbrigðisvísindum, tölvunar-
fræði og upplýsingafræði. Gögn um skjólstæðinga eru
þverfagleg. Hver fagstétt getur túlkað gögn um skjólstæð-
inga á sinn hátt eftir áhuga, þekkingu og sérsviði og á
þann hátt verða upplýsingar þverfaglegar og gagnlegri en
ella. Slíkar upplýsingar geta getið af sér nýja þekkingu
með aðstoð upplýsingatækninnar. Ein af forsendunum er
að gögn, sem skráð eru, séu kóðuð, samstarf sé á milli
starfsstétta sem vinna með gögnin og að þverfaglegu
námi á sviði upplýsingatækni innan Háskóla íslands verði
komið á. Auka þarf kennslu í upplýsingatækni í hjúkrunar-
fræðinámi, grunnnámi sem framhaldsnámi. Áframhaldandi
þróun, kennsla og rannsóknir í upplýsingatækni innan
hjúkrunar er ein af forsendum fyrir nútímalegum vinnu-
brögðum og vexti hjúkrunar sem fræðigreinar.
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) varð til í janúar 1999 þegar heilsugæslustöðvar og sjúkrahús á Austurlandi
voru sameinuð. Starfseiningar stofnunarinnar eru heilsugæslustöðvar á Vopnafirði, Bakkafirði, Seyðisfirði,
Egilsstöðum, Borgarfirði eystri, Reyðarfirði, Eskifirði, Neskaupstað, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði, Djúpavogi og
Breiðdalsvík. Auk þess er hjúkrunardeildin í Sundabúð á Vopnafirði, sjúkrahúsin á Seyðisfirði og Egilsstöðum og
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað innan HSA.
Markmið stofnunarinnar er að stuðla að bættu heilbrigði íbúa Austurlands. Við höfum áhuga á hvers konar
þróunarvinnu sem færir okkur nær því markmiði. Á næstu árum verður unnið að heilsueflingu í samstarfi við
félagasamtök, skóla og aðra sem vilja láta gott af sér leiða.
Vilt þú, hjúkrunarfræðingur góður, leggja okkur lið? Viðfangsefnin eru fjölbreytt og krefjandi og geta verið allt frá
bráðahjúkrun til líknandi hjúkrunar. Við bjóðum hjúkrunarstarf á litlum stöðum og í stærri byggðalögum.
Hjúkrunarfræðinga vantar til starfa á sjúkrahúsið á Egilsstöðum, bæði í fastar stöður og til afleysinga.
Hjúkrunarfræðinga vantar til sumarafleysinga á sjúkrahúsið á Seyðisfirði og í Sundabúð á Vopnafirði.
Hjúkrunarfræðinga vantar til sumarafleysinga á heilsugæslustöðvarnar á Egilsstöðum,
Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Djúpavogi og í Neskaupstað.
Nánari upplýsingar gefa:
Lilja Aðalsteinsdóttir, hjúkrunarforstjóri HSA, í síma 860-1920
Guðrún Sigurðardóttir, hjúkrunarstjóri í Neskaupstað, í síma 477-1403
Halla Eiríksdóttir, hjúkrunarstjóri á Egilsstöðum, í síma 865-0026
Sigrún Ólafsdóttir, hjúkrunarstjóri á Seyðisfirði, í síma 472-1407
Emma Tryggvadóttir, hjúkrunarstjóri á Vopnafirði, í síma 473-1320
Ingibjörg Birgisdóttir, hjúkrunarstjóri á Eskifirði, í síma 476-1252
Edda Björgmundsdóttir, hjúkrunarforstjóri á Djúpavogi, í síma 478-8840
26
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 77. árg. 2001