Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Qupperneq 43
Guðrún Jónsdóttir
hjúkrunarfræðingur og formaður Samtaka hjúkrunarfræðinga og Ijósmæðra gegn tóbaki
Að hætta að reykja
með aðstoð netsins
í þessari umfjöllun um vefsíðu
um reykleysi er sagt frá skað-
legum áhrifum reykinga, mikil-
vægi þess að hafa stuðning
þegar hætt er að reykja og
hvernig hægt er að veita stuðn-
ing í gegnum vefsíður. Einnig er
sagt frá fyrir hverju þarf að
hugsa áður en vefsíða er unnin.
Nauðsynlegt er að fólk hætti að reykja vegna þeirra
skaðlegu áhrifa sem þau 4-5.000 efni í sígarettum og
tóbaksreyk hafa á heilsufar. Einn þriðji af
sjúkrahúsinnlögnum á íslandi er vegna reykingatengdra
sjúkdóma. Reykingafólk þarf oft að leggjast inn á sjúkrahús
því það fær oftar bæði bráðaveikindi og langvinn veikindi
heldur en þeir sem reykja ekki. Þessi veikindi eru t.d.
lungnakrabbamein, lungnaþemba, öndunarfærasýkingar,
kransæðasjúkdómar og heilablóðfall. Nikótín og kolmón-
oxíð eru þau efni sem helst valda kransæðasjúkdómum.
Nikótín veldur t.d. trufiun á efnaskiptum sem eykur hættu á
æðasjúkdómum og það getur valdið hröðum hjartslætti.
Kolmónoxíð truflar súrefnisflutning og því hefur reykingafólk
minna súrefni tiltækt í frumum líkamans. Það að hætta að
reykja virðist hafa jákvæð áhrif á þá einstaklinga sem
hætta. Þeir sem hafa hætt að reykja virðast verða varir við
betri heilsu en þeir sem reykja. Það hefur verið mælt í
veikindadögum, Ijarvistardögum frá vinnu, kvörtunum út af
heilsufari, innlögnum á sjúkrahús og eftir því sem
einstaklingarnir segja sjálfir frá (Stillman, 1995).
Veraldarvefurinn er upplýsingamiðill sem margir íslend-
ingar nýta sér daglega og hægt er að nota þennan
upplýsingamiðil til að fræða fólk, veita ráðgjöf og stuðning.
Á veraldarvefnum eru ýmsar upplýsingar á vefsíðum varð-
andi reykingar og leiðir til að hætta að reykja. Sumar
þessara vefsíðna innihalda leiðbeiningar sem þarf að
kaupa eða það þarf að skrá sig sérstaklega til að fá þessar
upplýsingar en aðrar vefsíður innihalda upplýsingar sem
eru notandanum að kostnaðarlausu.
Veraldarvefurinn er stórt, opið og aðgengilegt upplýs-
ingarými þar sem upplýsingar um flestalla hluti er hægt að
birta eða nálgast. Fólk á þess kost að auka þekkingu sína,
treysta á sjálft sig og fá aukið vald.
En netinu fylgja ákveðnir ókostir því mikið magn
upplýsinga getur valdið firringu og ruglingi hjá fólki (Coiera,
1998). Á netinu er hægt að hafa mjög opna umræðu án
nokkurrar ritskoðunar en þessi gagnsemi netsins getur
einnig verið óæskileg þegar upplýsingarnar eru ekki réttar
eða jafnvel skaðandi.
Á veraldarvefnum er mikið af heilsutengdum upplýs-
ingum og ef þær eru nýttar geta þær bætt heilsu fólks.
Gagnsemi þessara upplýsinga er samt í raun ekki þekkt.
Erfitt er að meta gæði þessara upplýsinga en hægt er að
nota ákveðna þætti til að meta vefsíður. Högne Sandvik
(1999) hefur ráðlagt mönnum að meta eiganda vefsíð-
unnar, skoða hvort eiganda sé getið eða ekki, hvort höf-
undar sé getið eða ekki, hvaðan upplýsingar eða heimildir
koma, hvenær síðan var gerð og hvenær uppfærð, hvort
hægt sé að hafa samskipti t.d. með tölvupósti, hvort
auðvelt sé að fylgja tenglum og skoða upplýsingar og hvort
jafnvægi sé í upplýsingum sem gefnar eru á vefsíðunum.
Upplýsingar í tölvupósti eða fréttum geta einnig verið
uppspretta góðra upplýsinga þegar verið er að leita að
heilbrigðisupplýsingum á veraldarvefnum.
Það liggur mikil vinna að baki hverri vefsíðu og því þarf
að gera sér ákveðnar hugmyndir áður en hafist er handa.
Þegar verið er að vinna hugmyndir að vefsíðu er gott að
spyrja sig spurninga, t.d.: Hvers vegna er ég að gera
þessa vefsíðu? I vinnslu vefsíðu unn reykleysi voru svörin á
þessa leið: Ég er að gera síðu um það að hætta að reykja
og stuðningssíðu fyrir fólk þar sem fólk getur tjáð skoðanir
sínar á reykingum og reykleysi. Hverju vil ég ná fram með
þessari síðu? Ég vil að fólk hafi aðgang að upplýsingum
um reykingar, hvernig það geti hætt að reykja og viðhaldið
reykleysi. Hverju eiga notendur að ná fram með þessari
vefsíðu? Ég vil að fólk viti um leiðir til að hætta að reykja
með þeim aðferðum sem reynst hafa vel samkvæmt
rannsóknum. Hvað mun valda því að notendur koma
aftur? Efni sem er reglulega uppfært og hefur fjölbreyttar
upplýsingar. Einnig ætti stuðningurinn að verða til þess að
notendur komi aftur. Þrjár grunnspurningar þarf einnig að
43
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 77. árg. 2001