Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Page 49
Hildigunnur Svavarsdóttir, M.Sc.
verkefnastjóri fræðslumála á FSA
í þessum fréttapistli mun greinarhöfundur kynna
lesendum fyrirkomulag svokallaðrar fimmtudagsfræðslu
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri (FSA). í byrjun mars
í fyrra var farið af stað með hálfsmánaðarlega
fræðslufundi hjúkrunarfræðinga sem einnig hafa verið
sendir með aðstoð fjarfundabúnaðar á nokkra staði á
landsbyggðinni. Upphaflegur tilgangur með þessum
fræðslufundum var að koma til móts við þarfir hjúkr-
unarfræðinga á FSA svo og hjúkrunarfræðinga heil-
brigðisstofnana úti á landi hvað varðar fræðslu. Þróunin
hefur verið sú að nú höfða fræðslufundirnir til breiðari
hóps en bara hjúkrunarfræðinga og þannig er nú reynt
að ná til sem flestra starfsstétta og fræðslufundirnir
ganga því undir nafninu fimmtudagsfræðsla. Þess má
geta að slíkt fyrirkomulag fræðslu með aðstoð fjar-
fundabúnaðar er ekki alveg nýtt af nálinni á FSA því í
byrjun október 1999 var farið af stað með röð fræðslu-
daga fyrir hjúkrunarfræðinga og aðra starfsmenn sem
var skipulögð af framkvæmdastjóra hjúkrunar og
tölvudeild FSA. Sömuleiðis er vert að geta þess að
fræðsluráð lækna á FSA hefur staðið fyrir fræðslu-
fundum lækna sem einnig eru sendir út með aðstoð
fjarfundabúnaðar frá því í október 1999 og gefist vel.
Fyrirkomulag núverandi fimmtudagsfræðslu er
þannig að hún fer fram eftir hádegi annan hvern
fimmtudag og tekur fjörutíu og fimm mínútur í senn. Til
þess að geta verið þátttakandi í þessari fræðslu þarf
fjarfundabúnaður að vera til staðar á heilbrigðistofn-
ununum. Með hjálp svokallaðrar „Byggðabrúar" geta
starfsmenn hinna ýmsu heilbrigðisstofnana fylgst með
fræðslunni rétt eins og að horfa á venjulegt sjónvarp þar
sem hljóð og mynd koma fram auk þess sem
áheyrendur geta komið með fyrirspurnir.
Fimmtudagsfræðslan fer þannig fram að fyrirlesarinn
er í flestum tilvikum á Akureyri og sést hann ýmist í eigin
persónu eða þá að hann sýnir glærur sem unnar hafa
verið í Þower Þoint forritinu. Það er þó ekki algilt að
fræðslufundirnir fari fram á Akureyri því hjúkrunar-
fræðingar á Heilbrigðisstofnuninni á Egilsstöðum voru
með fræðsluerindi um slysavarnir barna í nóvember árið
2000 og gekk það mjög vel. Vonast er til að fleiri
heilbrigðisstofnanir verði með fræðsluerindi í framtíðinni
og þannig geti FSA verið „fræðsluþegi" jafnt sem
„fræðslumiðiir hvað þetta varðar. í lok hvers fræðslu-
fundar er boðið upp á fyrirspurnir og geta þær komið
frá hvaða stað sem er á landsbyggðinni (sem er
tengdur inn á Byggðabrúna) eða frá áheyrendum í
fyrirlestrasal á FSA.
Þátttakan í fimmtudagsfræðslunni árið 2000 hefur
verið mjög góð og eru að meðaltali níu heilbrigðis-
stofnanir úti á landi tengdir inn á hvern fræðslufund.
Fjöldi áheyrenda af landsbyggðinni er mismunandi eða
allt frá einum til tíu þátttakenda á hverjum stað (að
meðaltali fjórir áheyrendur) og á Akureyri eru að meðal-
tali tuttugu og sjö starfsmenn á hverjum fræðslufundi
þannig að gera má ráð fyrir að sextíu og fimm manns
að meðaltali hlýði á hvern fyrirlestur eins og sjá má á
meðfylgjandi súluriti.
Þátttakendur í fimmtudagsfræðslu
■ FSA ■ Landsbyggðin Heildarfjöldi
Efni fræðslufundanna hefur verið mjög fjölbreytt og
þannig reynt að ná til sem breiðasts hóps áheyrenda
eins og fyrr hefur verið greint frá og hafa fyrirlestramir
verið fluttir af fulltrúum hinna ýmsu starfsstétta, s.s.
hjúkrunarfræðingum, iðjuþjálfum, sálfræðingum, sjúkra-
þjálfurum, læknum, heimspekingum o.fl., við góðar
undirtektir áheyrenda.
Ánægja hefur verið með þetta framlag FSA bæði hjá
starfsfólki FSA svo og starfsfólki heilbrigðisstofnana á
landsbyggðinni. Samskipti á þessu sviði draga úr fag-
legri einangrun og efla tengsl við aðrar stofnanir en
þess má geta að það er einn liður í stefnu FSA að vera í
forystu í skipulagningu og framkvæmd fjarfunda og
fjarkennslu til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni.
ÍSLENSK
ERFÐAGREININC
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 77. árg. 2001
49