Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Side 56
launum skv. gr. 2.2.6 - 2.2.7 svo lengi sem veikindadagar
hans, taldir í almanaksdögum, verða ekki fleiri á hverjum
12 mánuðum en hér segir:
Starfstími: Fjöldi daga
Fyrsti mánuður í starfi 2
Annar mánuður í starfi 4
Þriðji mánuður í starfi 6
Eftir 3 mánuði í starfi 14
Eftir 6 mánuði í starfi 30
Við þessi réttindi bætist auk þess réttur til dag-
vinnulauna í 13 vikur eða 91 dag ef óvinnufærni
stafar af vinnuslysi eða atvinnusjúkdómi. Við þessi
laun bætast ekki greiðslur skv. gr. 2.2.6 - 2.2.7.
Laun greiðast þó ekki lengur en ráðningu er ætlað að
standa.
2.2.3 Réttur eftirlaunaþega í tímavinnu, eða annars konar
vinnu, til launa vegna óvinnufærni af völdum veikinda eða
slysa skal vera 1 mánuður á hverjum 12 mánuðum. Laun í
veikindum skal miða við meðaltal dagvinnulauna síðustu 3
mánuði fyrir veikindi.
Laun greiðast þó ekki lengur en ráðningu er ætlað að
standa.
sé um að ræða fyrirfram ákveðinn vinnutíma samkvæmt
reglubundnum vöktum eða reglubundinni vinnu starfs-
manns sem staðið hefur í 12 almanaksmánuði eða lengur
eða er ætlað að standa a.m.k. svo lengi. í veikindum
kennara skal greiða samkvæmt þeirri stundaskrá sem í
gildi er eða síðast gilti miðað við upphaf veikinda hans.
2.2.4 Starfsmaður, sem hefur óreglulegan vinnutíma og
skilar vinnuskyldu sinni með öðrum hætti en dagvinnu-
maður í reglubundinni vinnu, skal teljast hafa verið fjarver-
andi í eina viku þegar hann hefur verið óvinnufær vegna
veikinda eða slysa sem nemur vikulegri vinnuskyldu hans
og hlutfallslega þegar um styttri eða lengri fjarvist vegna
óvinnufærni er að ræða.
2.2.5 Við mat á þeim rétti, sem starfsmaður vinnur sér inn
skv. gr. 2.2.1, skal auk þjónustualdurs hjá viðkomandi
launagreiðanda einnig telja þjónustualdur hjá stofnunum
ríkis, sveitarfélaga og sjálfseignarstofnana sem kostaðar
eru að meirihluta til af almannafé enda er átt við starfstíma
á kjörum skv. lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opin-
berra starfsmanna. Á fyrstu 3 mánuðum samfelldrar ráðn-
ingar skal þó fyrri þjónustualdur samkvæmt þessari grein
ekki metinn nema viðkomandi starfsmaður hafi samfelldan
þjónustualdur hjá framangreindum launagreiðendum í 12
mánuði eða meira.
2.2.6 í fyrstu viku veikinda- og slysaforfalla, eða þann tíma
sem svarar til einnar viku vinnuskyldu starfsmanns,
greiðast auk mánaðarlauna skv. gr. 1.1.1 í kjarasamningi
fastar greiðslur, svo sem fyrir yfirvinnu, vakta-, gæsluvakta-
og óþægindaálag, og greiðslur fyrir eyður í vinnutíma enda
56
2.2.7 Eftir fyrstu viku veikinda- og slysaforfalla, eða þann
tíma sem svarar til einnar viku vinnuskyldu starfsmanns,
skal hann auk launa, sem greidd verða skv. gr. 2.2.6, fá
greitt meðaltal þeirra yfirvinnustunda sem hann fékk
greiddar síðustu 12 mánaðarleg uppgjörstímabil yfirvinnu
eða síðustu 12 heilu almanaksmánuðina. Við útreikning
yfirvinnustunda samkvæmt þessari grein skal ekki telja
með þær yfirvinnustundir sem greiddar hafa verið skv. gr.
2.2.6. Starfsmaður skóla og annarra stofnana, þar sem
venjuleg starfsemi liggur niðri hluta ársins, skal í stað reglu
þessarar aðeins fá greidda aðra yfirvinnu en greinir í gr.
2.2.6 þá mánuði sem venjuleg starfsemi fer fram og skal
yfirvinnustundafjöldinn ákveðinn með því að finna mán-
aðarlegt meðaltal þeirra tilfallandi yfirvinnustunda sem
hann fékk greiddar síðustu 9 heilu starfsmánuði stofnunar-
innar eða samsvarandi tímalengd ef starfsmánuðir eru
færri eða fleiri.
2.2.8 Ef starfsmaður er fjarverandi vegna orlofs á við-
rmiðunartímabili skv. gr. 2.2.7 skal telja að hann hafi sama
meðaltal yfirvinnu orlofsdagana og hinn hluta tímabilsins.
2.2.9 Verði starfsmaður óvinnufær af völdum slyss á
vinnustað eða á eðlilegri leið til eða frá vinnu, greiðast laun
skv. gr. 2.2.7 frá upphafi fjarvistanna.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 77. árg. 2001