Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Qupperneq 57
2.2.10 Ef starfsmaður að læknisráði og með leyfi forstöðu-
manns vinnur hlutastarf vegna slyss eða veikinda skal miða
greiðslu veikindalauna fyrir dagvinnu við það starfshlutfall
sem hann vinnur ekki vegna slyssins eða veikindanna.
2.3 Starfshæfnisvottorð
2.3.1 Starfsmaður, sem verið hefur óvinnufær vegna veik-
inda eða slysa samfellt í 1 mánuð eða lengur, má ekki heija
starf að nýju nema læknir votti að heilsa hans leyfi. Krefjast
má vottorðs trúnaðarlæknis hlutaðeigandi stofnunar.
2.4 Lausn frá störfum vegna endurtekinnar eða
langvarandi óvinnufærni vegna veikinda eða slysa
2.4.1 Ef starfsmaður er óvinnufær vegna veikinda eða
slysa svo mánuðum skiptir á hverju ári um fimm ára tímabil
og ekki er skýlaust vottað samkvæmt ákvæðum gr. 2.3.1
að hann hafi fengið heilsubót sem ætla megi varanlega,
má leysa hann frá störfum vegna heilsubrests.
2.4.2 Þegar starfsmaður hefur verið samfellt frá vinnu vegna
veikinda eða slysa launalaust í jafnlangan tíma og þann tíma
er hann átti rétt á að halda launum í fjarveru sinni skv. gr.
2.2.1, má leysa hann frá störfum vegna heilsubrests.
2.4.3 Ekki skulu framangreind ákvæði um veikinda- og
slysaforföll vera því til fyrirstöðu að starfsmaður láti af
störfum er hann óskar þess ef hann er samkvæmt læknis-
vottorði orðinn varanlega ófær um að gegna starfi vegna
vanheilsu. Krefjast má vottorðs trúnaðarlæknis hlutaðeig-
andi stofnunar.
2.5 Lausnarlaun og laun til maka látins starfsmanns
2.5.1 Þegar starfsmaður er leystur frá störfum skv. gr.
2.4.1-2.4.3 skal hann halda föstum launum skv. gr. 2.2.6 í
3 mánuði.
2.5.2 Sama gildir um greiðslu vegna látins starfsmanns ef
hinn látni var í hjúskap, staðfestri samvist, skráðri sambúð
eða sambúð sem að öðru leyti má jafna til hjúskapar í
merkingu 44. gr. almannatryggingalaga nr. 117/1993.
2.5.3 Þegar starfsmanni er veitt lausn skv. gr. 2.4.1-2.4.3
eða hann andast skal greiða laun hans, svo sem ella hefði
verið gert, til loka lausnar- eða andlátsmánaðar áður en
laun skv. gr. 2.5.1-2.5.2 koma til álita. Þetta á þó ekki við
ef launagreiðslum hefur áður lokið, t.d. vegna þess að
réttur til launa í veikindum skv. gr. 2.2.1-2.2.10 var
fullnýttur.
2.6 Skráning veikindadaga
2.6.1 Halda skal skrá yfir veikindadaga starfsmanns við
hverja stofnun. Ef starfsmaður flyst milli starfa skal leggja
saman veikindadaga hans í báðum störfum eftir því sem
við á.
2.7 Veikindi og slysaforföll í fæðingarorlofi
2.7.1 Veikindatími starfsmanns í fæðingarorlofi telst ekki til
veikindaforfalla og á starfsmaður ekki rétt til launa í
veikinda- og slysatilvikum þann tíma.
2.8 Veikindi barna yngri en 13 ára
2.8.1 Annað foreldri á rétt á að vera frá vinnu í samtals 10
vinnudaga (80 vinnuskyldustundir miðað við fullt starf) á
hverju almanaksári vegna veikinda barna sinna undir 13 ára
aldri enda verði annarri umönnun ekki við komið. í þessum
fjarvistum skal greiða starfsmanni dagvinnulaun og vakta-
álag skv. reglubundinni varðskrá/vaktskrá. Réttur þessi
hefur ekki áhrif á rétt starfsmanns skv. öðrum greinum.
2.9 Samráðsnefnd
2.9.1 Setja skal á fót samráðsnefnd. Skal hún skipuð
fulltrúum samningsaðila, þremur tilnefndum af hvorum
aðila samkomulags þessa. Samráðsnefndin skal fjalla um
túlkun og útfærslu einstakra ákvæða um veikindarétt skv.
samkomulagi þessu.
2.10 Ákvæði til bráðabirgða
2.10.1 Starfsmaður, sem hefur fyrir gildistöku samkomu-
lags þessa áunnið sér fleiri veikindadaga skv. áðurgildandi
reglum, skal halda þeim á meðan á samfelldri ráðningu
stendur en um frekari ávinnslu fer skv. samkomulagi þessu.
ÍKKAK ísUnskVA
Kjúkrw í KM
Stofnfundur fagdeildar um upplýsingatækni í hjúkrun verður haldinn í fundarsal Félags íslenskra hjúrkrunarfræðinga
á Suðurlandsbraut 22 fimmtudaginn 1. mars 2000
kl. 20:00
Allir hjúkrunarfræðingar, sem eru áhugasamir um upplýsingatækni, eru hvattir til að mæta.
Undirbúningsnefndin
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 77. árg. 2001
57