Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Qupperneq 64
{iái^MtmÁ i '(YAwjuUsskólim
Ásta Möller var fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu sem
lögð hefur verið fram á Alþingi um heilsuvernd í framhalds-
skólum en aðrir flutningsmenn eru þau Drífa Hjartardóttir,
Katrín Fjeldsted, Ásta R. Jóhannesdóttir, Hjálmar Árnason,
Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir, Þuríður
Backman og Arnbjörg Sveinsdóttir.
Ásta sagði í samtali við Tímarit hjúkrunarfræðinga að
tillagan væri m.a. byggð á baráttumálum hjúkrunarfræðinga til
margra ára. Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga 12. maí 1997
hefði haft yfirskriftina „heilbrigt ungt fólk = björt framtíð"
og í tilefni dagsins fjölluðu íslenskir hjúkrunarfræðingar víða
um land um heilbrigði ungs fólks í nútíð og framtíð. Á
fulltrúaþingi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga það sama ár,
sem haldið var 15.-16. maí, voru samþykktar ályktanir til
heilbrigðis- og menntamálaráðherra þar sem skorað var á
yfirvöld að skólahjúkrunarfræðingar væru ráðnir til starfa í
framhaldsskólum landsins. Þingsályktunartillagan felur í sér
að skipuð verði nefnd til að gera tillögur um hvernig
skipulagðri heilsuvernd fyrir ungt fólk verði háttað.
„Eitt af því sem ég lærði í námi mínu var að færa þjónust-
una til fólksins, það er t.d. sama hugsun að baki hugmyndum
um að færa kirkjuna út til fólksins. Níutíu prósent ungmenna nú
um stundir eru í framhaldsskólum og þeir eru að glíma við ýmis
þroskaverkefni, þau eru að taka út sinn persónuþroska, byrja
að fikta við reykingar, fíkniefni, áfengisneyslu, stunda kynlíf og
verða ökumenn svo eitthvað sé nefnt. Sjálfsvíg eru mjög tíð
meðal ungs fólks og þessir krakkar eru að glíma við mjög
margt, en samfélagið hefur litið svo á að ungt fólk þurfi ekki á
heilbrigðisþjónustu að halda því það sé svo frískt og er þá
eingöngu litið á heilbrigðisþjónustuna út frá líkamlegum þáttum.
Það er ekki til sérstök heilsugæsla fyrir ungt fólk á þessum aldri
eins og aðra hópa, svo sem ungbörn, smábörn og grunn-
skólabörn. í nágrannalöndunum er hins vegar skipulögð heilsu-
gæsla fyrir framhaldsskólanemendur og háskólanemendur. Ég
held það geti verið mjög til bóta ef nemendur eiga kost á að
hitta skólahjúkrunarfræðing í framhaldsskólunum, geti t.d
fengið neyðargetnaðarvörnina og ráðleggingar í framhaldi af
því. Mér finnst þetta vera eitt af stóru verkefnunum fram undan
í heilsugæslunni að færa þjónustuna til fólksins, segir Ásta.“
f greinargerð með tillögunni segir að ýmsar rannsóknir gefi
vísbendingar um hvernig heilbrigði íslenskra ungmenna sé hátt-
að. Má þar nefna rannsóknir um næringu. Átraskanir séu t.d.
algengar hjá þessum aldurshópi. Þá má nefna ótímabærar
þunganir unglingsstúlkna, en um 5% stúlkna á aldrinum 15-19
ára verða ófrískar á ári hverju, helmingur þeirra fer í fóstureyð-
ingu en hinn helmingurinn kýs að ganga með og eiga börnin. Þá
eru slys ein algengasta dánarorsök og helsta orsök örorku ung-
menna en á árunum 1990-1995 létust að meðaltali flögur ung-
menni á aldrinum 15-18 ára árlega af völdum slysa og 1350-
1400 ungmenni leituðu til slysa- og bráðamóttöku Landspítala -
Fossvogi vegna ýmiss konar slysa. Þó dregið hafi úr reykingum
hjá ungu fólki reykja þó enn um 16% 16 ára unglinga daglega.
Hvað varðar áfengisneyslu þá sýnir könnun Rannsóknar-
stofnunar uppeldis- og menntamála um vímuefnaneyslu frá
1997 að ríflega 81% nemenda í 10. bekk hafa einhvern tíma
drukkið áfengi og hátt í 62% segjast hafa orðið drukkin a.m. k.
einu sinni. f samanburði 20 Evrópulanda frá árinu 1995 kemur í
Ijós að hvað þetta snertir eru íslenskir unglingar í 6. sæti. Sé litið
á aðrar rannsóknir á neyslu framhaldsskólanema á ólöglegum
vímuefnum má sjá að neysla þeirra hefur farið vaxandi á síðustu
árum. Árið 1994 höfðu um 23,3% nemenda í 4. bekk fram-
haldsskóla reykt hass en fimm árum áður höfðu 15,7% notað
það. Tölur frá SÁÁ benda til mikillar neysluaukningar á sterkari
vímuefnum. íslensk ungmenni lenda fremur en jafnaldrar þeirra í
Evrópu í vandræðum vegna áfengisneyslu, þannig hafa um
15% ungmenna í 10. bekk orðið fyrir óæskilegri kynlífsreynslu
vegna áfengisneyslu, um 16% hafa lent í slagsmálum, 14%
hafa orðið fyrir meiðslum eða lent í slysi og frá 9% þeirra hefur
verið stolið eða þau rænd vegna eigin áfengisneyslu.
Komið hefur fram í nýrri kandídatsritgerð í lyfjafræði að um
37,8% ungmenna á aldrinum 18-25 ára þjást af þunglyndi og
kvíðaröskun. Þar af þjást 17,2% af þunglyndi og 4% notuðu
þunglyndislyf á árinu 1999. Rannsóknin benti til sambands
milli þunglyndisröskunar og áfengis- og vímuefnaneyslu en
samkvæmt niðurstöðum hennar hafði helmingur þátttakenda
neytt ólöglegra vímuefna og 17% ungs fólks á íslandi
hneigðist til að misnota áfengi. í skýrslu um könnun á tíðni og
orsökum sjálfsvíga á íslandi og tillögum til úrbóta, sem gefin
var út í október 1996 og unnin samkvæmt þingsályktun frá
árinu 1992, kemur fram að sjálfsvíg voru næstalgengasta
dánarorsök karlmanna á aldrinum 15-24 ára á árunum 1990-
94. [ skýrslu um könnun á tíðni og orsökum sjálfsvíga á
íslandi er lögð áhersla á að bæta úrræði innan skólakerfisins
fyrir nemendur sem þurfa á stuðningi og aðstoð að halda
vegna félagslegra og persónulegra vandamála. Auk þess er
markviss fræðsla og almennt forvarnastarf gegn sjálfsvígum
mikilvægt. Þá hefur komið fram að afbrotatíðni er há í
aldurshópnum undir 18 ára því að fólk í þeim hópi á þátt í 30-
40% allra afbrota þegar allir aldurshópar eru skoðaðir.
í lok þingsályktunartillögunnar er lögð áhersla á að
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hafi hvatt ríki heimsins til að
ieggja áherslu á að skólastarf verði skipulagt með hliðsjón af
hvatningu til heilsueflandi hegðunar. Ungmenni glími við ýmiss
konar heilsufarsvanda og þurfi stuðning fagfólks í heilbrigðis-
þjónustu til að leysa hann og því sé þingsályktunin lögð fram.
-vkj
64
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 77. árg. 2001