Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Qupperneq 71
Ásta Möller í framboði
til stjórnar ICN
Ásta Möller, alþingismaður og
fyrrverandi formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga,
hefur ákveðið að bjóða sig
fram til setu í stjórn ICN,
Alþjóðasamtaka hjúkrunar-
fræðinga, til næstu fjögurra
ára. Ásta er tilnefnd af Félagi
íslenskra hjúkrunarfræðinga
og er tilnefningin studd af félögum hjúkrunarfræðinga
á hinum Norðurlöndunum. Kosning til stjórnar ICN fer
fram á fulltrúaþingi samtakanna sem haldið verður í
Kaupmannahöfn 8.-11. júní nk.
í stjórn ICN eru kjörnir 15 fulltrúar til fjögurra ára í
senn. Ásta er í framboði fyrir svæði 3 en á því eru
hjúkrunarfélögin á Norðurlöndum og í Austur-Evrópu.
Einn er í framboði til formanns ICN, Christine Flancock
frá Bretlandi og er hún sjálfkjörin og tekur við af
Kirsten Stallknect frá Danmörku sem hefur verið for-
maður ICN frá 1997.
Ásta tók sæti í stjórn ICN á árinu 1999 þegar Laila
Daavöj, fyrrverandi formaður félags norskra hjúkrunar-
fræðinga, sagði af sér eftir 2ja ára setu en þá tók hún
við embætti atvinnumálaráðherra í ríkisstjórn Noregs.
Ásta er fyrsti íslenski hjúkrunarfræðingurinn sem er í
framboði til stjórnar ICN en íslenskir hjúkrunarfræð-
ingar hafa verið aðilar að samtökunum frá 1933.
{aya í {rí
tli íÖAfLW.eV'k.WY'?
Tvo hjúkrunarfræðinga á besta aldri og
eiginmenn þeirra langar til að ferðast um
ísland í sumar og bjóða húsnæði og bíl í
Danmörku í skiptum fyrir það sama hér á
landi í júní í tvær til þrjár vikur.
Nánari upplýsingar: Netfang: cskar@ddf.dk
eða í síma 45 81 65 46, Bodil og Christen.
Nám í Ijósmóðurfræðí
Innritað er í nám í Ijósmóðurfræði til 15. mars 2001
Inntökuskilyrði er próf í hjúkrunarfræði, viðurkennt í
því landi þar sem námið var stundað, og íslenskt
hjúkrunarleyfi frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu.
Til að námsskrá í Ijósmóðurfræði á íslandi sé í
samræmi við námsstaðla Evrópusambandsins og
að kröfur, sem gerðar eru á háskólastigi, séu
uppfylltar þurfa hjúkrunarfræðingar, sem ekki hafa
lokið BS- prófi, að Ijúka 16 eininga fornámi. Nánari
upplýsingar um fornám, reglur um val nemenda og
skipulag námsins er að finna í kennsluskrá Háskóla
íslands.
Gert er ráð fyrir að taka 10 nemendur inn í nám í
Ijósmóðurfræði.
Umsóknum ásamt upplýsingum um námsferil og
fyrri störf, meðmælum, afritum af prófskírteinum og
hjúkrunarleyfi ásamt greinargerð umsækjanda um
áhuga á námi í Ijósmóðurfræði og hvernig sá áhugi
þróaðist skal skila í síðasta lagi 15. mars 2001 á
skrifstofu hjúkrunarfræðideildar, Eirbergi, Eiríksgötu
34, 101 Reykjavík.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar gefur:
Lára Erlingsdóttir, fulltrúi, Ijósmóðurfræði,
eftir hádegi alla virka daga á skrifstofu hjúkrunar-
fræðideildar,
Eirbergi, Eiríksgötu 34, 101 Reykjavík, sími: 525-
4217. Netfang: lara@hi.is
Netfangalisti
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga er að setja
upp netfangalista hjúkrunarfræðinga til að
miðla ýmsum upplýsingum. Hjúkrunar-
fræðingar, vinsamlegast skráið nöfnin ykkar
og netföng á listann á heimasíðunni
www.hjukrun.is.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 77. árg. 2001
71