Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Qupperneq 22
Nemaárin í Hjúkrunarkvennaskóla íslands
Þegar litið er um öxl og gamlar minningar t ifjaðar upp er það
gjarnan af löngun til að horfa til fortíðar og minnast fyrri
tíma. Til að koma þessum hugrenningum á framfæri má nota
ýmsar aðferðir, s.s. skrifa ævisögu eða segja samferðamönn-
um sínum sögur frá liðinni tíð bæði í ræðu og riti. Sérstaklega
er mörgum kært að minnast uppvaxtaráranna, svo er einnig
farið með mig. Ég ætla því að nota tækifærið og hverfa aftur
til nemaáranna í Hjúkrunarkvennaskóla íslands á sjötta áratug
síðustu aldar.
Þrátt fyrir trú okkar á ljarminnið er auðvitað ýmislegt
gleymt frá þeim tíma. En ég var svo heppin, að fyrir nokkrum
árum fann ég dagbók sem legið hafði í bókakassa æðimörg ár
og ég hafði gjörsamlega gleymt að ég ætti. Hafði hún að
geyma minnispunkta frá fyrri hluta námsins. Var þetta mér
mikill fengur og ég hreinlega datt í lestur þessara dýrmætu
minninga. Hvílíkur áhugi og lífsreynsla þetta allt saman var,
væri mér gleymt ef ekki hefði lestur bókarinnar góðu minnt
mig á það.
Námið byrjaði með forskóla sem var bóknám en að því
loknu fluttum við inn í skólann og verklegt nám tók við.
Okkur var svo raðað inn á deildir Landspítala þar sem blá-
kaldur veruleikinn tók við með yfirmáta framandi umhverfi
fyrir mig, dreifbýlisbarnið, sem naumast hafði komið inn fyrir
dyr sjúkrahúss áður.
Allt var skráð í dagbókina, fyrsta sprautan, stólpípan og
fyrsti skurðstofúdagurinn, svo eitthvað sé nefnt. Allt var þetta
jafnspennandi og liður í því að læra að verða hjúkrunarkona.
Sambúðin í okkar ástsælu heimavist þjappaði okkur saman
og myndaði svokölluð holl og bundumst við þar órjúfandi
böndum sem varð okkur effirminnilegt veganesti í sjóð minn-
inganna. Ég byrjaði minn feril í herbergi uppi á háalofti
spítalans ásamt tveimur öðrum nemuin og nefndist það
„Himnaríki". Eitt rúmið kallaðist „Stóri-Rauður“ vegna þess
að það stóð þrepi ofar en hin rúmin, einhvers konar hönnunar-
ráðstöfun vegna aðstæðna á háaloftinu. Allt varð þetta að
gamni og gríni og enginn gerði sér rellu út af rými eða
fermetrafjölda fyrir hvern og einn.
Þegar ég lít aftur til nematímans á deildum Landspitala er
margs að minnast af hinum ýmsu deildum, sem voru eðlilega
hver með sínu sniði, og eftirminnilegu persónum sem við
unnum með og aldrei gleymast. Flutningur milli deilda reyndi
oft á og erfitt að byrja en einnig að kveðja eftir að tengsl
höfðu myndast og verkefnin að skýrast. En allt var þetta
yfirstíganlegt og spennandi á þeim ungu árum. í minningunni
leið námið eins og ljúfur draumur. Á deildunum höfðum við
22
mikil samskipti við sjúklingana og umönnun var stór þáttur í
náminu. Þetta var því mjög gefandi tími en margsannað er að
nærvera og umhyggja við sjúka eru þeim mjög mikilvægir
þættir.
Inn á milli sátum við svo á skólabekk og fengum þá að
helga okkur bóklega þættinum. Að því kom svo að við
yfirgáfum höfúðstöðvarnar og við tóku hin ýmsu sjúkrahús á
landsbyggðinni. Greip okkur þá viss ftelsistilfinning sem bar
líka vott um að við værum að komast í tölu eldri og reyndari
nema og um leið sáum við nýnemana streyma inn í okkar stað.
Við komum svo inn á ný í lokasprett námsins, reynslunni
ríkari, og nutum þess að hittast aftur. Ég og mínar hollsystur
vorum svo heppnar að þá var nýtt skólahús risið og fengum
við að raða okkur í einsmannsherbergi á efstu hæð skóla-
hússins eins og elstu nemum sæmdi en bjuggum þó þétt
saman okkur til ómældrar gleði.
Hér gefst ekki rými fyrir lýsingu á þeirri lífsreynslu og
ævintýrum sem við lentum í meðan á náminu stóð, en margs
er að minnast og oft reyndi á, en það bíður betri tíma.
Ymislegt væri tilvalið efni fyrir dálkinn okkar í blaðinu.
Beini ég því hér með til ykkar, góðir félagar, sem kynntust
þessum tímum að þeysast nú fram á ritvöllinn og segja sögur
frá námi og störfum fyrri tima, okkur hinum til fróðleiks og
skemmtunar.
Guðrún Guðnadóttir.
karisigf@isl.is
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Vesturhlíð 2
Fossvogi
SímiSSI 1266
www.utfor.is
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
sólarhringinn.
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 78. árg. 2002