Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Blaðsíða 31
Reykjavík, íbúð í
Sóltúni 9, nr. 104
Eign orlofssjóðs
Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga
Árið 2000 festi
íbúðin er 86 fm á 1. hæð. 2 svefnherbergi með tveimur rúm-
um í hvoru herbergi. Stofa með svefnsófa fyrir tvo og 2
aukadýnur. Baðherbergi með sturtu. Þvottaherbergi með
þvottavél og þurrkara. Barnarúm og barnastóll. Sængur og
koddar fyrir 6. Sængurfatnaður (lín) fylgir ekki. Leigjendur
þurfa að hafa með sér sængurfatnað, handklæði og diska-
þurrkur. Borðbúnaður er fyrir 12, einnig algengur eldhús-
búnaður, ísskápur, uppþvottavél, örbylgjuofn, hljómflutnings-
tæki með geislaspilara, sjónvarp og myndbandstæki.
orlofssjóður Félags
íslenskra hjúkrunarfræð-
inga kaup á þessari íbúð.
Leigan er 2.500 kr. á sólarhring. Leigutími allt árið. Sjá
upplýsingar um vetrarleigu hvenær hægt er að bóka íbúðina.
íbúðin er reyklaus. Ekki er heimilt að hafa húsdýr í íbúðinni.
Akureyri,
íbúð að
Furulundi 8d
Eign orlofssjóðs
Félags íslenskra
hjúkrunar-
fræðinga
fbúðin var gerð upp að hluta í desember 2001. Skipt var um
eldhúsinnréttingu og tæki og herbergjaskipan aðeins breytt. Ibúðin er
69 fm að stærð. Stofa og tvö sveffiherbergi, annað með koju fyrir tvo,
hitt með tvíbreiðu rúmi, að auki eru 2 aukadýnur og barnarúm. Sex
sængur og sex koddar eru í íbúðinni, einnig allur eldhúsbúnaður,
isskápur, uppþvottavél, örbylgjuofh, útvarp, sjónvarp, þvottavél og
kolagrill. Leigan er 2.500 kr. á sólarhring. Leigutími allt árið. Sjá
upplýsingar um vetrarleigu hvenær hægt er að bóka íbúðina. Ibúðin er
reyklaus. Ekki er heimilt að hafa húsdýr í íbúðinni.
Kvennabrekka í Mosfellsbæ
Eign orlofssjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Húsið er 40 fm. 2 svefnherbergi og stofa. Rúm fyrir 6 manns.
Sjónvarp, útvarp og kolagrill. Leigan er 2.000 kr. á sólarhring.
Leigutími allt árið. Sjá upplýsingar um vetrarleigu hvenær hægt er
að bóka íbúðina. Húsið er reyklaust. Ekki er heimilt að hafa húsdýr
í húsinu.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 78. árg. 2002
31