Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Side 32

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Side 32
Orlofsstyrkir 2002 Stjórn' orlofssjóðs auglýsir eftir umsóknum um orlofsstyrki fyrir tímabilið 1.5. 2002 - 30.4. 2003. Um er að ræða 300 styrki að upphæð 20.000 kr. hver. Orlofsstyrkirnir verða greiddir út í formi ávísunar í maí/júní nk. Það skal jafnframt áréttað að þessi styrkur er ætlaður til að auðvelda félagsmönnum að njóta orlofs síns og er það ein- dregin ósk orlofssjóðsins að þessi peningaupphæð fari beint í það að borga farseðil eða gistingu i orlofsdvöl. Húsbúnaður í orlofshúsum/íbúðum Leigutími er vika í senn. Skiptidagar eru föstudagar. Gæludýr eru ekki leyfð í húsunum/íbúðunum og einnig eru reykingar innanhúss bannaðar. Leigjendur sjá sjálfir um þrif við brottför. Öll húsin eru nýleg eða nýuppgerð með rafmagni og heitu vatni. I þeim er sturta, ísskápur, eldavél, borðbúnaður og allt til ræstinga, sængur og koddar a.m.k. íyrir hvert rúm í hús- inu/íbúðinni nema annað sé tekið ffam. Sængurföt fylgja ekki með í leigunni. I sumum húsum eru einnig aukarúm eða dýnur. Húsafell í Borgarfirði, Birkilundur 24 Eign orlofssjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Húsið er 34 fm. 1 svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi. Svefnloft með 3 dýnum. I viðbyggingu eru 3 rúm. Sængur og koddar fyrir 8 manns. Öll venjuleg eldhúsáhöld fylgja fyrir a.m.k. 8 manns. Einnig er sjónvarp, útvarp með geislaspilara og kolagrill. Heitur pottur. Salernispappír, uppþvottalögur og diskaþurrkur fylgja. Leigjandi þarf að hafa með sér sængurfatnað (lín) og handklæði. Leiga: 13.000 kr. á viku yfir sumartímann. Vetrarleiga, sjá upplýsingar um vetrarleigu. Umsjónaraðili: Þjónustumiðstöðin í Húsafelli. Húsafell í Borgarfirði, Birkilundur 20 Eign orlofssjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Húsið er 40 fm. 2 svefnherbergi með 2 rúmum hvert. Svefnloft með 4 dýnum. Sængur og koddar fyrir 8 manns. Öll venjuleg eldhúsáhöld fylgja fýrir a.rn.k. 8 manns. Einnig er sjónvarp, útvarp með geislaspilara og kolagrill. Heitur pottur. Salernispappír, uppþvottalögur og diskaþurrkur fylgja. Leigjandi þarf að hafa með sér sængurfatnað (lín) og handklæði. Leiga: 13.000 kr. á viku yfir sumartímann. Vetrarleiga, sjá upplýsingar um vetrarleigu. Umsjónaraðili: Þjónustumiðstöðin í Húsafelli. Syðra-Lágafell í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi Gamalt, uppgert íbúðarhús með 2 svefnherbergjum, stórri vinalegri baðstofu, stórri stofu og borðstofu og einni snyrtingu. Rúm fyrir a.m.k. 8 manns og fjölmargar aukadýnur. Sjónvarp, útvarp og kolagrill. Staðsetningin gefur möguleika á mismunandi dagsferðum um Snæfellsnes og léttum gönguferðum um nágrennið. Tuttugu minútna akstur á næstu sundstaði sem eru á Lýsuhóli og Kolviðarnesi. Möguleiki er á veiðileyfi í nærliggjandi vötnum. Leiga: 10.000 kr. á viku. Umsjónaraðili: Áslaug Sigvaldadóttir, Garðplöntustöðinni Lágafelli. 32 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 78. árg. 2002

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.