Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Síða 34
íbúð á Súðavík
íbúðin er á 1. hæð í ijölbýlishúsi við Aðalgötu 2 í gamla
hlutanum á Súðavík. íbúðin er 80 fm. 3 svefnherbergi,
eldhús, bað, anddyri og stofa með tvennum svölum mót
suðri og austri, búnum borði og stólum, ásamt kolagrilli.
Herbergin eru: gott svefnherbergi með 2 rúmum, annað
minna herbergi með tvöföldu rúmi og lítið herbergi með há- og
lágkoju, auk þess eru svefnstæði fyrir 3 í stofú. íbúðin er búin góðum
húsgögnum, sjónvarpi, hljómflutningstækjum með geislaspilara. I
eldhúsi er borðbúnaður fyrir 8 manns auk allra venjulegra
eldhúsáhalda, að auki er örbylgjuofn.
Tjaldvagnar
Eign orlofssjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Tveir tjaldvagnar eru til leigu en þeir eru mjög auðveldir í notkun og sérstaklega
styrktir og einangraðir fyrir íslenskar aðstæður. Um er að ræða Combi Camp
vagna. VR er umsjónaraðili félagsins og annast viðhald á vögnunum.
í vögnunum eru eldunartæki, borð, stólar og hitunartæki. Vagnarnir eru leigðir í
6 daga i senn frá fimmtudegi til miðvikudags. Vagnarnir eru afhentir i Reykjavík
og skilað á sama stað. Punktafrádráttur yfir leigu á tjaldvögnum er 1/4 af
frádrætti fyrir sumarhús á sama tíma. Leigan er 6.000 kr. fyrir 6 daga.
Til þess að fá tjaldvagn leigðan verða menn að hafa bíl í fullri tryggingu með tengibúnaði, viðurkenndum af opinberum
skoðunarstöðvum. Auk þess þarf að framvísa ökuskírteini.
Ekki má fara með vagnana út fyrir alfaraleið.
Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl
þegar orlofsrétturinn er áunninn.
Sumarorlofstímabil er frá
1. maí til 15. september.
Taka orlofs
Yfirmaður skal ákveða, i samráði við starfsmenn, hvenær
orlof skuli veitt. Hann skal að lokinni könnun á vilja starfs-
manna tilkynna eins fljótt og unnt er, í síðasta lagi mánuði
íyrir byrjun orlofs, hvenær orlof skuli hefjast (gr. 4.5.1).
Starfsmenn eiga rétt á að fá a.m.k. 20 virka daga (160
vinnuskyldustundir) af orlofi sínu á sumarorlofstímabilinu.
Lenging orlofs
Orlof, sem tekið er að loknu sumarorlofstímabili, lengist um
1/4 og sama gildir ef orlof er tekið fyrir sumarorlofstímabil að
ósk vinnuveitanda (gr. 4.4.3).
Veikindi í orlofi
Ef starfsmaður veikist í orlofi telst veikindatíminn ekki til
orlofs enda séu veikindin sönnuð með vottorði eins fljótt og
við verður komið (gr. 4.6.1). Hafi starfsmaður ekki getað
tekið orlof vegna veikinda frá þeim tíma er hann átti að taka
orlof til loka þess orlofstökuárs, á hann rétt á að fá orlofslaun
sín greidd.
Frestun á töku orlofs
Heimilt er að fresta töku orlofs um allt að einu ári með
samþykki yfirmanns. Ef starfsmaður ákveður, með samþykki
yfirmanns, að fresta töku orlofs þá þarf hann að ljúka því fyrir
lok síðara orlofstökuársins.
Ef starfsmaður tekur ekki orlof eða hluta af orlofi skv.
beiðni yfirmanns síns þá geymist orlofið til næsta árs, eða þá
ber að greiða honum yfirvinnukaup fyrir starf sitt þann tíma
(gr. 4.7.2). Ef starfsmaður vinnur í stað þess að taka orlof skal
hann fá staðfestingu þess efnis hjá sínum yfirmanni. Það er á
ábyrgð yfirmanns að tilkynna launadeild þegar hann hefúr
gefið samþykki sitt fyrr því að starfsmaður vinni í orlofi.
Lengd orlofs
Lengd orlofs fer eftir aldri. Lágmarksorlof eru tveir vinnu-
dagar eða 16 vinnuskyldustundir fyrir hvern unninn mánuð í
fúllu starfi. Taflan hér á eftir sýnir áunnið orlof eftir aldri.
34
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 78. árg. 2002