Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Síða 34

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Síða 34
íbúð á Súðavík íbúðin er á 1. hæð í ijölbýlishúsi við Aðalgötu 2 í gamla hlutanum á Súðavík. íbúðin er 80 fm. 3 svefnherbergi, eldhús, bað, anddyri og stofa með tvennum svölum mót suðri og austri, búnum borði og stólum, ásamt kolagrilli. Herbergin eru: gott svefnherbergi með 2 rúmum, annað minna herbergi með tvöföldu rúmi og lítið herbergi með há- og lágkoju, auk þess eru svefnstæði fyrir 3 í stofú. íbúðin er búin góðum húsgögnum, sjónvarpi, hljómflutningstækjum með geislaspilara. I eldhúsi er borðbúnaður fyrir 8 manns auk allra venjulegra eldhúsáhalda, að auki er örbylgjuofn. Tjaldvagnar Eign orlofssjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Tveir tjaldvagnar eru til leigu en þeir eru mjög auðveldir í notkun og sérstaklega styrktir og einangraðir fyrir íslenskar aðstæður. Um er að ræða Combi Camp vagna. VR er umsjónaraðili félagsins og annast viðhald á vögnunum. í vögnunum eru eldunartæki, borð, stólar og hitunartæki. Vagnarnir eru leigðir í 6 daga i senn frá fimmtudegi til miðvikudags. Vagnarnir eru afhentir i Reykjavík og skilað á sama stað. Punktafrádráttur yfir leigu á tjaldvögnum er 1/4 af frádrætti fyrir sumarhús á sama tíma. Leigan er 6.000 kr. fyrir 6 daga. Til þess að fá tjaldvagn leigðan verða menn að hafa bíl í fullri tryggingu með tengibúnaði, viðurkenndum af opinberum skoðunarstöðvum. Auk þess þarf að framvísa ökuskírteini. Ekki má fara með vagnana út fyrir alfaraleið. Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl þegar orlofsrétturinn er áunninn. Sumarorlofstímabil er frá 1. maí til 15. september. Taka orlofs Yfirmaður skal ákveða, i samráði við starfsmenn, hvenær orlof skuli veitt. Hann skal að lokinni könnun á vilja starfs- manna tilkynna eins fljótt og unnt er, í síðasta lagi mánuði íyrir byrjun orlofs, hvenær orlof skuli hefjast (gr. 4.5.1). Starfsmenn eiga rétt á að fá a.m.k. 20 virka daga (160 vinnuskyldustundir) af orlofi sínu á sumarorlofstímabilinu. Lenging orlofs Orlof, sem tekið er að loknu sumarorlofstímabili, lengist um 1/4 og sama gildir ef orlof er tekið fyrir sumarorlofstímabil að ósk vinnuveitanda (gr. 4.4.3). Veikindi í orlofi Ef starfsmaður veikist í orlofi telst veikindatíminn ekki til orlofs enda séu veikindin sönnuð með vottorði eins fljótt og við verður komið (gr. 4.6.1). Hafi starfsmaður ekki getað tekið orlof vegna veikinda frá þeim tíma er hann átti að taka orlof til loka þess orlofstökuárs, á hann rétt á að fá orlofslaun sín greidd. Frestun á töku orlofs Heimilt er að fresta töku orlofs um allt að einu ári með samþykki yfirmanns. Ef starfsmaður ákveður, með samþykki yfirmanns, að fresta töku orlofs þá þarf hann að ljúka því fyrir lok síðara orlofstökuársins. Ef starfsmaður tekur ekki orlof eða hluta af orlofi skv. beiðni yfirmanns síns þá geymist orlofið til næsta árs, eða þá ber að greiða honum yfirvinnukaup fyrir starf sitt þann tíma (gr. 4.7.2). Ef starfsmaður vinnur í stað þess að taka orlof skal hann fá staðfestingu þess efnis hjá sínum yfirmanni. Það er á ábyrgð yfirmanns að tilkynna launadeild þegar hann hefúr gefið samþykki sitt fyrr því að starfsmaður vinni í orlofi. Lengd orlofs Lengd orlofs fer eftir aldri. Lágmarksorlof eru tveir vinnu- dagar eða 16 vinnuskyldustundir fyrir hvern unninn mánuð í fúllu starfi. Taflan hér á eftir sýnir áunnið orlof eftir aldri. 34 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 78. árg. 2002

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.