Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Síða 36

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Síða 36
Starfsreglur orlofssjóðs og úthlutunarreglur 1. grein Sjóðurinn heitir orlofssjóður Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga. Fleimili hans og varnarþing eru í Reykjavík. 2. grein Tilgangur sjóðsins er að auðvelda félagsmönnum að njóta orlofs síns. 3. grein Allir félagsmenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sem eiga aðild að orlofssjóði Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga, hafa rétt til að njóta þjónustu sjóðsins. Eftir- launaþegar njóta sömu réttinda og þeir sem eiga aðild að sjóðnum. 4. grein Stjórn sjóðsins skipa fimm félagsmenn kjörnir á full- trúaþingi. I stjórn skulu vera formaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnendur. Stjórn haldi gerðabók. 5. grein Stofnfé sjóðsins er orlofssjóður Hjúkrunarfélags íslands. 6. grein Tekjur orlofssjóðs eru samningsbundin orlofssjóðsgjöld starfandi félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkrunarfræð- inga, vextir og aðrar tekjur af eignum sjóðsins og gjafir. 7. grein Stjórn orlofssjóðs gerir tillögur að úthlutunarreglum og ber þær undir ftilltrúaþing eða stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga til samþykktar. Úthlutunarreglur skulu taka mið af lengd aðildar félagsmanna að sjóðnum. 8. grein (breytt) Orlofstímabil þau, sem úthlutað er fyrir, eru eftirfarandi: Sumarorlof, frá 15. maí til 30. september Haustorlof, frá 1. október til 31. desember Vetrarorlof, frá 1. janúar til 15. maí Stjórn orlofssjóðs kemur saman a.m.k. þrisvar á ári vegna úthlutunar. Stjórn orlofssjóðs skal kynna með góðum fyrirvara umsóknarfresti og skilmála vegna þeirrar þjónustu sem stendur félagsmönnum til boða á hverju orlofstímabili. Fyrir sumarorlofstímabil skulu niðurstöður um úthlutun liggja fyrir eigi síðar en 1. apríl. 9. grein Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ber ábyrgð á eignum sjóðsins. Stjórn orlofssjóðs fer með rekstur sjóðsins í umboði stjórnar Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga. Allar mikilvægar ákvarðanir varðandi rekstur, fjárfestingar, skuldbindingar, kaup eða sölu eigna skal bera undir fúlltrúaþing Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga eða stjórn Félags íslenskra hjúki'unarfræðinga. Sjóðurinn skal hafa sjálfstætt bókhald og vera ávaxtaður sérstaklega. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Rekstur sjóðsins standi undir sér. Kjörnir og löggiltir endurskoðendur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga endurskoði reikninga orlofssjóðs. Fyrir fúlltrúaþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga skal stjórn orlofssjóðs leggja fram skýrslu um starfsemi sjóðsins, reikninga sjóðsins og fjárhagsáætlun. 10. grein Reglum fyrir orlofssjóð verður aðeins breytt á fúll- trúaþingi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Um breyt- ingar á reglum þessum fer samkvæmt 38. grein laga Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. 11. grein Reglur þessar taka gildi á stofnfúndi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, 15. janúar 1994. 12. grein Verði orlofssjóður lagður niður ráðstafar fulltrúaþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eigum hans. Samþykkt á stofnfundi Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga, 15. janúar 1994. 36 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 78. árg. 2002

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.