Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Síða 41

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Síða 41
ég kann ekki einu sinni að skipta á bleyju.“ Frænka mín sagði að það væri minnsta mál í heimi. Litli karlinn kom svo og nú eru liðin 8 ár frá okkar íyrstu kynnum. Hann kemur enn tvisvar í viku og gistir oft um helgar. Og nú verð ég, í stað þess að skipta á bleyjum, að fylgjast með alls kyns tölvuleikjum, play- station og ráða krakkagátur sem geta stundum verið fúrðulegar. Nú erum við að lesa Harrý Potter saman og auðvitað búin að sjá myndina. Það er dýrmætt að eiga þennan litla vin og ekki síður að finna að enn getur maður orðið að liði. En litli karlinn er býsna spurull og þótt ég reyni að leysa úr spurningum hans getur orðið brestur þar á. Eitt sinn er ég sótti hann í leikskólann og við vorum á leiðinni heim á miðri Hringbrautinni í Gosa mínum, það er Volvóinn minn, sagði hann: „Þú ert vitrust af öllum sem ég þekki“. „Hvað segirðu?“ sagði ég. „Veistu hvað það er að vera vitur?“ „Já,“ svaraði sá litli. „Það er að vita mikið.“ „Já,“ sagði ég, „en það eru margir sem þú þekkir sem vita mikið, mamma þín og afi þinn og margir fleiri.“ „Nei,“ var svarið, „enginn, það veit enginn eins mikið og þú.“ Ég velti þessu fyrir mér, fannst ábyrgð mín allt í einu mikil, en svo sagði litli karlinn: „Jú, það er einn sem ég þekki sem veit meira en þú, það er Snæbjöm, vinur minn, hann er sjö ára en ég er bara fimm.“ Ég var allt í einu komin með jafnmikla þekkingu og sjö ára bam. „Og hvað veit hann svona miklu meira en ég?“ spurði ég svolítið forvitin. „Hann veit miklu meira en þú um fótbolta.“ Málið var útrætt og ég taldi réttara að leiða talið að öðm, einhveiju sem ég hafði svolítið meira vit á en sjö ára vinurinn. Ég man að þegar ég hætti að vinna í ráðuneytinu ákvað ég að láta mér ekki leiðast og setti saman litla vísu til að minna mig á það: Þó að fölni fortíðin, erfagrir geislar dvína, láttu aldrei leiðindin laina sálu þína. Þessa vísu hef ég oft haft í huga mér til áminningar. Flest- um er nauðsynlegt að huga að ellinni og þeim breytingum sem verða við starfslok því þær geta orðið verulegar. En ef heilsan er góð geta elliárin orðið ánægjuleg því nú eru möguleikarnir miklu meiri en nokkm sinni fyrr og sjálfsagt að nota sér þá.“ Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að fólk haldi áfram að starfa þó það sé komið á eftirlaun því það sé ekki eftir- sóknarvert að gera ekki neitt. Hún telur einnig að fólk eigi að vera heima eins lengi og það getur í stað þess að fara inn á stofnun. Hún segir að sú kynslóð, sem hún tilheyrir, hafi þurft að aðlagast ótrúlega miklum breytingum einfaldlega til að geta komist af og sömuleiðis hafi orðið miklar breytingar á hjúkrunarstarfinu. „Það hafa orðið miklar breytingar í með- ferð sjúkdóma varðandi t.d. lyf og tæknibúnað, en hin almenna alúð sem felst í hjúkrunarstarfinu er ekki meiri í dag en hún var og hún þarf svo sannarlega alltaf að vera til staðar.“ Ekki er hægt að ljúka umfjöllun um hina hlið Ingibjargar án þess að minnast á þáttöku hennar í stjórnmálum en hún sat Styttan af Nönnu Jónasdóttur. Lampafóturinn og vasarnir í glugganum eru unnir aflngi- björgu og púöann saumaði hún, en á heimilinu er mikiö um hannyrðir sem hún hefur unnið. m.a. í bæjarstjórn Akureyrar í nokkur ár. Hvernig atvikaðist það? „Þannig var að það vantaði konu á listann fyrir Sjálf- stæðisflokkinn i bæjarstjómarkosningunum 1964 og mér var boðið sæti. Ég vildi ekki bara vera skrautfjöður á listanum eins og þá var rætt um konur, sá þama tækifæri til að vinna að málefnum Fjórðungssjúkrahússins og spurði hvaða sæti væri í boði. Ég var þá spurð hvaða sæti ég vildi fá og ég sagðist vilja vera frekar framarlega.“ Hún var sett í fimmta sætið og var varamaður í bæjarstjóminni en þegar tveir þeirra sem voru ofar henni á listanum fluttu úr bænum tók hún sæti sem aðalmaður. „Þama lærði ég meðal annars töluvert um vinnuaðferðir karla. Ég man t.d. eftir því að hafa borið upp tillögu á einum fúndinum, munnlega við litlar undirtektir. Á næsta fundi flutti karlmaður sömu tillöguna en var með hana skriflega. Ég sagði við hann á eftir að hann hefði stolið tillögunni minni en hann hló og svaraði því til að ekkert mark væri tekið á munnlegum tillögum, þær reiknuðust síður með. Þessi maður varð síðar einn af mínum bestu vinum. Ég held það sé mjög mikilvægt fyrir konur að átta sig á því hvernig karlar vinna, en ég er ekki að segja að konur eigi að vinna eins og þeir.“ Ingibjörg segist að lokum hafa mjög gaman af lestri góðra bóka og er nú að lesa Höfund Islands sem hún segir vera fúrðulega bók svo ekki sé meira sagt. Og hún hefúr líka verið dugleg að ferðast, farið til Suður-Ameríku, Tailands, Grikk- lands, Tyrklands, Sýrlands og víðar nú siðari ár og fram undan eru fleiri viðlíka ferðalög. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 78. árg. 2002 41

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.