Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Qupperneq 45
T
□
Viðtalsherbergi djáknans.
að inna af hendi tiltekna vinnu en ráða hvenær þeir vinna.
Nætur- og helgidagavinna er mikið unnin af nemum.“
Klæðnaður starfsmanna eru stretsgallabuxur og bolir og
peysur í ýmsum litum, ekki hefðbundinn hjúkrunarfatnaður.
Aðspurð um félagslíf íbúanna segir hún ýmislegt gert. Reynt
er að gera sem flest sem tíðkast á venjulegum heimilum, fólk
getur fengist við matseld, þvegið þvott ef það vill, ræktað
blóm og grænmeti. Og fram undan er myndun hópastarfs á
ýmsum sviðum, lesnar verða framhaldssögur, horft á mynd-
bönd, sungið, farið í hópleikfimi, vellíðunamudd, haldnar
verða guðsþjónustur og dansleikir. Umhverfis húsið eru svo
margir göngustígar, heitur pottur og garðskáli verður settur
upp. Komið verður fyrir bekkjum og borðum og útigrilli
þannig að hægt verður að halda grillveislur. „Við keyptum svo
bíl fyrir skömmu og hægt verður að fara lengri og styttri ferðir
með þá sem það vilja,“ segir Anna Birna að lokum.
Stórar svalir eru á húsinu og heitur pottur í garðinum.
HÁSKÓUNN
A AKUREYRI
'{-(eílbv'i^ðíí[?jÓKu^tA í Ará{b^{{
Heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri (HA), Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri (FSA) og Símenntun Rannsókna-
stofnunar Háskólans á Akureyri (RHA) hafa stofnað fram-
kvæmdaráð í framhaldi af niðurstöðum starfshóps á vegum
landlæknis um landsbyggðalækningar sem skilaði áliti í júní
2000. Þar kom meðal annars fram að aukin menntun heil-
brigðisstarfsfólks i dreifbýli væri lykilatriði og lagt var til að
HA yrði miðstöð slíkrar menntunar. Röð námskeiða er í
undirbúningi undir formerkjunum „Heilbrigðisþjónusta í
dreifbýli“ en áformað er að í boði verði tvö námskeið á önn.
Fyrstu tvö námskeiðin verða nú á vorönn og hafa þau verið
styrkt af heilbrigðisráðuneytinu.
Námskeið í myndgreiningu í umsjón Halldórs Benedikts-
sonar, yfirlæknis á myndgreiningardeild FSA. Tilgangur nám-
skeiðsins er að fræða lækna (starfsfólk heilsugæslu) um það
sem viðkemur töku, framköllun og greiningu röntgenmynda.
Námskeiðið verður haldið í húsnæði HA á Sólborg 15. mars
kl. 9:30-17:30 og á FSA 16. mars kl. 9:00-12:30.
Námskeið í bráðameðferð barna í umsjón Björns
Gunnarssonar, bamalæknis á FSA, verður haldið 19. og 20.
apríl. Tilgangur námskeiðsins er að þjálfa starfsfólk heilsu-
gæslu í meðferð bráðveikra barna. Áhersla verður lögð á
skjóta greiningu og fyrstu meðferð algengra vandamála, eins
og andnauð, lost, eitranir, áverka og krampa.
Upplýsingar og skráning er á skrifstofu RHA í síma 463
0570, netfang rha@unak.is, bréfsími 463 0997 og frá heima-
síðu HA www.unak.is (rannsóknir-rannsóknastofnun-símennt-
un) þar sem nákvæm dagskrá námskeiðanna kemur fram.
Ferðaskrifstofa Akureyrar, sími 4600 600, hefur milligöngu
um gistingu fyrir þá sem þess óska.
Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 1. tbl. 78. árg. 2002
45