Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Qupperneq 57

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Qupperneq 57
Félag um lýðheilsu Stofnfundur Félags um lýðheilsu var haldinn 3. desember sl. á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Fundurinn var settur af Önnu Björgu Aradóttur en Sigrún Gunnarsdóttir var fundarstjóri. Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, flutti ávarp og fagnaði félagsstofnuninni. Sagði hann m.a. að von hans væri sú að félagið yrði jafnöflugt og málstaðurinn væri góður. Sigurður Guðmundssson, landlæknir, hélt að því búnu erindi um lýðheilsu á íslandi. Hann gerði fyrst grein fyrir undirstöðuþáttum heilbrigðis, s.s. jöfnuði, uppfyllingu grunn- þarfa, mikilvægi þess að fólk hefði hlutverk í þjóðfélaginu, byggi við frið og að ráðamenn hefðu pólitískan vilja til að stuðla að bættu heilsufari þjóðarinnar. Síðan stiklaði hann á stóru í þeim áföngum sem náðst hefðu á sviði lýðheilsu á liðnum áratugum. Hann fór yfir heilbrigðistölfræði þjóðar- innar og benti á það sem gott er og það sem betur má fara. Að lokum fjallaði hann um ný verkefni sem eru verðugt viðfangs- efhi fyrir þá sem starfa á sviði lýðheilsu, s.s. nýja sjúkdóma, geðheilsuvandamál, fíkniefnanotkun, slys, sjálfsvíg, reykingar, ofbeldi og offitu. Að lokum óskaði hann félaginu alls góðs og vitnaði í Antoine de Saint-Exupery sem sagði: „Okkar er ekki að spá fyrir um framtíðina heldur að gera hana að veruleika.“ Þá kynnti Sigrún Gunnarsdóttir drög að lögum félagsins. Nokkrar breytingatillögur voru bornar fram. Lögin voru síðan borin upp til samþykktar og voru þau samþykkt samhljóða. Þá var kosin stjórn. Geir Gunnlaugsson var kosinn formaður og Anna Björg Aradóttir, Helga Þorbergsdóttir, Kristinn Tómas- son, Laufey Steingrímsdóttir, Sigrún Gunnarsdóttir og Val- gerður Gunnarsdóttir í stjóm. Jóhann Á. Sigurðsson og Hólm- fríður Gunnarsdóttir voru kosnir skoðunarmenn. Nokkrir fundarmanna bentu á mikilvægi þess að hinn almenni borgari kæmi að stjórn og starfsemi félagsins og mun stjómin hafa það að leiðarljósi enda er tilgangur félagsins að stuðla að heilsu og vellíðan landsmanna á sem víðastan hátt. Markmið félagsins Samkvæmt lögum félagsins varðar lýðheilsa félagslega og heilsufarslega þætti þjóða og hópa. Lýðheilsa miðar að því að bæta heilbrigði, lengja líf og bæta líðan og aðbúnað þjóða og hópa með almennri heilsuvernd, heilsueflingu, sjúkdóma- vömum og annarri heilbrigðisþjónustu. Félagið heitir Félag um lýðheilsu (á ensku Icelandic Association of Public Health). Starfssvæði þess er landið allt. Heimili og varnarþing félagsins er í Reykjavík. Félag um lýðheilsu er félag fagmanna og áhugafólks um lýðheilsu á íslandi. Tilgangur félagsins er að: • Hvetja til þess að heilbrigðissjónarmiða, sem eru byggð á Stofnun félagsins samþykkt með handauppréttingu. bestu þekkingu á hveijum tíma, sé gætt við stefnumótun og aðgerðir stjórnvalda. • Vekja athygli almennings á möguleikum til að hafa áhrif á eigið heilbrigði og leiðum til heilsueflingar. • Hvetja til samstarfs þeirra sem starfa á vettvangi lýðheilsu og þeirra sem geta haft áhrif á heilsufar og velferð lands- manna, s.s. sveitarfélaga, skóla og stofnana. • Vinna að bættu heilsufari þjóðarinnar með því að standa vörð um gæði þjónustu á sviði lýðheilsu og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu. • Stuðla að menntun, þróun og rannsóknum á sviði lýðheilsu og beitingu viðurkenndra aðferða við mat á árangri verk- efna. Starf félagsins gmndvallast á hugmyndum um jafnræði til heilbrigði. Félagið leggur áherslu á félagslegt réttlæti, jafn- rétti, tjáningarfrelsi, frið, gagnkvæma virðingu og umburðar- lyndi í samskiptum og skoðanaskiptum. Félagið skal eiga samskipti við félagasamtök um lýðheilsu á erlendum vett- vangi. Rétt til aðildar að félaginu eiga fagmenn og áhugafólk um lýðheilsu. Umsókn um aðild er yfirlýsing um stuðning við tilgang félagsins og þær hugmyndir sem félagið grundvallast á (sbr. 2. gr.). Umsókn skal berast stjórn bréflega og tekur hún ákvörðun um aðild hverju sinni. Félagsmenn hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum félags- ins. Rétt til að greiða atkvæði á fundum félagsins og kjörgengi í stjórn og nefndir hafa einungis þeir sem greitt hafa félags- gjöld. Allir félagsmenn eiga rétt á fréttabréfi félagsins og öðru efni sem félagið gefur út. Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málefnum félagsins. Hann skal haldinn árlega að hausti. Allir félagsmenn eiga rétt til setu á aðalfundi með málfrelsi, tillögurétt og atkvæðarétt. Fundurinn skal boðaður félagsmönnum skriflega með minnst sjö daga fyrirvara. í fundarboði skal greina fundarefni svo og allar tillögur sem ætlast er til að bornar verði undir atkvæði. 57 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 78. árg. 2002
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.