Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Blaðsíða 4

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Blaðsíða 4
Allir vilja halda reisn sinni lengur 6vi$ta Auðveld og áhrifarík lyfjameðferð til að meðhöndla og fyrirbyggja beinþynningu hjá konum eftir tíðahvörf. Ein tafla á dag óháð máltíðum og engin óþægindi frá meltingarvegi. EVISTA Eli Lilly Nederland TÖFLUR; G 03 X C 01. Hvertafla inniheldur: Raloxifenum INN, klóríð samsvarandi Raloxifenum INN 56 mg. Ábendingar: Lyfið er notað til að meðhöndla og fyrirbyggja beinþynningu hjá konum eftir tíðahvörf. Sýnt hefur verið fram á marktæka fækkun samfallsbrota í hrygg, en ekki mjaðmarbrota. Þegar velja skal milli Evista eða annarra meðferða, þ.m.t. östrogens, fyrir konu eftir tíðahvörf, skal taka tillit til einkenna við tfðahvörf, áhrifa á vefi í legi og brjóstum ásamt mati á áhættu og vernd gegn hjarta- og æðasjúkdómum. Skammtar og lyfjagjöf: Ráðlagður skammtur er ein tafla daglega til inntöku, sem má taka hvenær dagsins sem er án tillits til máltíða. Ekki er þörf á skammtabreytingum fyrir aldraða. Vegna eðlis sjúkdómsins, er lyfið ætlaö til langtímanotkunar. Mælt er með viðbótarkalki og D-vítamíni fyrir konur sem fá lítið af þessum efnum úr fæðu. Frábendingar: Ekki má gefa konum á frjósemisskeiöi lyfið. Segarek eöa saga um segarek í bláæðum, þar með talið segamyndun í stórum bláæðum, segarek (lungum og segamyndun (sjónhimnu- bláæð. Ofnæmi fyrir raloxifeni eða hjálparefnum töflunnar. Skert lifrarstarfsemi, þar með talið gallteppa. Mikið skert nýrnastarfsemi. Óskýrðar blæðingar frá legi. Evista er ekki ætlað fyrir sjúklinga með merki eða einkenni um krabbamein í legi eða brjóstum, þar sem ekki hafa verið gerðar rannsóknir á öryggi lyfsins fyrir þessa hópa sjúklinga. Sárstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun: Raloxifen hefur veriö tengt við aukna áhættu á segareki, sem virðist sambærileg við áhættu sem tengist hormónauppbótarmeðferð. Mælt er með að lagt sé mat á áhættu/hagsbót fyrir sjúklinga með hættu á segareki af öllum gerðum. Meðferð með Evista ætti að stöðva eins fljótt og unnt er við veikindi eða ástand, sem leiðir til langtíma rúmlegu. Meðferð ætti ekki að hefja fyrr en bati hefur náðst og sjúklingur er að fullu rólfær. Raloxifen hefur ekki áhrif á legslím- húð. Allar blæðingar frá legi á meðferðartíma með Evista eru því óvæntar og skulu rannsakaðar af sérfræðingi. Tvær algengustu greiningarnar, sem voru tengdar blæöingum frá legi með raloxifen meðferð voru sllm- húðarþynning og góðkynja separ I slímhúð. Eftir 3 ára meðferð með raloxifeni hjá konum eftir tíðahvörf var lýst góðkynja sepum í legslímhúð hjá 0,7% samanborið við 0,2% með lyfleysu. Evista er aðallega umbrotið í lifur. Einn skammtur af raloxifeni gefinn sjúklingum með skorpulifur og skerta lifrarstarfsemi (Child-Pugh gráða A) gaf raloxifen þéttni í plasma sem var um 2,5 sinnum hærri en (samanburðarhópnum. Aukningin hafði fylgni við heildarþéttni bflirúblns. Uns öryggi og virkni hefur verið metið frekar hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi, er ekki mælt með notkun Evista fyrir þessa sjúklinga. Ef hækkun finnst á heildarþéttni bílirúbfns I sermi, gamma glútamýl transferasa, alkalískum fosfatasa, ALT og AST, skal fylgjast náið með gildum þessara efna á meðferöartíma. Þar sem engin reynsla er af samtímis notkun östrógena, sem verka um allan líkamann, er ekki mælt með slíkri notkun. Engar ábendingar eru fyrir notkun raloxifens fyrir karlmenn. Evista hefur engin áhrif á hitakóf eða önnur einkenni tíðahvarfa sem eru tengd östrógenskorti. Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir: Samtímis gjöf á sýrubindandi lyfjum sem innihalda kalsíumkarbónat eða ál og magnesíumhýdroxíð hefur ekki áhrif á aðgengi raloxifens. Samtimis gjöf á raloxifeni og warfaríni hefur engin áhrif á lyfjahvörf beggja efnanna. Þó hefur sést væg stytting á prótrombíntima. Ef raloxifen er gefið samtimis warfaríni eða öðrum kúmarinafleiöum, ætti að fylgjast með prótrombintima. Áhrif á prótrom- bintíma geta komið fram á nokkrum vikum ef Evista meðferð er hafin hjá sjúklingum sem eru fyrir á kúmarin segavarnarmeöferð. Einn skammtur af raloxifeni hefur engin áhrif á lyfjahvörf methylprednisólons. Raloxifen hefur engin áhrif á aögengi dígoxíns. Mesta þéttni dígoxíns eykst um minna en 5%. Áhrifin af samtímis lyfjagjöf á þéttni raloxifens í piasma var metiö í rannsóknum á fyrirbyggjandi áhrifum þess. Algeng samtímis notuð lyf voru: paracetamól, bólgueyðandi lyf (svo sem acetýlsalicýlsýra, íbúprófen og naproxen), sýklalyf til inntöku, H1 og H2 blokkar og benzódíazepín. Engin áhrif á þéttni raloxifens í plasma fundust við samtimis gjöf þessara lyfja. I kliniskum rannsóknum var heimiluð notkun östrógena (leggöng til að meöhöndla einkenni slímhúðarþynningar. Enginn munur fannst á notkuninni hjá konunum sem fengu Evista samanborið við lyfleysu. Raloxifen hafði engin áhrif in vitro á bindingu warfarins, fenýtóins eða tamoxifens. Raloxifen ætti ekki að gefa samtímis með kólestýramini (eða önnur anjóna-skipti), sem dregur marktækt úr frásogi og lifrar-þarma hringrás raloxifens. Hámarksþéttni raloxifens lækkar við samtímis gjöf ampicillins. Þar sem heildarfrásog og brotthvarfshraði raloxifens er óbreytt, má gefa raloxifen samtímis með ampicillíni. Raloxifen veldur vægri aukningu á hormónbindandi glóbúlínum, þar með talið kynhormónabindiglóbúlínum (SHBG), thyroxinbindiglóbúlini (TBG) og barksterabindiglóbúlini (CBG), sem leiðir til aukningar á heildar- þéttni hormóna. Þessar breytingar hafa engin áhrif á þéttni frírra hormóna. Aukaverkanir: Meirihluti aukaverkana hefur venjulega ekki leitt til stöðvunar á meðferð. Algengar (>1%): Hitakóf, sinadrættir i fótum, bjúgur í útlimum. Sjaldgæfar (<1%): Segarek, þar er með talið segamyndun í stórum bláæðum, segarek í lungum og segamyndun í sjónhimnubláæö, grunnlæg segabláæðabólga og fækkun blóðflagna. Áhætta á segareki var mest á fyrstu fjórum mánuðum meðferðar. Mjög sjaldgæfar (< 0,1%): Útbrot, ógleði, uppköst, kviðverkir og meltingartruflanir. Sjaldgæfum tilfellum af vægum hækkunum á AST og/eða ALT hefur verið lýst, þar sem ekki er unnt að útiloka tengsl við raloxifen. Nýgengi einkenna frá brjóstum og blæðingum frá legi var marktækt lægra hjá konum sem fengu raloxifen meðferð, en hjá konum sem fengu aðra hormónameðferð. Pakkningar og verð 1.4.2002: Töflur 60 mg: 28 stk. (þynnupakkað) kr. 5.385; 84 stk. (þynnupakkað) kr. 14.093. Afgreiðslutilhögun og greiðsluþátttaka almannatrygginga: R, E. Eli Lilly - Útibú á íslandi - Brautarholti 28 - pósthólf 5285 125 Reykjavík • Sími 520 3400, fax 520 3401 • www.lilly.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.