Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Blaðsíða 16

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Blaðsíða 16
kona en samt er hún óttaslegin." Ég velti þessari mótsögn fyrir mér. Hvers vegna er hún hrædd ef hún er svona trúuð? Ég vildi ég gæti spurt hana en það er engan veginn viðeigandi. Það mundi bara koma henni í uppnám. Mér finnst eins og Margrét hafi fundið einhvers konar yfirborðró þótt tilvistar- kreppan kraumi undir niðri. Mídazólamið slævir óttann. Eftir 20 mínútur stend ég upp frá henni því ég heyri að Vilborg berst við að ná andanum. Mér finnst erfitt að fara frá Margréti á þessari kyrrðarstund. Að fara burt en vera samt áfram í hjarta hennar. Er ég búinn að sá því fræi ástúðar að hún viti að ég er með henni á vegferð hennar? Aftur trufla andköfin í Vilborgu mig. Ég heyri að hún þarf aðstoð svo ég segi við Margréti: „Ég verð að hjálpa Vilborgu núna.“ Seinna er mikil friðsæld yfir Margréti. Við höfðum átt saman helga stund og enn á ný hef ég verið minntur á hvílík helgi býr í starfi okkar hjúkrunarfræðinganna, hvað dauða- stríðið og dauðinn sjálfur hafa djúpstæða merkingu, og ég veit að þessi uppgötvun hefur eflt mér þrek við störfin i dag. Þetta leiðir hugann aftur að andlegum þörfum sjúklinganna en þær hugleiðingar vöknuðu þegar ég var að rýna í mál Konnýjar og Vésteins. Aftur vakna hjá mér efasemdir um notkun mídazólams. Erum við of fljót að gefa það í stað þess að reyna að sinna andlegum þörfum sjúklinga eins og Margrétar, einkanlega þegar við vitum að þeir eru mjög trúaðir? Gefum við mídazólam vegna þess að þá finnst okkur frekar að við gerum eitthvað fyrir þessa sjúklinga sem þrá ósegjanlega innri ró? Ég hef meiri trú á að sinna þessu fólki andlega. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að ég fyndi nokkuð svo djúpstætt við það að lesa ritningarorð dagsins fyrir sjúkling. Mér finnst ég hafa vaxið andlega og efinn og mótsagnirnar hafa þokað úr vegi - mér finnst að ég geti sinnt sjúklingunum í samræmi við heildarþarfir þeirra og mína eigin sannfæringu. Ég ætla að minnast á efasemdir minar um mídazólamið við Súsönnu þegar við förum yfir málin. Hún heftir sagt mér áður að hún eigi sjálf í basli með andlegu hliðina í starfinu. Að fá eitthvert vit í þetta Ég bað ykkur að íhuga nokkur atriði meðan þið læsuð rýni mína: • Augljósar mótsagnir milli æskilegra og raunverulegra vinnubragða. • Hvað kemur í veg fyrir að æskileg vinnubrögð séu tekin upp? • Hvað gæti skipt máli til að bæta verklagið? • Hvemig er sjálf rýnin byggð upp - eru þar kunnugleg mynstur? • Hvaða atriðum vilduð þið taka á? • Kemur ykkar reynsla heim við mína? Augljósir árekstrar milli æskilegra og raunverulegra vinnubragða Lýsingar mínar sýna að verkin á líknardeildinni eru í engu frábrugðin því sem vanalegt er á deildum af þessu tagi. Engu 80 að síður geta hin hversdagslegustu verk verið býsna flókin og torleyst ef skoðað er niður í kjölinn. Rýnin hjálpar mér að koma auga á og fá botn í mótsagnirnar milli þess sem ég tel réttast og tel starfinu helst til gildis og þess sem ég hugsa, skynja og framkvæmi þegar á hólminn er komið. Rýnin vekur athygli mína á þeim vanda sem upp getur komið hvert einasta andartak og hvaða kostir þá eru í stöðunni. Rýnin er í þessum skilningi gott mótvægi við hugsunarlitla vanavinnu. Hún auðveldar mér að sjá einstaklingana sjálfa við þær aðstæður sem upp koma. Hún eflir samúð mína og ýtir við samviskunni. Hún hvetur mig til að líta aðeins lengra en vanaviðbrögðin gera ráð fyrir, ýtir undir efahyggju og forvitni: Hvers vegna gerum við þetta svona? Eru til aðrar og betri aðferðir til að leysa þetta mál? Rýnin er spegill þar sem ég afhjúpa sjálfan mig fyrir sjálfum mér, opna huga minn og sálu fyrir nýjum möguleikum. Kannski er augljóst af þessum orðum að rýnin er tiltekið vinnulag, aðferð til að ná framförum í starfi, aðferð til að hrinda í framkvæmd þeirri draumsýn að starfið sé lifandi veruleiki fremur en heimspekikenning sem svífur í lausu lofti. Ég vil stunda heildræna hjúkrun. Rýni er tilraun til að hrinda heildrænni hjúkrun í framkvæmd. Það sem kemur í veg fyrir að æskileg vinnbrögð séu tekin upp A vegferð minni kem ég að vegartálmum sem hefta för mína. Rýnin gerir mér kleift að víkja ögn til hliðar og virða fyrir mér tálmana. I hverju eru þeir fólgnir? Hvernig er hægt að komast yfir þá? Rýni í hjúkrun á rætur sínar að rekja til þjóðfélags- rýni þar sem takmarkið er að sigrast á ýmiss konar áþján og kúgun og skapa betri heim þar sem fólkið/hjúkrunarfræðing- arnir öðlast skilning á hvað er því/þeim fyrir bestu. Vitaskuld verð ég að sinna störfum mínum af alúð og áhuga. Það er þessi áhugi sem er drifkrafturinn að baki rýninni en rýnin kyndir líka undir þessum áhuga svo hvað eflir annað, þarna verður gagnverkandi efling. Þegar saman lýstur því sem ég vil helst gera og því sem ég geri í raun veldur það mér angri og ama. Ég get um það valið að brynja mig fyrir þessum ama eða snúist gegn honum og reynt að læra af honum og breyta vinnubrögðunum. Það er rýnin sem veitir mér þetta tækifæri til að læra og betrumbæta. En til að stíga það skref að breyta verklaginu verð ég að viss í minni sök. Það er lítið gaman að standa uppi eins og auli. Það sem gæti skipt máli til að bæta verklagið Meginlærdómurinn, sem ég dró af samskiptum mínum við Jóhann, var að stilla mig betur inn á bylgjulengd hans og vera ekki eins mikið á varðbergi gagnvart honum svo ég gæti betur skynjað hvað hann þurffi og liðsinnt honum í því. Annað atriði, sem freistandi væri að kljást meira við, er árátta sam- verkafólks míns að stimpla sjúklingana svona og svona. Það sem ég lærði mest á samskiptunum við Margréti var að geta brugðist rétt við andlegum þörfum hennar. Þar hertist ég líka í þeirri afstöðu að varast skuli lyfjanotkun til að róa fólk. Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 2. tbl. 78. árg. 2002
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.