Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Blaðsíða 32

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Blaðsíða 32
skeið í hóphandleiðslu Handleiðslufélagið var stofnað árið 2000 í tengslum við útskrift 18 handleiðara sem lokið höfðu þriggja missera námi við Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands. Félagsmenn eru nú á Qórða tug og gefur félagið út fréttabréf einu sinni í viku á netinu og haldnir eru hádegisfundir einu sinni í mánuði þar sem félagsmenn skiptast á um að sjá um erindi. Handleiðsla heilbrigðisstétta hefur verið þekkt um áraraðir og nú er talið að hún geti verið mikilvægur þáttur til að hindra kulnun í starfi. Heimasíða félagsins er www.mmedia.is/handis. Kristín Gústavsdóttir og Karl Gustaf Piltz leiðbeina um Itóphandleiðslu. 14. og 15. mars héldu þau Kristín Gústavsdóttir og Karl Gustaf Piltz, eiginmaður hennar sem er sænskur sálfræðingur og lögfræðingur, námskeið þar sem þau leiðbeindu um hóphandleiðslu. Námskeiðið var haldið í húsakynnum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga að Suðurlandsbraut 22 og var sótt af ýmsum stéttum, svo sem hjúkrunarfræðingum, félagsráð- gjöfum, sálfræðingum, iðjuþjálfum, kennurum og presti. Kristín Gústavsdóttir nam félagsráðgjöf í Svíþjóð og tók síðan meistarapróf við Smith College í Bandaríkjunum. Eftir að hún lauk námi starfaði hún á Landspítalanum og var frum- kvöðull þar í fjölskyldumeðferð og handleiðslu á sjöunda og áttunda áratugnum. Hún var í hópi þeirra fyrstu sem nam hand- leiðslu í Svíþjóð og átti þátt i undirbúningi að fyrsta náminu í handleiðslu hér á landi, en það var þriggja ára þverfaglegt nám 96 og fór fram á Landspítalanum. Undanfarin ár hefúr Kristín sinnt reglubundinni handleiðslu við stofnanir hér á landi. Flestir sem sóttu námskeiðið höfðu áður lært einstaklings- handleiðslu. En hver er munurinn á einstaklingshandleiðslu og hóphandleiðslu? „Hvort formið um sig hefur sínar sterku og veiku hliðar,“ segir Kristín, „en best er að hafa reynslu af hvoru tveggja.“ Hún segir að hugmyndaffæðin í einstaklingshand- leiðslu byggist á að einstaklingur þroskist innan frá í tengslum við sína nánustu, að handleiðslutengslin verði mikilvægasta tækið til að tileinka sér nýja kunnáttu. Almennt er talið heppi- legast að byrja á einstaklingshandleiðslu þar sem hún býður upp á meiri nánd og dýpt og hægt er að byggja upp traust á annan hátt. í einstaklingshandleiðslu fylgir maður eftir sama máli í lengri tíma og fær sá handleiddi óskipta athygli handleiðara. I einstaklingshandleiðslu verða tengslin við handleiðara enn þá mikilvægari en í hóphandleiðslu. Hóphandleiðsla gerir aðrar kröfur til þátttakenda um að geta lagað sig að hópi, hafa hæfi- leika til að vinna saman, þola samkeppni o.s.frv. „Tengslin við handleiðara og aðra hópmeðlimi endur- spegla reynslu af fyrri tengslum við mikilvægar persónur í líf- inu, svo sem foreldra, systkini, vini, skólasystkini og vinnu- félaga,“ segir Kristín. En geta allir notfært sér hóphandleiðslu? „Ef til vill ekki þeir sem þurfa á miklum stuðningi að halda,“ segir Kristín. „í einstaklingshandleiðslu er hægt að byggja upp stuðning á annan hátt, það fer eftir því hvaða reynslu sá handleiddi hefur og verður að vega það og meta hverju sinni. Flestir eru þó á þeirri skoðun að hóphandleiðsla sé frekar fyrir þá sem hafa meiri reynslu og sjálfsálit í starfi. Sjálf byrjaði ég í einstaklinghandleiðslu og fannst þau samtöl, sem ég átti í trúnaði við góðan handleiðara, ómetanleg. Ég fékk mikinn stuðning sem ekki er hægt að gera ráð fýrir í hóphandleiðslu.“ Hveijir eru helstu kostir hóphandleiðslu? „Kostimir eru eink- um þeir að það styrkir sjálfsálit starfsmanna því þeir sem em í handleiðslu vinna oftast við krefjandi störf, svokölluð hjálpar- störf, þar sem þeir em í því hlutverki að styðja aðra og gefa af sér. Það getur oft verið einmanalegt og rnikil ábyrgð sem hvílir á starfsmanni og off ekki tækifæri til að staldra við og íhuga málin. Það er líka mikilvægt að fá tækifæri til að tilheyra hópi og deila vandamáli með öðmm og hitta samstarfsmenn sem em að glíma við lík verkeíni. Það er líka mikilvægt að hlusta á hvemig aðrir takast á við málin, hlusta á sjónarmið annarra og getur þetta allt verið mjög örvandi og haft ótrúlega mikil áhrif.“ En hver er munur á handleiðslu og ráðgjöf? Kristín segir að í handleiðslu sé meiri skuldbinding þar sem aðilar vinna að sameiginlegu markmiði. 1 handleiðslu er meiri sjálfskoðun Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 78. árg. 2002
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.