Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2002, Blaðsíða 60
Veístu útkkvAð um hjúkrun?
Herdís Sveinsdóttir
í starfsáætlun Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fyrir
árin 2001-2003 stendur:
• Unnið verði að því að fjölga starfandi hjúkrunar-
fræðingum í samræmi við tillögur nefndar þar um.
• Unnin verði kynning á hjúkrun fyrir hjúkrunar-
fræðinga og almenning.
í ljósi þessa hefur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
nú á vormisseri unnið að stóru átaksverkefni í samvinnu
við heilbrigðisráðuneytið, háskólana tvo, Landspítala-
háskólasjúkrahús, heilsugæsluna í Reykjavík, landlækni
og flestallar heilbrigðisstofnanir á landinu. Tildrög þess
að stjórn Fíh ákvað að vinna að þessu er skortur á
hjúkrunarfræðingum til starfa og minnkandi aðsókn í
hjúkrunarnám. Eins og hjúkrunarfræðingar vita er þessi
vandi alls ekki einskorðaður við ísland heldur er hann
alþjóðlegur.
Tilgangur verkefnisins er að kynna störf hjúkrunar-
fræðinga á raunsæjan og jákvæðan hátt, að efla ímynd
hjúkrunarfræðinga gagnvart þegnum þjóðfélagsins og
hvetja ungt fólk til náms í hjúkrunarfræði. Lokamark-
miðið er að útskrifuðum hjúkrunarfræðingum fjölgi í
116 árlega frá og með árinu 2006. Er það í samræmi við
niðurstöður nefndar á vegum Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga sem skoðaði manneklu í hjúkrun á árinu 1999.
í þessu átaksverkefni verður lögð áhersla á að kynna
störf hjúkrunarfræðinga á sem fjölbreyttastan máta, bæði
fjölbreytni í starfsvettvangi og jafnframt fjölbreytni
innan starfs, t.d. innan þess að vinna á almennri sjúkra-
deild.
Fyrri hluti kynningar á störfum hjúkrunarfræðinga
Meginvinnan í þessu átaki hefur í vor falist í kynningu á
störfum hjúkrunarfræðinga meðal nemenda í framhalds-
skólum. Unnin hafa verið 5 póstkort sem dreift hefur
verið í framhaldsskóla. Á framhlið þeirra allra er ritað
Veistu eitthvað um hjúkrun? Á bakhliðina eru mismun-
andi áherslur eftir störfum hjúkrunarfræðinga. Þar
stendur:
Endalausir möguleikar. Nám í hjúkrunarfræði nýtist í
124
fleiri greinum
þjóðlífsins en þú
heldur. Möguleikar
þínir að loknu
hjúkrunarnámi eru
endalausir. Athugaðu
málið!
www.hiukrun.is
Vilt þú ráða? Mjög
margir hjúkrunar-
fræðingar eru í
stj órnunarstöðum.
Vilt þú ráða á þínum
vinnustað?
Athugaðu málið!
www.hjukrun.is
Viltu ferðast?
íslenskt hjúkrunar-
próf er hátt metið á
alþjóðavettvangi. Þú
kemst hvert sem er
með það upp á
vasann. Athugaðu
málið!
www.hjukrun.is
Þú getur orðið meist-
ari! Nú er hægt að
taka meistarapróf í
hjúkrun í Reykjavík
og á Akureyri. Að
því loknu er staða
þín sterkari á
vinnumarkaðnum.
Athugaðu málið!
www.hiukrun.is
Viltu hjálpa? Hjúkr-
unarfræðingar starfa
um hjúkrun?
Veistu
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 2. tbl. 78. árg. 2002